Síða 1 af 1
Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 10:15
af roadwarrior
Hæ
Veit einhver hvort það sé einhverstaðar möguleiki á að kaupa litla gúmireim í bænum. Þetta er fyrir litinn rafmagnsmotor og hann sér um að lyfta/opna geisladrif á gamalli fartölvu sem ég er með. Íhlutir eiga þetta ekki
Þvermálið er um 20mm og efnisþykktin er um 1mm.
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 10:45
af Tbot
Athugaðu í Són, hugsanlega ættu reim sem gæti komið í staðinn.
Síðan væri möguleiki hjá Fálkanum eða Landvélum, með gúmmí þéttihringi.
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 10:48
af nonesenze
getur þú ekki bara notað O hring eins og þú finnur í flestum pípulagningar verslunum?
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 11:19
af Tbot
nonesenze skrifaði:getur þú ekki bara notað O hring eins og þú finnur í flestum pípulagningar verslunum?
Vandamálið með marga O hringi er að þeir eru flatir/slettir.
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 11:38
af nonesenze
Tbot skrifaði:nonesenze skrifaði:getur þú ekki bara notað O hring eins og þú finnur í flestum pípulagningar verslunum?
Vandamálið með marga O hringi er að þeir eru flatir/slettir.
er þetta V laga?
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 12:00
af roadwarrior
nonesenze skrifaði:Tbot skrifaði:nonesenze skrifaði:getur þú ekki bara notað O hring eins og þú finnur í flestum pípulagningar verslunum?
Vandamálið með marga O hringi er að þeir eru flatir/slettir.
er þetta V laga?
Nei ferkönntuð
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 14:52
af jonsig
Spurning að þú chekkir á Ísmar, mikið notaðar svona styrktar reimar í halla lasera. Kosta ekki augun úr en örugglega yfir 1000kr
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 21:07
af roadwarrior
Tbot skrifaði:Athugaðu í Són, hugsanlega ættu reim sem gæti komið í staðinn.
Síðan væri möguleiki hjá Fálkanum eða Landvélum, með gúmmí þéttihringi.
Sónn átti ekki til neitt en bentu mér á að sjóða reimina í 100°heitu vatni og sjá hvort það myndi bæta hana eitthvað.
jonsig skrifaði:Spurning að þú chekkir á Ísmar, mikið notaðar svona styrktar reimar í halla lasera. Kosta ekki augun úr en örugglega yfir 1000kr
Ekki slæm hugmynd. Ef í harðbakkan slær þá kíki ég á þá.
nonesenze skrifaði:getur þú ekki bara notað O hring eins og þú finnur í flestum pípulagningar verslunum?
Reyndar bentu þeir hjá Sónn að það mætti nota O hring sem reim. Er búinn að ná mér í álitlegan hring og ætla að skoða það að nota hann. Annars kíki ég í Ísmar
Takk fyrir allar ráðleggingarnar. Ótrúlega oft sem það er hægt að fá ábendingar um svona hluti hér
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 21:48
af brain
ef allt þrýtur, sjóða hana í vatni 3 mín. ( ekki að grínast,)
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 21:55
af roadwarrior
brain skrifaði:ef allt þrýtur, sjóða hana í vatni 3 mín. ( ekki að grínast,)
Nákvæmlega það sem þeir hjá Sónn ráðlögðu mér, hafði aldrei heyrt þetta en hljómar ekki vitlaust. Hún er ósprunginn, bara orðin hálf stirð og stíf. Þeir töluðu um að þetta myndi mýkja hana upp og fríska hana
Re: Er að leita að lítilli gúmíreim
Sent: Mán 04. Maí 2020 22:17
af brain
Jamm maður gerir þetta við reimar sem eru farnnar að stífna.
bæði plötuspilara og tape reimar verða sem nýjar. Er t.d. með um 50 ára reim í mínum spilara, sýð hana 3-4 ára fresti