Síða 1 af 1

[ÓÉ] i7 3770k eða svipuðum 1155 öbba

Sent: Fim 02. Ágú 2018 11:43
af eplakongur
Ég er að nota i5 3750k og langar í upgrade en á ekki efni á örgjörva, móðurborði og minni, þar sem ég myndi þá væntanlega kaupa ddr4 móðurborð.

Get auðvitað borgað fyrir örgjörvan og líka látið gamla minn upp í ef áhugi er fyrir því.

Ef einhver er með önnur tips hvernig ég gæti upgradeað tölvuna mína á ódýran hátt fyrir tölvuleiki þá endilega bara henda því í þráðinn :D

Er að nota gtx 970 OC, 16gb ddr3 1600mhz, i53570k (með hann í 4.5ghz), 144hz benq.

Spila aðallega Overwatch og fæ öðru hverju smá fps drop úr 150 fps í sirka 90 sem pirrar mig mjög mikið, með öll gæðin í low þannig held það sé örgjörvinn að bottlenecka.

Takktakk

Re: [ÓÉ] i7 3770k eða svipuðum 1155 öbba

Sent: Fim 02. Ágú 2018 11:45
af eplakongur
btw á maður að treysta því að kaupa svona notað á ebay eins og https://www.ebay.com/itm/Intel-Core-i7- ... 70k.&rt=nc
?? Hefur einhver reynslu á því? Hvað finnst ykkur?

Re: [ÓÉ] i7 3770k eða svipuðum 1155 öbba

Sent: Fim 02. Ágú 2018 15:31
af Squinchy
Búinn að prófa að yfirklukka 3570k? Til tonn af how to leiðbeiningum fyrir þennan chip, mjög easy, svo lengi sem þú ert ekki að nota stock kælinguna

Anars hef ég verslað Xeon CPU af ebay og hann virkaði

Re: [ÓÉ] i7 3770k eða svipuðum 1155 öbba

Sent: Fim 02. Ágú 2018 15:41
af littli-Jake
Þetta er eitthvað skrítið. Þessi örri ætti að éta overwatch og recommended GPU er 660.
Hvernig eru hitatölurnar?

Re: [ÓÉ] i7 3770k eða svipuðum 1155 öbba

Sent: Fim 02. Ágú 2018 18:37
af eplakongur
Squinchy skrifaði:Búinn að prófa að yfirklukka 3570k? Til tonn af how to leiðbeiningum fyrir þennan chip, mjög easy, svo lengi sem þú ert ekki að nota stock kælinguna

Anars hef ég verslað Xeon CPU af ebay og hann virkaði


Jú er með hann í 4.5GHz

littli-Jake skrifaði:Þetta er eitthvað skrítið. Þessi örri ætti að éta overwatch og recommended GPU er 660.
Hvernig eru hitatölurnar?


Bæði öbbin og skjákortið fara hámark í kringum 72°C.
Leikurinn helst í sirka 150fps-um nánast mest allan tíman en kemur bara fyrir í nokkrar sekúndur að hann fps droppi niður í 90-100.

Re: [ÓÉ] i7 3770k eða svipuðum 1155 öbba

Sent: Fös 03. Ágú 2018 12:56
af littli-Jake
Já þetta er eitthvað spes. Spurning fyrir þig að prófa að uppfæra drivers og sjá hvort það hjálpar.