Síða 1 af 1
[ÓE] Universial AC adapter 100w og uppúr
Sent: Fim 02. Apr 2020 19:31
af dragonis
Það sló út og spennugjafinn fyrir skjáinn dó, líklegast.
Þetta tryllitæki þarf að vera 90-100w min styðja 19v og 5amp.
Ef einhver á svona dót oní skúffu þá væri ég þakklátur, áður en ég fer í að panta þetta að utan. Ef þú ert ekki viss þá sendu á mig frekar línu en að geyma og láta þetta deyja vondum draum oní skúffu eða uppá lofti.
Re: [ÓE] Universial AC adapter 100w og uppúr
Sent: Fim 02. Apr 2020 19:52
af jonsig
Þetta eru stórir spennugjafar, sem maður sér ekki lengur. Hverskonar skjár er þetta??? Besti sénsinn hjá þér hérna á Íslandi er að finna einhvern MeanWell open frame rafeindaspennir hjá ískraft
Re: [ÓE] Universial AC adapter 100w og uppúr
Sent: Fim 02. Apr 2020 20:09
af dragonis
jonsig skrifaði:Þetta eru stórir spennugjafar, sem maður sér ekki lengur. Hverskonar skjár er þetta??? Besti sénsinn hjá þér hérna á Íslandi er að finna einhvern MeanWell open frame rafeindaspennir hjá ískraft
Þetta er í LG 34UC97-S
https://www.lg.com/us/monitors/lg-34UC9 ... de-monitorSá einn 140w í Elko ætla að rúlla með snúruna og skoða hvort hún passi í skjáinn á morgun, ennþá betra ef einhver á þetta til hér
Re: [ÓE] Universial AC adapter 100w og uppúr
Sent: Fim 02. Apr 2020 20:17
af jonsig
Skjárinn er 56.7W í venjulegri keyrslu. Lang auðveldast fyrir þig að snippa tengið af einhverri gamalli lenovo tölvu
Re: [ÓE] Universial AC adapter 100w og uppúr
Sent: Fim 02. Apr 2020 20:25
af dragonis
jonsig skrifaði:Skjárinn er 56.7W í venjulegri keyrslu. Lang auðveldast fyrir þig að snippa tengið af einhverri gamalli lenovo tölvu
Snilld takk fyrir þessa hugmynd, hlýt að getað grafið upp gamalt tæki.