Ég er að lenda í því að tölvan hjá mér er farin að frjósa nokkrum sinnum á dag. Þetta gerist randomly, hún helst uppi í ca klukkutíma og svo frýs hún. Burt séð frá því hvort ég sé að vinna í henni eða ekki.
Tölvan frýs alveg, get ekki hreyft músina eða notað lyklaborðið (get ekki breytt state á numlock/capslock). Hljóðið frýs einnig og ekkert hægt að gera nema endurræsa hana eða slökkva á henni.
Ég er búnað útiloka að þetta sé stýrikerfismál þar sem vélin á það til að frjósa strax í byrjun startups.
Fyrir tveimur mánuðum síðan átti skjákortið til að ofhitna og skjákortsviftan var að gefa frá sér mikil hljóð, það olli því að vélin slökkti bara á sér. Það gerðist aðalega í leikjum og þegar ég var að horfa á video. Ég taldi mig þó vera búinn að leysa það vandamál þar sem það hafði safnast rykbolti inní skjákortsviftunni sem ég náði að plokka út og skjákortsviftan hætti að gefa frá sér hljóð og vélin hætti að slökkva á sér eftir það. Tölvan hefur verið í fínu standi síðan og ég hef ekki lent í neinum vandræðum þar til núna.
Vélin:
ÖRGJÖRVI - Intel Core 2 Duo, E8400, 3.00 GHz, 1333 MHz, 6 MB, LGA775, OEM
MÓÐURBORÐ - Gigabyte, GA-73PVM-S2H, LGA775/ GeForce 7100/ A&V&GbE/ DVI/HDMI/ µATX
SKJÁKORT - Sapphire, ATI Radeon HD4850, 512 MB, 2DVI/HDCP, PCI-Express
MINNI - SuperTalent DDR2-800, 2 GB, PC6400, DDR2, 800 MHz, 128Mx8 og 240 pin x2
AFLGJAFI - Thermaltake 500 W (W0093RU) Low Noise
HARÐUR DISKUR - SATA 2 - Western Digital (WD5000AAKS) 500 GB Serial ATA 2, 3.0 Gbps (SATA2) 7200 r/min, 16 MB cache x2
DVD - Samsung, SH-S222L/BEBS, 20X Double Layer DVD+/-RW
Einhver með hugmyndir um hvað skref ég eigi að taka næst til þess að komast að rót vandans? Mér finnst margt koma til greina... skjákortið, örgjörvin, minnið, móðurborðið.
Tölva frýs.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Tölva frýs.
Fyrsta gisk, ofhitnun á CPU. Fáðu þér cpu temp monitor software (SpeedFan, Everest, Motherboard Monitor) og fylgstu með temp þar.
Keyrðu bara Full system Diagnostic og stress test með HirensCD eða UBCD, sjáðu hvort það gefur þér e-ð ef þetta er ekki hitavandamál.
Keyrðu bara Full system Diagnostic og stress test með HirensCD eða UBCD, sjáðu hvort það gefur þér e-ð ef þetta er ekki hitavandamál.
Re: Tölva frýs.
AntiTrust skrifaði:Fyrsta gisk, ofhitnun á CPU. Fáðu þér cpu temp monitor software (SpeedFan, Everest, Motherboard Monitor) og fylgstu með temp þar.
Keyrðu bara Full system Diagnostic og stress test með HirensCD eða UBCD, sjáðu hvort það gefur þér e-ð ef þetta er ekki hitavandamál.
Takk fyrir þetta, ég prófa þetta þegar ég kem heim í kvöld.
Re: Tölva frýs.
ByeRing skrifaði:AntiTrust skrifaði:Fyrsta gisk, ofhitnun á CPU. Fáðu þér cpu temp monitor software (SpeedFan, Everest, Motherboard Monitor) og fylgstu með temp þar.
Keyrðu bara Full system Diagnostic og stress test með HirensCD eða UBCD, sjáðu hvort það gefur þér e-ð ef þetta er ekki hitavandamál.
Takk fyrir þetta, ég prófa þetta þegar ég kem heim í kvöld.
Ég setti upp SpeedFan. Core 1 og 2 eru 47-52°C Idle, fara í 67-72°C á full load(með Prime 95 stress test). Finnst þetta óvenjuhátt, setti þetta einmitt upp hérna niður í vinnu líka er með E6550 Core Duo og hann sýnir 30-33°C idle. Finnst samt skrítið hvað SpeedFan sýnir háar tölur á heimavélinni þar sem BIOSin þar sýndi einmitt ~30°C.
Aftur á móti finnst mér ólíklegt að þetta sé vandamálið þar sem tölvan fraus aldrei í full load. Hún fraus hinsvegar seinna um kvöldið þar sem ég var með SpeedFan opin og hann sýndi ~50°C á báða cores.
Ég setti upp Hirens Boot CD og keyrði nokkur test þar. Sá að það byrjuðu að koma villur þegar ég var að skanna annan HD og við það fraus tölvan. Prófaði svo að keyra chkdsk í gegnum windows á þennan HD og tölvan fraus einnig við það. Ég tók því diskinn úr sambandi og prófaði að ræsa vélina og skilja hana eftir í nótt (stýrikerfið er á hinum disknum, þessi umræddi diskur er nánast tómur). Vélin var enþá uppi í morgun þannig að líkurnar eru með því að diskurinn hafi verið að valda þessu.
Þá er bara spurning með þennan disk, ætli það sé nóg að strauja hann?
Og þessar tölur sem ég var að fá í SpeedFan, ætti ég að gera einhverjar frekari ráðstafanir?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Tölva frýs.
Úff, CPUinn hjá þér er að keyra allt allt of heitt. Max temp á E8400 er 72.4° - Myndi fá mér betri kælingu og það sem fyrst. Alltilagi að keyra annað Temp monitor forrit samt samhliða SpeedFan, til að staðfesta tölurnar.
Hvað varðar diskinn myndi ég bara gleyma honum, taka þau gögn sem þú þarft og setjann í ruslið. Þegar HDD byrjar að bila, þá er leiðin bara niður eftir það. Þetta gæti þess vegna verið bad sector sem þú getur einangrað og farið framhjá, en einn bad sector veldur öðrum, o.sv.frv.
Hvað varðar diskinn myndi ég bara gleyma honum, taka þau gögn sem þú þarft og setjann í ruslið. Þegar HDD byrjar að bila, þá er leiðin bara niður eftir það. Þetta gæti þess vegna verið bad sector sem þú getur einangrað og farið framhjá, en einn bad sector veldur öðrum, o.sv.frv.