sumar uppfærsla - ábendingar um gæði og verð


Höfundur
steini_ofur
Nýliði
Póstar: 4
Skráði sig: Mið 23. Jún 2004 23:18
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

sumar uppfærsla - ábendingar um gæði og verð

Pósturaf steini_ofur » Mið 23. Jún 2004 23:52

Sælt veri fólkið.

Ég er með í fórum mínum einn skrjóð sem hefur gengt hlutverki sínu vel hingað til. Nú er komin upp sú staða að hann er ekki að ráða við mikla keyrslu og minnisálag, þ.e.a.s. við myndvinslu og tónlistarsköpun (cubase þá aðallega), þannig að ég er á þeim buxunum að fara að uppfæra hann (skrjóðinn :P ) Ég ætti kannski að taka það fram að þetta á ekki að vera leikjavél, heldur meira svona meira vinnsluvél til daglegra notkunnar.

Ég er með ákveðnar hugmyndir um það sem mér finnst vanta og er þá fyrst og fremstmeð í huga a.m.k. 1gb vinnsluminni. Enn jæja. Skjár, skjákort, hljóðkort, netkort og geisladrif, að ógleymdi floppy, er eitthvað sem ég ætla nota áfram. Eftir stendur að ég verð að fá mér einhverja góða samsetningu á móðurborði, vinnsluminni og örgjörfa.

Uppfærslan mætti einnig innihalda nýjan harðan disk og kassa, en þar sem ég með tvo harða fyrir (160 wd og gamlan 20 ibm) var ég að velta fyrir mér kælingu á þetta drasl. Eins og er er hitastigið viðunandi, en ég veit ekki ef 3 harði diskurinn bættist við.

Jæja, þá læt ég það í ykkar hendur að púsla þessu saman fyrir mig ef það er ekki of frekt af mér. Budgetið er ekki rosalegt, en það á að vera nóg fyrir helstu nauðsynjum. ég myndi þá bara sleppa nýjum kassa og hörðum disk. Ég vill taka það fram að ég vill ekki eitthvað sem er top of the line, kannski 10-15 % betra en það næsta fyrir neðan, og er þar að auki 50 % dýrar fyrir vikið. (hljómar cocky, en ég held að flestir skilji hvað ég á við :D )

Með fyrirfram þökk,


Ég er lifandi holdgerfi

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fim 24. Jún 2004 16:11

taktu abit AI7 eða IC7 og pentium 4 2.8 northwood! ekki prescott!´svo er málið að taka 1GB af minni frá virtum framleiðanda (kingston, mushkin.. etc.), það þarf ekki að vera með lágu CL (því lægra CL því dýrara, en þú hefur ekkert með lágt CL að gera í hljóðvinslu og myndvinslu) , en passaðu að hafa það allaveganna DDR400.

ef þú ert að nota þessa tölvu í stúdíó, þá mæli ég með að þú takir annaðhvort Samsung eða seagate disk ef þú tekur harðann disk. það er ekkert gaman að vera með helvítis WD suðið í öllum upptökum.


"Give what you can, take what you need."


wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Fim 24. Jún 2004 19:50

Sammála síðasta ræðumanni.




Pectorian
Fiktari
Póstar: 52
Skráði sig: Mið 23. Jún 2004 23:56
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pectorian » Fös 25. Jún 2004 00:49

Já þetta ætti að vera nokkuð fínt

annars er GT 2004 borðið frá gigabyte líka gott og á fínu verði


Pectorian