Síða 1 af 1

[ÓE] Liquid metal + delid tool

Sent: Mið 22. Jan 2020 23:32
af addon
Er ekki einhver sem á Thermal Grizzly liquid metal og sér ekki fram á að klára það ?
Væri ekki verra ef viðkomandi ætti líka delid tool sem væri að þvælast fyrir honum
Takk takk

Re: [ÓE] Liquid metal + delid tool

Sent: Fim 23. Jan 2020 17:17
af addon
Ég er btw alveg til í að borga fyrir þetta, segjum 2.500 kall fyrir bæði. annars kostar orðið lítið meira fyrir mig að pannta þetta :)

Re: [ÓE] Liquid metal + delid tool

Sent: Fim 23. Jan 2020 19:40
af jonsig
Gott kælikrem er ekki mikið verri kostur en LQ, ég keypti minn delidder á lítið bara á ebay.

Re: [ÓE] Liquid metal + delid tool

Sent: Fim 23. Jan 2020 20:30
af addon
jonsig skrifaði:Gott kælikrem er ekki mikið verri kostur en LQ, ég keypti minn delidder á lítið bara á ebay.

Ahh takk fyrir þetta... ætti kannski að skoða hver munurinn er á Lq metal og kryonaut, sem ég á. ef það er bara 1-2 ° væri það alveg góð pæling.
Annars var ég einitt búinn að finna ódýra delidders, var bara að freista þess að enhver ætti þetta fyrir klink þar sem fólk er líklegast bara að nota þetta einu sinni.

Re: [ÓE] Liquid metal + delid tool

Sent: Fim 23. Jan 2020 20:56
af pepsico
Þó það sé ekki mikill munur (2°-4°) á liquid metal og góðu hitaleiðandi kremi milli IHS plötunnar og kælingarinnar þá er samt svakalegur munur (10°-14°) eftir því hvort maður notar liquid metal eða gott hitaleiðandi krem innan í örgjörvanum á milli kísilsins og IHS plötunnar.

Hvaða örgjörva ætlarðu að delidda?

Re: [ÓE] Liquid metal + delid tool

Sent: Fim 23. Jan 2020 21:28
af addon
pepsico skrifaði:Þó það sé ekki mikill munur (2°-4°) á liquid metal og góðu hitaleiðandi kremi milli IHS plötunnar og kælingarinnar þá er samt svakalegur munur (10°-14°) eftir því hvort maður notar liquid metal eða gott hitaleiðandi krem innan í örgjörvanum á milli kísilsins og IHS plötunnar.

Hvaða örgjörva ætlarðu að delidda?


Jebb var að tékka... það var sirca 3-5° munur a stock og kryonaut... en alveg 13-16° á stock og liquid metal (milli örrans og IHS)
Og þetta er 8700k... verð að brjóta 5 ghz múrinn ;)
Edit: er með hann í 4,7 all cores og undirvoltaðann. Hann er í svona 70 ° þannig, sem gefur ekki mikið headroom fyrir overclocking
Edit2: var að fatta að ég sagði basically það sama og þú =D>