Kaup á tölvu, vantar álit


Höfundur
Snorri^
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Fös 06. Ágú 2004 22:07
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Kaup á tölvu, vantar álit

Pósturaf Snorri^ » Sun 08. Ágú 2004 20:46

Halló allir, er að fara að kaupa mér comp. um mánaðarmótin þannig að verðin breytast eflaust.
Var ekki viss á hvaða þráð ég gæti sett þetta en þar sem eg er að "uppfæra" úr þessari yfir í nýja :wink: þá skellti ég þessu bara hingað.
Þá er það listinn..

HARÐUR DISKUR 120GBWD7200 8MB
10.640
http://www.computer.is/vorur/2005
------------------------------------------------------------------------------------------
ÖRGJÖRVI - AMD Athlon 64 3200+, 2 GHz, 64ra bita kjarni, L2 Cache 1 MB, 1600 MHz brautartíðni - innpakkaður
Netverð: 35.055
http://www.computer.is/vorur/2490
------------------------------------------------------------------------------------------
MÓÐURBORÐ - Asus K8V-SE Deluxe Socket 754 Athlon 64 K8T800 Marvell GBLAN
Netverð: 16.815
http://www.computer.is/vorur/4269
-----------------------------------------------------------------------------------------
MINNI - 512 MB 184ra pinna Kingston DDRAM PC3200 400 MHz
Netverð: 12.255
http://www.computer.is/vorur/2051
------------------------------------------------------------------------------------------
MINNI - 512 MB 184ra pinna Kingston DDRAM PC3200 400 MHz
Netverð: 12.255
http://www.computer.is/vorur/2051
------------------------------------------------------------------------------------------
SKJÁKORT - Gainward GeForce 6800 Ultra 2600 Golden Sample, 256MB
Netverð: 44000
http://www.chillblast.com/customer/prod ... ctid=16522
-------------------------------------------------------------------------------------------
SKJÁR - HP EVO S9500 19 tommu hágæða skjár með 1600x1200 upplausn @70Hz
Netverð: 28.405
http://www.computer.is/vorur/2861
----------------------------------------------------------------------------------------------------------
HÁTALARAPAR - Creative Sound Blaster SBS250, svartir, 125 W PMPO, 2,5 W (RMS) hvor rás. S/N hlutfall 75 dB, tíðnisvörun 90 Hz til 20 kHz.
Netverð: 2.755
http://www.computer.is/vorur/1403
----------------------------------------------------------------------------------------------------------
LYKLABORÐ - Keytronics USB margmiðlunarlyklaborð með 2ja porta USB HUB. Ígreiptir íslenskir stafir.
Netverð: 3.420
http://www.computer.is/vorur/1516
----------------------------------------------------------------------------------------------------------
MÚS - Logitech MX510 geislamús frá Logitech með skrunhjóli og fjölda möguleika. 5,8 MP og 800 dpi!
Netverð: 5.605
http://www.computer.is/vorur/3111
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------
GEISLASKRIFARI, COMBO - Sony CRX320E, 52x/32x/52x CD-RW+16x DVD-ROM, IDE / ATAPI, mjög hljóðlátur. Litur: Svartur
Netverð: 6.555
http://www.computer.is/vorur/4356
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------
TÖLVUKASSI - Silfur-/kampavínslitur miðturn frá Super Talent, með USB 2,0 tengjum, Mic-tengi og Firewiretengi að framan, 300 W - Gerð ST86US
Netverð: 8.455
http://www.computer.is/vorur/4483
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------
DISKETTUDRIF - Samsung 1.44 MB, 3,5 tommu floppydrif. Litur: Silfurlitt
Netverð: 1.378
http://www.computer.is/vorur/4461
---------------------------------------------------------------------------
KÆLIVIFTA Á TÖLVUKASSA - Vantec SF6025L Viftustærð: 60x60x25 mm, gerð fyrir tölvukassa, þögul
Netverð: 1.235
http://www.computer.is/vorur/3398


Það sem vefst fyrir mér er t.d. hvort mobo, örrinn og skjakortið henti saman(any ideas ?) og hvort það vanti power í þetta er bara með 300W og GF 6800 ultra er frekar power needy.
Tilgangur með þessari comp. er aðallega leikir...
Kostnaðurinn total er líklega í kringum 190 þús. :?




Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Sun 08. Ágú 2004 21:00

Ef þú tímir 4þús meira..

taktu þetta móðurborð:

http://www.computer.is/vorur/4279

Það hefur NF3 kubbasett.

Og btw. þetta skjákort kostar 52þús heim.


það kostar 289 pund.. svo er 25pund sendingar kostnaður (Fedex), sem gerir sirka 314pund.. sem er sirka 41þús og fimm hundruð.. svo þarftu að borga vsk af þessu sem gerir sirka 51600kr.-

Og treystu mér.. ég hef pantað núna 3 svar sinnum af chillblast síðasta mánuð.

Þeir eru annars mjög góðir og 51þús er ekki mikið fyrir þetta skjákort



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3759
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Sun 08. Ágú 2004 21:07

Ef ég væri þú myndi ég fá mér þennan frekar
http://start.is/product_info.php?cPath=80_58_108&products_id=245
Hljóðlátari og minni bilanatýðni

Veit ekkert um þennan kassa svosem allt í lagi með það
Held alveg pottó að þú þurftir stærra og betra power supply.
Hér eru nokkur dæmi um psu
http://start.is/product_info.php?cPath=80_29&products_id=511
http://www.shopping.is/php/linux?/jalta?ItmInfoNew=13737&Shop&6907871569&&&&
og http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=705

Annars bara flott hjá þér. Ég er ekki inn í amd deildinni þannig að ég myndi láta aðra vaktara sjá um hvort þetta fitti ekki allt saman :)




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Sun 08. Ágú 2004 21:31

Ég myndi fara í stærra psu t.d. 400w fortron eins og pandemic benti á og harða diskinn sem hann benti á lika




goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Sun 08. Ágú 2004 22:12

fáðu þér frekar corsair xms minni




Zkari
Staða: Ótengdur

Pósturaf Zkari » Sun 08. Ágú 2004 22:21

Er ekki mælt með 400w+ fyrir 6800Ultra? BTW ég er með svona SilenX 450w PSU algjörlega hljóðlaust http://start.is/product_info.php?cPath=80_29&products_id=511




Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Mán 09. Ágú 2004 01:21

Veit ekki hvort þú hefur áhuga á því að minnka þetta aðeins niður til að spara um 11 þús en Amd 64 3000+ á að vera um 3 - 5% lélegri í vinnslu (gæti veirð aðeins meira ... þetta er bara tala sem að einhver gaf upp hérna einhvernstaðar á vaktinni) en fyrir 11 þús er það ekki mikill munur.



Skjámynd

Dannir
Fiktari
Póstar: 87
Skráði sig: Þri 28. Okt 2003 16:50
Reputation: 0
Staðsetning: RvK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dannir » Mán 09. Ágú 2004 13:00

Sem eigandi amd64 þá mæli ég ekki með þessu móðurborði.

Ég mundi taka eitthvað nForce 250 borð.

http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=616

Ég er með þetta og þetta borð er alveg magnað,sérstaklega eftir að f2 bíosin kom.




kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Mán 09. Ágú 2004 21:25

Endilega fáðu þér stærri aflgjafa, 300W er alveg örugglega ekki nóg.

Fáðu þér endilega líka einhverja góða músarmottu og "mouse-skatez". Ég mæli með fUncmat, en þær eru heldur dýrar. Eitthvað um 5þús.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Þri 10. Ágú 2004 16:52

nVidia mælir með MINNST 520w aflgjafa fyrir tölvur sem eru með örgjörfa, minni, móðurborð og GeForce 6800ultra. þannig að þú ættir að taka talsvert stærri aflgjafa en það. eða taka tildæmis 2 400w og láta þá keyra saman.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Kaup á tölvu, vantar álit

Pósturaf Daz » Þri 10. Ágú 2004 17:20

Brauðstangagaurinn skrifaði:SKJÁKORT - Gainward GeForce 6800 Ultra 2600 Golden Sample, 256MB
Netverð: 44000
http://www.chillblast.com/customer/prod ... ctid=16522


Kostar kannski 44000 beint úr búðinni úti (sem er þá mínus breskur VSK) en svo bætirðu við þetta sendingarkostnaði, tollskýrslugerð og 24,5% VSK og þá ertu kominn nær 60 þúsundum (56-57 kannski).




Höfundur
Snorri^
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Fös 06. Ágú 2004 22:07
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorri^ » Þri 10. Ágú 2004 23:01

gnarr skrifaði:nVidia mælir með MINNST 520w aflgjafa fyrir tölvur sem eru með örgjörfa, minni, móðurborð og GeForce 6800ultra. þannig að þú ættir að taka talsvert stærri aflgjafa en það. eða taka tildæmis 2 400w og láta þá keyra saman.


link á þetta plz, hvað með Geforce 6800 gt? þarf það lika crazy power?




Phate
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Mán 16. Ágú 2004 15:35
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

OT

Pósturaf Phate » Mán 16. Ágú 2004 16:34

Er kostnaður á tollskýrslugerð sá sami hvort sem ég er að panta tvö skjákort eða eitt?



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: OT

Pósturaf MezzUp » Mán 16. Ágú 2004 16:54

Phate skrifaði:Er kostnaður á tollskýrslugerð sá sami hvort sem ég er að panta tvö skjákort eða eitt?

ef þau koma í sömu sendingu á ekki að skipta máli hvað þau eru mörg



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Mán 16. Ágú 2004 19:49

Reyndar lendirðu í einhverjum vandamálum ef heildarverð á innflutninginum fer yfir 25 þúsund krónur. Ég þekki það ekki nákvæmlega en skv. þessum pappírum sem ég hef lesið frá tollinum þarf þá að fylla út eitthvað flóknari skýrslur. Kynntu þér málið áður en þú pantar.




goldfinger
spjallið.is
Póstar: 466
Skráði sig: Mán 03. Nóv 2003 10:06
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf goldfinger » Mán 16. Ágú 2004 21:48

frændi minn kom með sér tölvudot fyrir mig fyrir 38.200kr. og ekki þarft hann að borga krónu :P



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Þri 17. Ágú 2004 08:44

jæja.. það var víst 480w en ekki 520w :oops: en þeir eru búnir að "lækka" það niður í "góð" 350w

http://www.gamespot.com/news/2004/05/10/news_6096837.html


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3833
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 149
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Pósturaf Daz » Þri 17. Ágú 2004 09:48

goldfinger skrifaði:frændi minn kom með sér tölvudot fyrir mig fyrir 38.200kr. og ekki þarft hann að borga krónu :P

Það er eitt að koma með tölvuhluti með sér frá útlöndum og annað að láta senda sér þá.
Það er orðið nokkuð ljóst af umræðunni hérna á vaktinni að maður getur komið með hluti að andvirði 46 þúsund með sér frá útlöndum (svo lengi sem enginn hlutur er meira virði en 23 þúsund).




Höfundur
Snorri^
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Fös 06. Ágú 2004 22:07
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Snorri^ » Þri 17. Ágú 2004 19:08

gnarr skrifaði:jæja.. það var víst 480w en ekki 520w :oops: en þeir eru búnir að "lækka" það niður í "góð" 350w

http://www.gamespot.com/news/2004/05/10/news_6096837.html


Takk takk, 520w var alveg svimandi mikið :wink: , 350w er eitthvað sem maður ræður mun betur við :lol: