Síða 1 af 2

Lcd skjár eða lcd sjónvarp ?.

Sent: Fim 16. Feb 2006 00:51
af Ragnar
Góðan dag/kvöld Ragnar Jóhannesson heiti ég og er mikið að hugleyða að kaupa mér einhvern lcd búnað.

Málið er þannig að ég er kröfuharður maður en kröfur kosta pening. Ég horfi mikið á kvikmyndir og spila einn og einn leik. Ég á Xbox 360 og er að spila hana í 14" Beko sjónvarpi sem er ekki að meika það.
þá kemur vandinn hvort maður eigi að fá sér Lcd sjónvarp eða tölvuskjá.

Tvennt er ofarlega á lista hjá mér:

Gateway 21" widescreen skjár. Ég hef ekki mikkla reynslu af Gateway þannig ég er í smá hugleiðingum. En þessi skjár er á góðu veðri 600usd

Mynd

http://accessories.gateway.com/Accessor ... ?ref=merch

Hinnsvegar er það Viewsonic sjónvarp: Afhvjeru Viewsonic, jú ég hef reynslu af Viewsonic og er búinn að velja eitt sjónvarp sem mér líst vel á.


ViewSonic N3260W-E 32" nú 32" er ekki mikið fyrir suma en það dugar mér og er ekki of dýrt.

Mynd

http://www.bodeind.is/verslun/jadartaek ... rp/pnr/863

Núna bið ég um aðstoð ykkar.

Eins og ég segi, ég er mikið í xbox 360 og er líka þónokkuð mikið í pc tölvu líka. Ég veit að það er hægt að hafa 2 hluti tengda í sama skjáinn maður skiptir um rás. Er það ekki rétt hjá mér?.

Hvort mynduð þið fá ykkur? Nú er sjónvarpið stærra og örugglega með lengri lífstíma en báðir hlutirnir eru bara með 1 árs ábyrgð sem er skítt.

Þakka öll svör/comment

Kv.

Ragnar Jóhannesson

Sent: Fim 16. Feb 2006 01:44
af ICM
Sjálfur tæki ég sjónvarpið... þú verður samt að hafa í huga að ef þú ætlar að nota það sem tölvuskjá þá áttu ekki að staðsetja það sem slíkan! Margir hafa verið undrandi á því að vera komnir með svakalega flott og stórt HDTV, tengja það við tölvuna og eru svo undrandi á því hvað myndin er blury :lol: upplausnin er á við meðal tölvuskjá en myndin er svo miklu stærri að þú verður að vera lengra frá henni svo hún verði rétt.

Þó hef ég ekki notað þannig sjálfur en ég sé eftir því að hafa keypt mér 20" LCD

Sent: Fim 16. Feb 2006 12:12
af appel
Þú getur fengið 30" dell TÖLVUSKJÁ LCD á um 200þús, myndi frekar skoða það ;)

Sent: Fim 16. Feb 2006 12:22
af hahallur
Af hveju hann ætlar að nota þetta sem sjónvarp, Dell skjárinn er 2560 x 1600, það er að mínu mati of mikið fyrir PC tölvu nema í myndvinnslu.

Sent: Fim 16. Feb 2006 13:53
af Ragnar
Það er nefnilega akkurat það sem ég er að spá í. Liggja uppí rúmmi og glápa á sjónvarpið. Hinnsvegar er tölvuskjárinn þægilegri ef um upclose notkun er að ræða.

Am i right ?.

Sent: Fim 16. Feb 2006 15:04
af ICM
nákvæmlega Ragnar...

Sent: Fim 16. Feb 2006 16:37
af Veit Ekki
Ragnar skrifaði:Það er nefnilega akkurat það sem ég er að spá í. Liggja uppí rúmmi og glápa á sjónvarpið. Hinnsvegar er tölvuskjárinn þægilegri ef um upclose notkun er að ræða.

Am i right ?.


En kæmi það til greina að fá sér bara einhvern 17" LCD skjá fyrir tölvuna og svo eitthvað gott sjónvarp til að horfa á kvikmyndir og nota X-Box í.

Sent: Fim 16. Feb 2006 16:39
af Rusty
32" ekki nóg :o

ertu ekki örugglega að tala um tommur...


Einnig, hvað með sjónvarpskort í tölvuna, með þessi gulu/rauðu/hvítu tengi fyrir xbox?

Sent: Fim 16. Feb 2006 19:36
af Ragnar
Veit Ekki skrifaði:
Ragnar skrifaði:Það er nefnilega akkurat það sem ég er að spá í. Liggja uppí rúmmi og glápa á sjónvarpið. Hinnsvegar er tölvuskjárinn þægilegri ef um upclose notkun er að ræða.

Am i right ?.


En kæmi það til greina að fá sér bara einhvern 17" LCD skjá fyrir tölvuna og svo eitthvað gott sjónvarp til að horfa á kvikmyndir og nota X-Box í.


Já það kemur alveg til greina. Ég þarf aðeins að skoða þetta og læt vita hvað verður gert í málinu :).

Sent: Fim 16. Feb 2006 20:22
af Castrate
Sælir

Langaði bara benda á:

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2247

Tölvuskjár og Sjónvarp. Það eru rca plug og meira segja scart tengi á þessu.

Nokkuð góðir speccar á þessu, en varðandi ghosting og blacklighting og allt það veit ég ekkert um.

Sent: Fim 16. Feb 2006 20:46
af ICM
Nei þessi acer skjár kemur ekki til mála, ef þú ætlar að kaupa góðan skjá núna þá verður hann að vera með HDCP

Sent: Fim 16. Feb 2006 23:52
af Ragnar
Hver er umboðsaðili Gateway á íslandi ?. Ef hann er til á íslandi þá ætla ég að skoða hann. Mér finnst þessi Gateway skjár freistandi.

Hér er eitthvað um skjáinn:

http://www.3dgameman.com/forums/showthread.php?t=40608

Sent: Fös 17. Feb 2006 11:55
af CendenZ
ef þið ætlið að spreða yfir 100 þúsund í TV skulið þér fá ykkur

DLP sjónvörp.

þetta er málið í USA í dag td.

margfalt betri upplausn, margfallt skýrara, og gott verð


DLP

Sent: Fös 17. Feb 2006 12:57
af zaiLex
ICM skrifaði:Nei þessi acer skjár kemur ekki til mála, ef þú ætlar að kaupa góðan skjá núna þá verður hann að vera með HDCP


acer eru með mjög góða skjái er að nota einn núna og hann er yndi, svo skiptir hdcp engu því það á eftir að vera hackað daginn sem vista kemur út.

Sent: Fös 17. Feb 2006 13:46
af CendenZ
zaiLex skrifaði:
ICM skrifaði:Nei þessi acer skjár kemur ekki til mála, ef þú ætlar að kaupa góðan skjá núna þá verður hann að vera með HDCP


acer eru með mjög góða skjái er að nota einn núna og hann er yndi, svo skiptir hdcp engu því það á eftir að vera hackað daginn sem vista kemur út.


Ekki hackað, heldur betrumbætt.

Windows hefur aldrei hakkað neitt, þeir betrumbæta, gefa út patcha eða viðbætur.

Sent: Fös 17. Feb 2006 17:32
af ICM
Hvað sem þú gerir, EKKI KAUPA DLP sjónvörp :roll:
Sérstaklega þar sem hann ætlar að tengja við þetta leikjatölvu þá eru DLP sjónvörp þekt fyrir það að vera með of mikið delay á leikjatölvum til að vera spilanlegt ásættanlega.

Hver segir að DLP sé málið í USA í dag? Flestir sem ég veit um eru að kaupa sér LCD sjónvörp í USA. Bestu gæðin fást úr Plasma sjónvörpum en LCD sjónvörp eiga væntanlega eftir að vera það vinsælasta allstaðar í heiminum.



Zailex ekki koma með svona fullyrðingar, það gæti vel tekið nokkur ár að cracka HDCP.

Sent: Fös 17. Feb 2006 18:09
af gnarr
ICM: næstum öll þau LCD sjónvörp sem ég hef séð hafa verið með mun flottari og betri mynd en plasma. Ég vill allavega meina að LCD sé komið framúr plasma í myndgæðum. Fyrir utan það hvað það er miklu þægilegra að horfa á LCD :)

Sent: Fös 17. Feb 2006 18:34
af ICM
WTF gnarr þú átt ekki að skoða plasma sjónvörp í BT :lol:

Þú sérð munin ef þú tengir við þetta 720p+... Plasma eru með mikið betri liti og betri svartan, það á þó vonandi eftir að breytast á næstu árum þegar backlight tækninni verður breytt á LCD skjáum eða þegar OLED verður nægilega þróað. Flest ódýr LCD sjónvörp virðast vera 16bit dithered.
LCD sjónvörp eru líka hrikalega ljót ef spilað er efni sem er með minna en native upplausnina nema þau séu með innbyggt up-scale en Plasma svipar nokkuð til CRT og er sveigjanlegara.

Sent: Fös 17. Feb 2006 18:38
af gnarr
ég hef ekki farið í BT í háa herrans tíð :)

Ég hef séð LCD og Plasma að spila sama 720p videoið. Ég er sammála þér með svarta. hann er talsvert dekkri á plasma. en aftur á móti þá fannst mér heilda myndgæðin á LCD mun betri.

Sent: Fös 17. Feb 2006 21:00
af Rusty
Farðu í almenna raftækjabúð sem hafa LCD og Plasma hlið við hlið. Flestir kjósa LCD þó það sé nú minna.

Sent: Fös 17. Feb 2006 23:12
af ICM
Ef þú ert hardcore þá eru CRT HDTV ennþá með bestu myndgæðin :lol: en þú færð þau ekki stærri en í kringum 40" og þú þarft heldur mikið pláss....

Sent: Mán 20. Feb 2006 15:42
af Gestir
JEsús..

Plasma er ekki eins gott og LCD, no matter what nema þið séuð að bera saman rááándýurt plasma vs ódýrt LCD.

Farið bara í Elko og biðjið um Guðjón Júl.

Hann fer með ykkur í gegnum þetta.

Plasma er fólk að kaupa í dag því það er stærra og ódýrara og ´fólki finnst það vera að fá meira fyrir peninginn.

LCD er með 1366 x 1024 upplausn á móti 848 x 480 eða álíka þannig að stærðfræðin segir ykkur strax hvorum meginn upplausnin er betri :)

Sent: Mán 20. Feb 2006 15:44
af ICM
lol þú átt ekki að bera saman LCD skjái saman við sjónvörp með minni upplausn :lol: augljóslega er lítið úrval af plasma skjáum hér á landi ef þú finnur bara 848x480 skjái.

Svartir litir eru óþolandi ónákvæmir á LCD skjáum en þeir eru oftast fullkomnir á Plasma.

Sent: Mán 20. Feb 2006 16:18
af gnarr
þegar ég vill horfa á svarta mynd, þá slekk ég á sjónvarpinu...