Ég er að forvitnast...
Ég hef verið að nota mismunandi skrifanlega diska. Ég er að spá hvaða framleiðandi hefur verið bestur eða stöðugastur að ykkar mati, eða semsagt hvað eruð þið að nota í dag og ábyrgist árangur.
Einnig er ég að leita að DVD skrifanlegum og hvaða merki sé það bezta í dag.
(ég var ekki viss hvar á korkana þessi umræða átti að koma en hér er hún allavega )
kv. 1NV4D3R
GEISLADISKAR
b
algengasta dauða orsök skrifaðra diska er ekki eðlilegur elli dauði heldur eru ódýrir CD með lélegri húð ofaná sem á það til að flagna af og við það verður diskurinn auðvitað ólæsilegur. prófaðu að kaupa nokkra diska og klóraðu þá efri hliðina sem á að vera þakin, ef hún flagnar af eða virðist vera hætta á því þá kaupiru þá diska ekki framar. Annars geturðu séð það nokkuð vel að fáranlega ódýrir diskar endast ekki eins vel og dýrir...