MuGGz skrifaði:Yank skrifaði:Það að taka viftu á skjákorti úr sambandi er að bjóða hættunni heim!!. Þær eru ekki þarna sem skraut. Finnið aðrar lausnir ef þær eru til vandræða.
útskýrðu hvernig maður er að bjóða hættunni heim með að taka viftuna úr sambandi ??
ef að hitinn helst alltaf undir hættumörkum, og þú færð ekkert artifacts ...
hvað getur þetta þá verið að skemma ??
t.d. 9600 kortinu mínu er hitinn að idle í 35° og fer mest uppí 63° í full load og fæ aldrei neitt artifacts ... (Er btw EKKI með viftuna í gangi)
og við erum að tala um að taka viftuna úr sambandi á þessum 4 pípu og 8 pípu kortum, ekki þessum öflugu s.s. 6800gt/ultra og x800 kortunum sem eru 16 pípu.
Það hafa allir sem komið hafa að vélbúnaði í einhvern tíma séð skákort 9600 , 4200 eða hvað sem það er þar sem það er ónýtt og orsökin er að skjákortsviftan er hætt að snúast. Í flestum nýrri kortum þá myndast ekki endilega artifacts við það að kortið hitnar heldur krassar hreinlega vpu.
Artifacts eru ekki endilega sjáanlegir þó þeir séu að myndast. T.d. er ATI Tool mun næmara en mannsaugað á slíkt.
Þú tekur ekki viftuna úr samband á 9800 pro, 5900 eða 6600 GT sem eru 8 pípukort nema skipta þeim út fyrir þar til gerð heatsink. En hei þitt kort þú ræður hvernig þú ferð með það
Allavega mér fannst þessi þráður orðinn full hættulegur ef menn fara að leika þetta eftir ef hávaðinn í kortinu fer í taugarnar á þeim, og fannst því rétt að benda á það.
Svarar þetta þér ?