Síða 1 af 1

Óskar eftir tölvuslátri fyrir server

Sent: Lau 21. Apr 2018 21:03
af Viktor
Var að taka til og henti fjórum tölvukössum á haugana.

Var aðeins of fljótur á mér og hefði átt að scrappa hlutina úr þeim.

Vantar því ódýra eða gefins hluti í vél sem verður notuð til að prufa að setja up FreeNAS server.

Ég er með turn, aflgjafa og diska en gæti vantað:

Móðurborð með SATA tengjum
Dual core örgjörva eða betra
Minni 4GB eða 8GB

[-o<

Re: Óskar eftir tölvuslátri fyrir server

Sent: Lau 21. Apr 2018 21:56
af ZiRiuS
Núna langar mig í slátur :(

Re: Óskar eftir tölvuslátri fyrir server

Sent: Lau 21. Apr 2018 23:17
af GuðjónR
ZiRiuS skrifaði:Núna langar mig í slátur :(

Lifrapylsu eða blóðmör?

Re: Óskar eftir tölvuslátri fyrir server

Sent: Lau 21. Apr 2018 23:22
af ZiRiuS
GuðjónR skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:Núna langar mig í slátur :(

Lifrapylsu eða blóðmör?


Lifrapylsu fyrst (bæði hún og blóðmörin soðin samt), svo blóðmör steikta á pönnu daginn eftir... fæ í alvöru vatn í munninn við að skrifa þetta :D

Re: Óskar eftir tölvuslátri fyrir server

Sent: Sun 22. Apr 2018 00:17
af Mossi__
Ég hef aldrei verið mikill fan af steiktu slátri.

Best kalt með grjónagraut.

Karl faðir minn smyr stundum blóðmörina með smjöri og osti. Held að það sé einhver meistaragráða þar á bakvið. Hef sjálfur aldrei smakkað það, en hann sver að það er besta leiðin til að boeða slátur.

Re: Óskar eftir tölvuslátri fyrir server

Sent: Sun 22. Apr 2018 01:22
af ZiRiuS
Sjit Mossi þú ert að slátra slátrinu með að borða það ekki borið fram soðið eða stekt.

Btw, uppáhalds off-topic umræðan mín so far. Sorry Sallarólegur :D

Re: Óskar eftir tölvuslátri fyrir server

Sent: Mán 23. Apr 2018 11:32
af Viktor
:arrow:

Re: Óskar eftir tölvuslátri fyrir server

Sent: Mán 23. Apr 2018 15:20
af Mossi__
Fíla ekki mörina þegar slátrið er soðið og það er þyngra í magan og verð hálfbumbult af því. Finnst alltaf þránarbragð sf steiktu. Plús, er á sykurlausu fæði þannig að þetta að setja sykur á steikt slátur er ekki í boði :)

Such is life.