Síða 1 af 1

Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Sent: Fim 16. Júl 2020 11:50
af Hjaltiatla
Óska eftir Intel Mini-pc (viftulausa) með 2XGigabit portum (t.d með j1900 cpu).

Skoða allt sem ræður við að keyra þessa Ubuntu router uppsetningu (veit að j1900 ræður við gigabit routing/networking)
ip tables
Bind 9 dns server
isc dhcp server
Wireguard

Re: Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Sent: Fim 16. Júl 2020 23:41
af asgeirbjarnason
Bara að vara þig við, J1900 er ekki með AES-NI stuðningi, svo ef þú ætlar að VPNa eitthvað að ráði myndirðu ekki ná góðu throughputti. Flaskaði einmitt á því sjálfur.

Re: Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Sent: Fim 16. Júl 2020 23:57
af Hjaltiatla
asgeirbjarnason skrifaði:Bara að vara þig við, J1900 er ekki með AES-NI stuðningi, svo ef þú ætlar að VPNa eitthvað að ráði myndirðu ekki ná góðu throughputti. Flaskaði einmitt á því sjálfur.


Mun notast við Wireguard og það notast við ChaCha20 encryption. Tók einmitt eftir því á gömlu j1900 mini pc vélinni sem ég átti að pfsense mældi með AES-NI stuðningi fyrir cpu. Spurning hvort ég lendi í einhverju veseni með að búa til site-to-site tunnel á VPC internet gateway sem ég hafði hugsað mér að tengja við heima setupið í gegnum Wireguard. Lenti í því að j1900 cpu á gömlu vélinni réði ekki við pfsense og gigabit routing/networking (pfsense virðist vera soldið bloated eða stackurinn að nýta hardware illa). Þess vegna ætla ég að fara þessa leið þ.e setja upp Ubuntu server í stað þess að setja upp pfsense og þurfa að blæða í 600$ hardware.
https://www.digitalocean.com/docs/networking/vpc/resources/droplet-as-gateway/

Re: Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Sent: Fös 17. Júl 2020 02:47
af asgeirbjarnason
Ef þú ert að fara að setja upp Linux router, hefurðu tékkað á VyOS? Það er sérhæft router distro sem mér finnst talsvert þægilegra að vinna með en Ubuntu í router hlutverki

Re: Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Sent: Fös 17. Júl 2020 07:18
af kornelius
asgeirbjarnason skrifaði:Ef þú ert að fara að setja upp Linux router, hefurðu tékkað á VyOS? Það er sérhæft router distro sem mér finnst talsvert þægilegra að vinna með en Ubuntu í router hlutverki


Sammála asgeirbjarnason VyOS er algjör snilld
VyOS er Forkað út úr Vyatta sem EdgeOS frá Ubiquity er byggt á
og allt er þetta síðan byggt á Debian :)

K.

Re: Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Sent: Fös 17. Júl 2020 08:38
af Hjaltiatla
Hmmm.. ok, skoða VyOS. lítur vel út :)

Re: Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Sent: Fös 24. Júl 2020 09:38
af Hjaltiatla
Upp - Ennþá að leita að Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Held ég haldi mig við upprunalegt plan að setja upp Ubuntu server á vélina eftir smá lestur um leyfismál á VyOS(free version != Stable version heldur nightly builds).
Eina sem þarfnast einhvers konar management á Ubuntu uppsetningu við og við er Wireguard og ég kann ágætlega við WG-access server (get síðan sett upp fleiri networking tól ef það er í boði á Docker hub).
Edit:Get þá sett upp Ubuntu 20.04 og sudo apt install unattended-upgrades og ég ætti að vera góður allavegana næstu 5 árin án þess að vera uppfæra dolluna handvirkt.

Re: Intel Mini-pc með 2XGigabit portum

Sent: Mán 03. Ágú 2020 10:03
af Hjaltiatla
Bömp

Lokatilraun.

Mun annars einfaldlega redda mér PCI korti með dual NIC og sýndavélavæða router á proxmox host.