falcon1 skrifaði:Ég er með Asrock Z690 extreme móðurborð sem er í "bequiet silent base 802" kassa. Ég er núna með 3 ssd (1 af þeim er nvme ef ég man rétt).
Ég er að bæta við Seagate IronWolf Nas 3,5" disk
Þetta móðurborð virðist hafa helling af SATA tengjum, þannig ekkert vandamál þar. Þessi kassi er líka með helling af pláss fyrir harða diska, þannig ekkert vesen þar. Og allir HDD útí búð er í raun alveg eins, þannig hvort sem þú hefðir keypt þennan eða annan HDD í búðinni þá er processið alveg eins.
1. Koma diskun fyrir í kassanum, í þessum bequet kössum kemur svona "cage" með sem þú skrúfar diskinn inní og síðan kemurðu búrinu fyrir í kassanum
2. Tengja diskin í rafmagn, sem er rafmags SATA tengi frá aflgjafanum.
3. Tengja SATA gagnakapall í móðurborð og í harða diskinn.
Gæti þurft að formata diskinn eða eitthvað í Windows, en það er ekkert mál.
Getur skoðað video á youtube, bæði hvernig á að koma HDD fyrir sérstaklega í þessum kassa og yfirhöfuð installa hörðum diskum. Þetta er allt búið að vera eins í basically áratugi.

Ef hlutir eins og stöðurafmagn væri alvöru ógn, þá væri helmingurinn af tölvudraslinu mínu ónýtt. En það er góður siður að kannski vera ekki að vinna með þetta á mottu eða í þykkum ulllarskoum, eða aðrar aðstæður sem gætu skapað stöðurafmagn.