Hvaða skjá á ég að fá mer?


Höfundur
Massacre
Nýliði
Póstar: 4
Skráði sig: Þri 29. Apr 2008 19:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Hvaða skjá á ég að fá mer?

Pósturaf Massacre » Þri 29. Apr 2008 19:55

Hvaða skjá á ég að fá mér?

Ég er að leita mér að Lcd eða túbu á bilinu 20-25 þús. Þessi skjár er AÐEINS fyrir leikjaspilun :)
Stærð má ekki vera minni en 19 "




Matti21
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 304
Skráði sig: Fim 01. Nóv 2007 19:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða skjá á ég að fá mer?

Pósturaf Matti21 » Þri 29. Apr 2008 20:09

Ég er með þennan og er nokkuð sáttur. Mun samt eflaust selja hann og fá mér Samsung 24" í sumar en fyrir peningin mundi ég segja að hann og þessi hérna séu sennilega það besta sem þú færð í 22" í dag.
Munurinn á þeim er rosalega lítill, AL2223 er með meira "backlight bleeding" og þessir hátalarar eru gjörsamlega ónothæfir en hann er með 100 meiri í skerpu sem gerir hann aðeins skýrari en AL2216 (er ekki að bera saman spekka hérna, hef séð þá báða hlið við hlið). Ef þú ert oft að spila í dimmu herbergi þá getur backlight bleeding verið ógeðslega pirrandi og þá mundi ég mæla frekar með AL2216.


-Q6600/Thermalright Ultra 120 Extreme/Gigabyte P35-DS3R/4GB Corsair 800Mhz/Nvidia 8600GTS/Corsair HX620/Coolermaster CM690/BenQ G2400W --Hackintosh!--
-Macbook Pro 13" -2010