Síða 1 af 1

[ÓE] Ráðleggingum með Oculus Link

Sent: Sun 20. Sep 2020 14:48
af ishare4u
Sælir Vaktarar,

Er með Oculus Quest og langar að prufa Oculus Link.
Er því miður ekki með USB-C á vélinni en er með USB-A (USB 3)

Sé að fólk á netinu er að nota bara USB-a to USB-C kapal.
Er einnhver hér sem er að nota þetta og gæti ráðlagt mér með hvaða kapal væri best að kaupa.

Auðvitað væri Oculus link kapallinn bestur en hann er USB-C to USB-C
Móðurborð: Gigabyte X570 AORUS ELITE

Re: [ÓE] Ráðleggingum með Oculus Link

Sent: Sun 20. Sep 2020 15:43
af Skrekkur
Ég hef verið að nota venjulegan USB-A to USB-C Sandstrøm kapal (USB 3.0) sem ég keypti í elko fyrir nokkrum árum.
Hann er samt því miður bara 2 metrar.
Hef gert tilraunir með Usb-c to usb-a millistykki og link kapalinn, en ekki gengið hingað til. Fékk eitt í kísildal sem virkaði bókstaflega í eitt skipti, en svo nær hann ekki að halda usb 3.0 tengingu.

Mátt endilega láta vita ef þú finnur 5 metra kapal sem nær að halda nægum hraða fyrir Oculus linkinn. Held ekkert sérstaklega í vonina, ætla bara að reyna að fá mér móðurborð með usb-c tengi, eða kannski kaupa eitt af þessum notuðu 2080TI kortum sem eru með usb-c tengjum :D

Re: [ÓE] Ráðleggingum með Oculus Link

Sent: Sun 20. Sep 2020 17:04
af Sultukrukka
Virkar fínt með USB 2.0 líka, átti til 5m þannig kapal sem virkaði hnökralaust.

Re: [ÓE] Ráðleggingum með Oculus Link

Sent: Mán 21. Sep 2020 11:15
af GullMoli
Það er slatti sem hefur notað þetta kort, eða sambærilegt, með góðum árangri.
https://www.tl.is/product/dual-port-usb ... s-per-port