Síða 1 af 2
2 bestu móðurborðin á markaðnum í dag !
Sent: Fös 04. Júl 2003 19:05
af MuGGz
Jæja, ég
held að ég sé búin að finna 2 bestu móðurborðin á markaðnum í dag, kanski eru til betri og aðrir ósammála, enn ég er að spá svona hvort móðurborðið þeir myndu taka, og afhverju!
GBGA-8KNXP
og
ASUS P4C800
Persónulega langar mig meira í gygabite móbóið, miklu flottara hehe
Þau eru flott.
Sent: Fös 04. Júl 2003 19:31
af GuðjónR
Þau eru flott...Gigabyte er meira fyrir augað, en ég er hrifnari af ASUS.
Sent: Fös 04. Júl 2003 20:05
af kiddi
Hvernig var þetta, "hverjum þykir sinn fugl fegurstur"?
Sent: Fös 04. Júl 2003 20:47
af GuðjónR
true...en ég á ekki svona asus móðurborð
Sent: Lau 05. Júl 2003 03:15
af kemiztry
Anandtech.com talar um þetta Gigabyte móðurborð sem besta "high-end" móbóið.. og Asusinn sem besta "middle-class" móbóið
Annars er ég sjálfur með Gigabyte SINXP og er ekkert smá ánægður með það.. virkar allt perfectly... tölvan aldrei krassað... bara live is wonderful
Sent: Sun 06. Júl 2003 15:40
af MuGGz
ég er eiginlega búin að breyta um skoðun, tek örugglega Asus móbóið
http://www6.tomshardware.com/motherboard/20030519/i875p-23.html
Sent: Mán 07. Júl 2003 11:38
af Oxide
Hefurðu lesið póstinn "ASUS P4C800 Deluxe vandræði" sem er hérna neðar? Ég keypti mér svona móðurborð og þau eru mjööög erfið. EFtir að mitt móðurborð hafði virkað fínt í 4 daga dó það og steikti örrann í leiðinni. Þeir á verkstæðinu í Tæknibæ reyndu að setja nýtt móðurborð í, en það virkaði engan veginn þannig að ég fékk mér MSI 875P Neo í staðin. Ef þú leitar í Google að "ASUS P4C800 Deluxe problem" færðu óteljandi svör og fullt af forumum þar sem fólk er í vandræðum með það....... þannig að ég get ekki mælt með þessu eftir hrakfarir mínar.
Sent: Mán 07. Júl 2003 12:33
af MuGGz
Vinur minn var einmitt að kaupa sér svona asus móðurborð er bara að bíða eftir vélinni, tölvuvirkni eru að setja hana upp, kemur í ljós hvernig gengur hjá honum
Sent: Mán 07. Júl 2003 12:39
af Voffinn
örrinn steikist ekkert af sjálfum sér, eitthvað hlýtur þú nú átt hlut að máli ? kannski ekki nóg kæling ?
Sent: Mán 07. Júl 2003 12:43
af MuGGz
Oxide settiru þetta saman sjálfur eða tölvuvirkni gera það
Sent: Mán 07. Júl 2003 14:48
af Oxide
Ég fékk félaga minn til að hjálpa mér að setja tölvuna saman og hann er kerfisstjóri hjá Norðurljósum og hefur sett upp slatta af tölvum. Kælingin ætti að hafa verið nóg, því retail viftan sem fylgdi örranum var á honum og ekkert oc í gangi. Tæknibær reyndi svo að setja upp annað eins móðurborð án árangurs og viðurkenndi svo að hafa fengið nokkur svona móðurborð aftur í hausinn frá kúnnum. Þessi móðurborð eru bara eitthvað klikk...
Sent: Mán 07. Júl 2003 15:22
af kemiztry
Ég held að þetta
Gigabyte móðurborð sé málið fyrir 800FSB
Sent: Mán 07. Júl 2003 15:53
af MuGGz
Fékkstu þetta ekki bætt eða þurftiru bara að greiða þetta úr eigin vasa?
Kannski bara skelli sér bara á gigabyte móbóið
Sent: Mán 07. Júl 2003 17:32
af Oxide
Þetta var allt saman í ábyrgð. Ég fór líka bara með kassann upp í Tæknibæ þannig að þeir sáu að það var ekkert að ísetningunni. Annars hefði þetta líklega ekki verið bætt ef þetta hefði verið léleg ísetning.
Sent: Þri 08. Júl 2003 17:32
af kemiztry
Það vill svo til að Gigabyte 8KNXP var að fá viðurkenninguna 'Editors Choice' sem verður nú bara að teljast ansi gott
Sent: Þri 08. Júl 2003 19:06
af AtliAtli
kemiztry skrifaði:Það vill svo til að Gigabyte 8KNXP var að fá viðurkenninguna 'Editors Choice' sem verður nú bara að teljast ansi gott
Það fer nú eftir því hvar þeir fengu "editors choice"... þó það sé auðvitað yfirleitt gott
Sent: Þri 08. Júl 2003 19:06
af MuGGz
Já ætli maður skelli sér ekki á gigabyte þegar maður lætur verða af því að uppfæra
Sent: Þri 08. Júl 2003 19:50
af GuðjónR
Ef þú bíður of lengi með að uppfæra þá verður þetta móðurborð orðið úrelt...
Sent: Þri 08. Júl 2003 23:26
af MuGGz
kannski úrelt já, enn ódýrara og alveg jafn gott fyrir því
þar sem ég ætla ekki að eyða meira enn 120 þúsund í uppfærslu þá væri alveg fínt að það myndi lækka um einhverjar krónur
Sent: Fim 10. Júl 2003 18:22
af Castrate
Sent: Lau 12. Júl 2003 00:32
af Bitchunter
en er ekki Msi neo 875i betri kostur en Gigabyte 8KNXP?
því í
þessu
þá er Msi Neo oftast með betri fps en gigabyte 8knxp(auðvitað á eftir Asus P4C800 DL)
Sent: Lau 12. Júl 2003 15:10
af Damien
Asus P4P800 - DeLuxe er líka nokkuð gott. Ég er með þannig og er mjög ánægður með það, engin vandræði eða neitt. Þetta móðurborð er líka búið að fá þónokkur verðlaun/viðurkenningar, en engin eins flott og gigabyte móbó-ið hérna fyrir ofan. Eini gallinn við það er að það er ekki með APG 8X - PRO sem sagt bara 8X á 3.3v ekki 1.5v eins og nýjustu Radeon kortin. En annars fínasta kort og ekki svo dýrt.
Sent: Lau 12. Júl 2003 20:50
af halanegri
Damien skrifaði:Asus P4P800 - DeLuxe er líka nokkuð gott. Ég er með þannig og er mjög ánægður með það, engin vandræði eða neitt. Þetta móðurborð er líka búið að fá þónokkur verðlaun/viðurkenningar, en engin eins flott og gigabyte móbó-ið hérna fyrir ofan. Eini gallinn við það er að það er ekki með APG 8X - PRO sem sagt bara 8X á 3.3v ekki 1.5v eins og nýjustu Radeon kortin. En annars fínasta kort og ekki svo dýrt.
Hér stendur að það sé með AGP 3.0(AGP PRO)
Sent: Sun 13. Júl 2003 14:09
af Damien
Já ég veit þetta er eitthvað bull því ég er með Radeon 9700 Pro og þetta móðurborð og þegar ég keyri 3D Mark þá kemur í report að ég sé að keyra á 4x AGP. En ég hef fengið mismunandi niðurstöður úr öðrum svipuðum forritum, flakkar á milli AGP 8x og 4x. Ég skil þetta ekki allveg...
Kannski er ég bara að bulla...
Sent: Sun 13. Júl 2003 17:17
af halanegri
Kannski tékka í bios?