Síða 1 af 1

Hýsill eða tengikví fyrir HDD og/eða SDD?

Sent: Fim 05. Feb 2026 08:59
af falcon1
Er sniðugt að eiga svoleiðis? Hvað er pro og con? :)

Eitthvað sem þið mynduð sérstaklega mæla með? Ég er oft að vinna með stórar skrár og gera backup af töluverðu efni (allt upp í nokkur TB, yfirleitt nokkur hundruð GB)

Re: Hýsill eða tengikví fyrir HDD og/eða SDD?

Sent: Fim 05. Feb 2026 12:08
af rostungurinn77
Eitthvað svona gæti nýst þér.

https://computer.is/is/product/dokka-ic ... b-1121-c31

Nema þú farir í gamla góða flakkarahýsinguna.

Veit ekki til þess að það sé neitt hraðvirkara nema tengja diskinn beint í móðurborðið og þá þyrfti móðurborðið þitt líklegast að styðja svona hot swap eitthvað fyrir sata eða m2.

Re: Hýsill eða tengikví fyrir HDD og/eða SDD?

Sent: Fim 05. Feb 2026 12:30
af rapport
https://www.computer.is/is/product/dokk ... 24mscl-c31

Þarf svona dokka í dag ekki að ráða við meira en bara 2,5" og 3,5" ?

Re: Hýsill eða tengikví fyrir HDD og/eða SDD?

Sent: Fim 05. Feb 2026 12:36
af falcon1
Hvernig er með áræðanleika svona tengikvía? Ég er að lesa á netinu að sumir eru að lenda í að þær "corrupti" diskum, er það eitthvað algengt?

Re: Hýsill eða tengikví fyrir HDD og/eða SDD?

Sent: Fim 05. Feb 2026 12:58
af emil40
ég á svona tengikví nema að hún er fyrir tvo diska, ég hef aldrei lent í því að svona tengvkvíar corrupti diskum og ég hef átt aðrar týpur áður. Þetta er mjög sniðugt ef það er t.d. ekki pláss inn í kassanum fyrir fleiri diska.

Re: Hýsill eða tengikví fyrir HDD og/eða SDD?

Sent: Fim 05. Feb 2026 13:20
af Fennimar002
ég er að vinna með "Cru drif" í vinnuni. Hef einungis lent í veseni þegar ég er að formata EXT drif yfir á NTFS. En hefur alltaf virkað að nota Linux til að Formata þá aftur í NTFS.
Annars nota ég Sata í USB adapted fyyrir SSD diska sem ég mæli með :)

Re: Hýsill eða tengikví fyrir HDD og/eða SDD?

Sent: Fim 05. Feb 2026 13:30
af Henjo
Er sjálfur að vinna mikið með diskaskúffu: https://kd.is/category/41?class=Diskask%C3%BAffur

Frábært ef maður á gamlan kassa með 5.25 slotti. Er 100% áreiðanlegt og 100% hraði, sem af minni reynslu er ábótavant með svona USB dokku.

Re: Hýsill eða tengikví fyrir HDD og/eða SDD?

Sent: Fim 05. Feb 2026 14:03
af rostungurinn77
Henjo skrifaði:Er sjálfur að vinna mikið með diskaskúffu: https://kd.is/category/41?class=Diskask%C3%BAffur

Frábært ef maður á gamlan kassa með 5.25 slotti. Er 100% áreiðanlegt og 100% hraði, sem af minni reynslu er ábótavant með svona USB dokku.



Held að þetta sé svarið eða eitthvað af hinu sem þeir eru að selja.

Gleymdi að skoða Kísildal.

Þetta er virkar mjög hentug lausn.

Svo Falcon1 sé svarað með kosti og galla.

Kostur: Auðvelt og fljótlegt að kíkja á lausa diska. Mér gekk merkjanlega betur á Tinder eftir að ég keypti mér svona dokku.

Ókostur: Hægara en sata tenging og gætir misst diskana. Þetta með Tinder gæti verið ókostur ef þú ert kvæntur.