Flökt í skjávarpa


Höfundur
Greykjalin
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 08:00
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Flökt í skjávarpa

Pósturaf Greykjalin » Þri 28. Apr 2009 09:38

Sælir meistarar..

Ég er með skemmtilega leiðinlega bilun hérna hjá mér sem ég var að velta fyrir mér hvort þið vissuð einhver ráð á.


Bilanalýsing:

Þegar ég tengi tölvu við skjávarpann hjá mér (ASK C170) þá flöktir myndin.
Flöktið lýsir sér þannig að myndin brotnar upp (nokkurnveginn eins og einhver hafi tekið sleggju og lamið í hliðina á skjánum) og verður svo aftur eðlileg. (mjög erfitt að koma þessu í orð en þetta er alls ekki ósvipað því sem Ashton Kutcher upplifði (eða "sá") í myndinni Butterfly Effect í hvert skipti sem hann "kom aftur frá fortíðinni" :) ) Þetta gerist hratt og "brotið" í myndinni er ekki alltaf eins.
Mér finnst eins og "brotið" sé staðsett meira neðarlega og vinstra megin á myndinni en nær samt að einhverju leiti yfir alla myndina.
Það fylgir þessu engin litabjögun.
Svo virðist sem flöktið ágerist með hærri upplausn og það hverfur nánast alveg þegar maður er kominn niður í 800x600
Varpinn er gerður fyrir optimal resolution 1024x768 og þar sést þetta nógu vel til að verða vel pirraður eftir nokkrar mínútur.
Ég er búinn að prófa yfir 20 mismunandi tölvur og skipta margsinnis um kapla.

Varpinn er fastur í loftið og VGA lögnin liggur í veggnum, inn á VGA myndmatrixu og svo aftur til baka og í varpann.
Ég er með nokkra aðra varpa tengda inn á þessa sömu myndmatrixu og þetta kemur ekki fram á neinum af þeim svo mig grunar að þetta sé staðbundið við þennan eina varpa. Ég er búinn að senda matrixuna til viðgerðaraðila en þeir fundu ekkert að henni.

Hafa menn einhverjar hugmyndir eða hafa heyrt um svona vandamál?



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Flökt í skjávarpa

Pósturaf hagur » Þri 28. Apr 2009 10:18

Mér sýnist þú vera búinn að einangra vandamálið við þennan eina varpa, þannig að ég myndi bara skjóta á að hann sé bilaður og/eða að gefa upp öndina blessaður.

Spurning hvort þetta gæti verið bilun í perunni, en peruflökkt er ekkert óþekkt vandamál í skjávörpum. Býður þessi varpi upp á high/low power-mode? (Oft nefnt ECO mode). Ef svo er þá er spurning um að prufa að svissa yfir í low-power mode eða öfugt og sjá hvort það hafi áhrif.

Þetta eru mín 2 cent, án þess að ég sé einhver sérfræðingur í þessum málum.

Þú gætir líka spurst fyrir um á AVS Forum, n.t.t hérna: http://www.avsforum.com/avs-vb/forumdisplay.php?f=68

Þarna fær maður svör við flestum spurningum er varða skjávarpa.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3125
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 455
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Flökt í skjávarpa

Pósturaf hagur » Þri 28. Apr 2009 10:21

Annað sem mér datt í hug, hefur þessi varpi alltaf látið svona þegar hann er tengdur á þennan hátt? Þ.e í gegnum þessa matrixu?

Ef svo er, þá gæti verið að hann sé viðkvæmari fyrir þessu en hinir varparnir, þ.e fyrir löngum VGA snúrum o.þ.h. Spurning um að prufa að tengja hann beint við tölvu með t.d 2 metra VGA snúru og sjá hvort vandamálið sé enn til staðar.




Höfundur
Greykjalin
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 08:00
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Flökt í skjávarpa

Pósturaf Greykjalin » Þri 28. Apr 2009 10:31

Já., mér var búið að detta það í hug að varpinn gæti verið orðinn þreyttur en hef ekki ennþá prufað að skipta um hann. Er ekki með marga svoleiðis á lausu.. :)
Hann hefur ekki alltaf látið svona .. bara undanfarnar 3 - 4 vikur.
Ég hef einusinni lent í þessu á öðrum varpa en það hætti svo eftir nokkra daga og hefur ekki sést síðan..

Mig er farið lúmskt að gruna að hér sé um einhverskonar rafmagnsvandamál að ræða.. Hugsanlega einhver óstöðugleiki sem myndast hér innanhúss. Verst að þá fara mín ráð fljótt að tæmast.. :)

En ég tékka á AVS forum..
Takk fyrir skjótt og gott svar..