Síða 1 af 1
1300 Duron fundin sem 1100 Duron ?
Sent: Fös 04. Júl 2003 21:23
af Voffinn
Sælir,
Var að taka gömlu tölvuna og keypti í hana Duron 1300mhz, svo skellti ég honum í ásamt glæsilegri Zalman flower viftu. Svo bootaði ég í fyrsta skipti, og þá kom BIOS-inn og segir að Örrinn sé bara 1.1ghz ? Ég var með 800 áður, er ekkert búin að breyta neinum stillingum í BIOS, reyndar segir í bæklingum að móbóið sé bara fyrir... nahh, ég skrifa það bara inn.
Socket A for AMD Duron(tm)/Athlon processor.
Support 600mhz up to 1.2ghz processor or above.
þetta or above er svolítið að trufla mig, er þá verið að meina í línunni fyrir ofan eða öflugri örgjörva ??
Svo er það, þarf ég kannski að breyta einhverjum stillingum fyrir örran
endilega hjálpið ef þið getið, ég þarf að koma honum í gang, ætlaði að reyna koma gentoo inn um helgina
Sent: Fös 04. Júl 2003 22:10
af elv
Athugaðu hvort það sé til nýrra BIOS.
Svo Flasha ef þú treystir þér í það
Sent: Fös 04. Júl 2003 23:02
af Voffinn
Halanegri var að reyna að manna mig uppí að flasha, ætli ég reyni ekki.... þá bara redda ég mér svona svipuðu móðurborð ódýrt ef þetta virkar ekki
Sent: Lau 05. Júl 2003 00:00
af elv
Það er voða lítið sem getur klikkað bara RTFM og þá á allt að ganga
Sent: Lau 05. Júl 2003 00:17
af Voffinn
búin, þetta var pís of keik
en hann er samt fundinn sem 1100
þið þarna ofurkrukkarar, er ekki eitthvað fbus sem ég á að stilla eða eitthvað voltage ?
Sent: Lau 05. Júl 2003 00:30
af Voffinn
urrr, ég er næstum viss um að gaurinn hafi látið mig fá vitlausan örgjörva, fékk hann bara í stykkjatali.... gaurinn virtist vera svolítið stressaður, mikið að gera... ætla að rífa þetta risa heatsink af, nógu erfitt að koma því á, hvað þá að taka það af aftur....
Sent: Lau 05. Júl 2003 00:56
af halanegri
Það er svo litill munur a 1100 og 1300 að það getur ekki verið fbusinn, og heldur ekki multiplierinn(þvi það er ekki hægt að stilla hann a þessu moboi). Sem sagt örugglega vitlaus örri..
Sent: Lau 05. Júl 2003 07:53
af elv
Prófaðu cpu-z-118.
Það ætti að segja þér allt um örran.
Hva er FSB hjá þér.
Sent: Lau 05. Júl 2003 11:30
af Voffinn
ég er að fara bara núna á eftir og skila honum.
og núna, þar sem ég er kominn með þennan aðeins öflugri örgjörva, og hrikalegu kælingu... ertu með einhver ráð handa mér til ða oc hann ?
Sent: Lau 05. Júl 2003 13:34
af elv
EF þú ætlar að OC nýjan örgjörva þá þarfu að keyran til. Notaðu burn in á Sandra eða Toast eða eitthvað álika. Keyrðu þetta í norkkra tíma.
Þegar það er búið hækkaðu Vcore á örran ekki mikið en aðeins og keyrðu Toast aftur í nokkra tíma.
Núna geturðu farið að klukka.Gera þetta bara rólega 1-3Mhz í einu og startaðu Windows og keyrðu 3Dmark. Ef hún er stöðug í 3Dmark þá hækka meira og meira þangað til allt crashar , þá hækka Vcore á örran og minnið og chipsetið.
Og ástæðan fyrir að keyra 3Dmark er sú að þegar þú hækkar FSB fer AGP og PCI úr synci. Og það er oft sem heldur aftur af manni.SVo ef þú getur keyrt 3Dmark þá ætti allt að vera K.
Sound Blaster er t.d viðkvæmur fyrir þessu, margir hafa klukkað mikið hærra eftir að hafa tekið þau úr.
Held að ég sé að muna eftir flestu......
Sent: Lau 05. Júl 2003 14:32
af Voffinn
this is way more than i thought i would be....
ég ætla að bíða aðeins með þetta, og fara frekar í það að láta gentoo upp
Sent: Lau 05. Júl 2003 15:04
af elv
Þetta er LIST
Maður flýtir sér ekki með svona hluti
Sent: Lau 05. Júl 2003 18:49
af Voffinn
svo finnst mér örrinn heldur heitur akkurat núna, hann er svona ~45°
ég er ekki nógu ánægður með það, eftir að hafa spanderað í þetta zalman dæmi
Sent: Lau 05. Júl 2003 18:52
af elv
45c idle eða load.
Og hvað var hann áður
Sent: Lau 05. Júl 2003 19:04
af Voffinn
þetta er nýr örri, og ég myndi nú ekki segja idle eða load
bara svona á milli, þú veist, ég er bara að skoða heimasíður og svona, ekkert svaka load.
núna er hann svona 50°, ætti maður að hafa áhyggjur ? ég verð að hafa þetta í lagi áður en ég fer að compliea gentoo, það er sko load í lagi
Sent: Lau 05. Júl 2003 19:46
af elv
Ef þú notaðir Artic Silver þá tekur það umþað bil þrjá daga að jafan sig og þá lækkar hitin um einhverjar 2-3 gráður.50 load er svosem allt í lagi ef Zalmaninn er á silent.Ef hitin hækkar jafnt og þétt hjá þér áns þess að þú ert að gera eitthvað. Þá þarftu að taka heatsinkið af og setja aftur á.
Sent: Lau 05. Júl 2003 19:49
af Voffinn
ég notaði bara kæligumsið sem fylgdi zalmaninum... ég ætla að sleppa að hafa viftuna á silent til að byrja með
Sent: Sun 06. Júl 2003 18:45
af gumol
ég veit afhverju þetta er
ÞETTA ER AMD ÖRRI !!!!!!!!
Sent: Sun 06. Júl 2003 18:50
af GuðjónR
Sent: Mið 09. Júl 2003 23:36
af Rednex
ég er með gamla PII tölvu og hún var í idle 73°> þá bætti ég bara tveimur 80mm viftum í kassan 1 til að blása inn og eina til að blás beint á örran. Hún idlar í 29°. Það er ekki bara hitavandamál hjá AMD :Þ
Sent: Mið 09. Júl 2003 23:48
af GuðjónR
PII í 73° idle??? bullshit....
Sent: Fim 10. Júl 2003 00:06
af gumol
hahahahah 73° ... það fyndnasta er að þú trúir þessu sjálfur...
Sent: Fim 10. Júl 2003 21:37
af halanegri
hmm, kannski prentvilla, sem sagt 37°?
Sent: Fös 11. Júl 2003 07:15
af elv
Gömlu PII Klamath voru eins og orkustöðvar , þeir hitnuðu svo mikið.