"stressprófa" nýjan harðan disk


Höfundur
falcon1
</Snillingur>
Póstar: 1059
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 142
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

"stressprófa" nýjan harðan disk

Pósturaf falcon1 » Þri 03. Mar 2026 10:16

Nú er ég nýkominn með nýjan harðan disk í tölvuna mína og mig langar til að spyrja mér vitrari menn hérna hvort það sé nauðsynlegt að gera einhverskonar "stressprófanir" á honum áður en maður setur mikið af mikilvægum gögnum á hann. Margir á Reddit virðast gera eitthvað slíkt en veit ekki hvort það er paranoia eða skynsamlegt. :D
Ég er búinn að gera stutt próf með Seatools og diskurinn fær "passed" á því. Það eru fleiri möguleikar í boði í því forriti en mér skilst að það taki mikið lengri tíma ef maður fer í þau próf.

Hverju mælið þið með?

Ps. Er að keyra Win11
Síðast breytt af falcon1 á Þri 03. Mar 2026 10:16, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17256
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2378
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: "stressprófa" nýjan harðan disk

Pósturaf GuðjónR » Þri 03. Mar 2026 10:57

Ég held að það sem þú ert búinn að gera sé nóg, að því sögðu þá er alltaf skynsamlegt að eiga backup af mikilvægum gögnun. Þú veist aldrei með þessa diska, hann gæti rúllað í 100 ár eða dáið á morgun.



Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2199
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 200
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: "stressprófa" nýjan harðan disk

Pósturaf DJOli » Þri 03. Mar 2026 11:25

Crystaldiskmark er svona standardið upp á að vera viss um að drifið sé að performa eins og það eigi að gera.

Ef þetta er hdd þá er að sækja Speedfan eða eitthvað álíka sem les S.M.A.R.T. stöðu harðra diska. Gera það á 12 mánaða fresti fyrstu tvö árin. Ef það fer niður um minna en 3% á ári, þá ætti að vera öruggt að skoða það ekki aftur fyrr en á 5. ári. Ef á 5. ári eru performance og health (bæði) yfir 85-90%, þá ætti harði diskurinn að endast til amk 8 ára.

Þetta er svona nokkurnveginn það sem ég hef allavega fylgt og hefur dugað mér hingað til.


i7-11700KF|64gb(2x32gb) ddr4|RTX 4060Ti-16gb|2tb Samsung 990 Evo Plus nvme m.2|1tb Samsung 990 Evo nvme m.2|Corsair HX1200