Sælir,
Var að uppfæra GTX 470 yfir í GTX 970. Hef skipt um skjákort oft áður og fylgdi öllum settum reglum, en nú ræsir tölvan sér ekki. Þ.e., eins og það sé enginn straumur (PSU virðist virka sem skyldi) og ekkert gerist. Ég er búinn að reyna að hreinsa CMOS oftar en einusinni, með því að fjarlægja rafhlöðuna, nota skrúfjárn á jumperna skv. handbók móðurborðsins.
Búinn að fjarlægja allan jaðarbúnað, skipta RAM á milli hólfa, setja gamla skjákortið í, tengja framhjá PWR hnappnum. Ekkert virðist hafa áhrif, tölvan jafn dauð og alltaf.
Átti við sambærilegt vandamál að stríða fyrir stuttu. Fjarlægði allt úr gömlum kassa og færði yfir í nýjan, stærri kassa (Fractal XL). Þá neitaði hún að fara í gang, en tók upp á því sjálf skömmu síðar og var þá allt eins og það átti að vera. Síðan þá hefur hún verið algjörlega til friðs og eru komnir tæpir 30 dagar síðan.
Einhver ráð?
Kv, Steini
PS. Tölvan er í sambandi.
Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
það vantar alla specca um tölvuna, móðurborð, aflgjafa etc.. tengdiru ekki alveg örruglega rafmagn í kortið?
Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 14
- Skráði sig: Fim 08. Des 2011 13:02
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Jú, tengdi 8 + 6 pin straum í kortið.
Upplýsingar um vélina:
Móðurborð: Gigabyte Z87-D3HP
CPU: Intel i5 4670K
GPU: Gigabyte GTX 970
PSU: Zalman 770W
Kv, Steini
Upplýsingar um vélina:
Móðurborð: Gigabyte Z87-D3HP
CPU: Intel i5 4670K
GPU: Gigabyte GTX 970
PSU: Zalman 770W
Kv, Steini
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 943
- Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
- Reputation: 16
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Ég lenti í því að vélin mín ræsti ekki eftir samsettingu, ég notaði vír til að jumpa græna og svarta vírnum í 24 pin tenginu, ég notaði of sveran vír og ég glennti sundur female tengið á græna vírnum svo hann náði ekki allveg 100% sambandi.
Skoðaðu hvort female endar rafmagnstengjana á skjákortasnúrunum séu nokkuð útglenti
Skoðaðu hvort female endar rafmagnstengjana á skjákortasnúrunum séu nokkuð útglenti
"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Það er vel mögulegt að þetta séu vírarnir í usb tengið framan á vélinni. Prófaðu að aftengja þá úr móðurborðinu. Ef það dugar ekki, aftegndu allt annað sem tengist framan í vélina, en on/off rofann.
Annar möguleiki er að festing til að skrúfa í móðurborðið, sé í kassanum og komi upp þar sem ekkert skrúfugat er á móðurborðinu.
Annar möguleiki er að festing til að skrúfa í móðurborðið, sé í kassanum og komi upp þar sem ekkert skrúfugat er á móðurborðinu.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 296
- Skráði sig: Þri 04. Sep 2012 21:55
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
móðurborðið á að geta farið í gang hvort sem skjakortið er tengt eða ekki farðu yfir 24pinna tengið að gráu gaurarnir inní séu ekki i lagi
Gigabyte Z77X-UP7 / Intel i7 3770k / Corsair H100I / Coolermaster Haf 932 / Asus7970Matrix / Corsair 8GB 1600mhz / 4TB WD Geymsla / Logitech G500&G510&G27 && Asus ROG G53JW
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 14
- Skráði sig: Fim 08. Des 2011 13:02
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Þakka svörin!
Tók USB tengin að framan úr sambandi, allt óbreytt.
24 pin, ásamt 6 & 8 pin, virðist vera í lagi. Hér er mynd að 24 pin. Það er eins og það vanti eitt stykki, en hingað til hefur það verið í lagi:
Tók USB tengin að framan úr sambandi, allt óbreytt.
24 pin, ásamt 6 & 8 pin, virðist vera í lagi. Hér er mynd að 24 pin. Það er eins og það vanti eitt stykki, en hingað til hefur það verið í lagi:
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 296
- Skráði sig: Þri 04. Sep 2012 21:55
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
tölvan var i notkunn bara buið að skipta um gpu og þá hættir hun að virka ??
Gigabyte Z77X-UP7 / Intel i7 3770k / Corsair H100I / Coolermaster Haf 932 / Asus7970Matrix / Corsair 8GB 1600mhz / 4TB WD Geymsla / Logitech G500&G510&G27 && Asus ROG G53JW
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 14
- Skráði sig: Fim 08. Des 2011 13:02
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Tölvan var í notkun og sýndi engin tákn um að eitthvað væri óeðlilegt. Síðan drap ég á henni, tók hana úr sambandi, setti hana á vinnuborð, opnaði og skipti um skjákort, og lokaði. Síðan ekkert.
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
aflgjafinn búinn að gefa upp öndina?
Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 14
- Skráði sig: Fim 08. Des 2011 13:02
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Jú, ætli það sé ekki málið? Hefði haldið að hann ætti að þola svona duglegt skjákort. Eru 770W ekki nóg m.v. þetta build sem ég er með?
Kaupi annars annan á morgun, þá ætti ég að sjá hvort þetta sé aflgjafinn eða ekki.
Kaupi annars annan á morgun, þá ætti ég að sjá hvort þetta sé aflgjafinn eða ekki.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 296
- Skráði sig: Þri 04. Sep 2012 21:55
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Prufaðu að setja jumper a hann með ekkert annað i sambandi vir a milli græna og svarta
Gigabyte Z77X-UP7 / Intel i7 3770k / Corsair H100I / Coolermaster Haf 932 / Asus7970Matrix / Corsair 8GB 1600mhz / 4TB WD Geymsla / Logitech G500&G510&G27 && Asus ROG G53JW
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 14
- Skráði sig: Fim 08. Des 2011 13:02
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Eins hlægilegt og það kann að vera, þá er ég ekki með neitt hér til að gera þetta í augnablikinu. Nýfluttur erlendis og bara það allra nauðsynlegasta til.
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Ertu að segja mér Steini að námsmaðurinn sé ekki með bréfaklemmu?
-
Höfundur - Nýliði
- Póstar: 14
- Skráði sig: Fim 08. Des 2011 13:02
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýtt skjákort; tölva ræsir sig ekki.
Smá update. Fékk bréfaklemmu og aflgjafinn virkaði. En hann hagaði sér samt undarlega; virkaði bara þegar dautt var á hnappnum aftaná , og viftan snérist nánast ekkert. Setti nýjan aflgjafa í (140W aflminni ) og tölvan virkar nú sem skyldi. Þakka góð ráð og alla fengna aðstoð!