8-bita örtölvugrúskarar ?

Skjámynd

Höfundur
Rednex
Nörd
Póstar: 147
Skráði sig: Sun 15. Jún 2003 18:00
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfirði
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

8-bita örtölvugrúskarar ?

Pósturaf Rednex » Lau 21. Nóv 2009 15:04

Daginn

Ég er að pæla hvort það séu einhverjir örtölvukallar hérna á spjallinu. Væri skemmtilegt ef einhvert íslenskt samfélag væri til um þessi mál.

Þar sem ég hafði ekkert snert á þessum hlutum ákvað ég að kaupa mér litla tölvu sem kallast Arduino. Þetta er 8-Bita örtölva með slatta af digital inn og útgöngum en einnig nokkrum analog inngöngum. Hún er forrituð í C og tengist við PC-tölvuna mína í gegnum usb... nokkuð þægilegt :) Það sem mér fannst þessi vél, Arduino Dumelionovae, hafa fram yfir aðrar útgáfur er að þetta virtist vera nokkuð nooba-helt. Bara tengja við usb og hafa gaman. Ég var ekki alveg tilbúinn í þessa venjulegu brennara (eða hvað sem þeir heita) og allt umstangið í kringum þá.

Þess má geta að þessar vélar eru Open-source og getur því hver sem er búið til sína eigin vél eins og þeim líkar best og eru allar upplýsingar til þess á vefnum þeirra http://arduino.cc/ Örgjörvinn í þessum vélum er þokkalega öflugur og geta þær því stjórnað nokkuð flóknum tækjum, prófið endilega að kíkja á youtube og tékka á þeim.

Það væri gaman að heyra í einhverjum sem hefur komið eitthvað nálægt svona vélum, eða líkum, og heyrt hvað þeir hafa gert með þær.


Ef það virkar... ekki laga það !