marri87 skrifaði:Olafst skrifaði:thk skrifaði:góð í forritun
Vertu þá viss um að lyklaborðið á vélinni sé íslenskt eða nordic til að fá <>| takkann.
Hann er ekki á sumum vélum sem menn eru að selja hér á landi með US layouti.
Aftur á móti ef þú ætlar að forrita eitthvað meira en bara fyrir skólann þá munar helling að vera með english layout stillt. Langflestir forritunartakkarnir eins og ;, {}, [], / eru mun þægilegra staðsettir á en layout en íslensku.
Ég býst nú ekki við að það verði mikið vandamál, maður hlýtur að læra fljótt á sína eigin fartölvu.
Takk samt fyrir ábendinguna.
Klemmi skrifaði:thk skrifaði:Það er aðallega spurning um þetta skjákort, ég býst reyndar ekki við að vera að nota external skjá en væri hægt að skipta því upp í 2gb?
Myndir þú mæla með því og hvað myndi það kosta?
Einnig, væri hægt að fá rafhlöðu með meiri endingatíma?
Fartölvum, fyrir utan Dreamware tölvurnar hjá Start, er yfirleitt mjög lítið hægt að breyta, yfirleitt er það eina sem hægt er að gera að stækka minnið og skipta um harðan disk (og svo þráðlaust netkort og geisladrif en mjög fáir sem fara út í það).
Tölvan kemur með þessu skjákorti og það er ekki hægt að skipta því út.
Hér er annars linkur á umræður um þetta sama kort, hvort að það sé vit í að fara í 2GB frekar en 1GB, svörin eru hjá öllum þau sömu, kortið er ekki nógu öflugt hvort eð er til þess að 1GB verði flöskuháls.
Varðandi rafhlöðuna á þá nei, því miður hef ég ekki séð öflugri rafhlöður, og ef það er á annað borð hægt, þá myndi slík rafhlaða líklega kosta nálægt 30þús kr.
Mér líst ekki alveg nógu vel á Dreamware tölvuna en það eru kannski bara fordómar að minni hálfu.
Ég vil frekar kaupa merki sem hefur sannað sig hér á landi fyrst (þrátt fyrir að vita ekkert hvernig þessar Dreamware tölvur eru í raun).
Annars er þetta flott mál, nú lítur ákvörðunin út fyrir að koma niður á aðeins endingaminna batterí (Toshiba segir 4,5 klst í endingu, þrátt fyrir að það þurfi nú ekki að vera heilagur sannleikur) og svo skjákortinu (sem lítur ekki út fyrir að skipta miklu máli).
Þetta lítur allt mjög vel út og mér lýst mjög vel á Asus-inn, takk fyrir aðstoðina.