Síða 1 af 1

Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Þri 15. Ágú 2017 19:52
af g0tlife
Ég er að velta því fyrir mér hvaða tölvu maður ætti að kaupa sem mundi duga allavega 3 ára háskólanám í viðskiptafræði með einu ári í tölvunarfræði.

tölvan þyrfti helst að vera með skjástærð 14 - 15 tommu, gott minni og hraðan disk. Þetta væri einungis notað sem skólavél þannig að stærð á harðadisk skiptir ekki máli.

Ég hef aldrei verið í fartölvu bransanum en það sem ég leitast eftir er þunn og hröð vél.

Kostnaður sirka 150.000 til 250.000, langtíma fjárfesting

Takk fyrir :megasmile

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Þri 15. Ágú 2017 19:55
af worghal
laptop.is ?

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Þri 15. Ágú 2017 20:42
af Kristján Gerhard
Notuð Lenovo X1 eða Dell Latitude E7450 af ebay fyrir mitt leiti.

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Þri 15. Ágú 2017 20:53
af Olli
Macbook Pro eða Dell XPS

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Þri 15. Ágú 2017 22:00
af Klemmi
Að mínu mati skiptir mestu máli fyrir skólatölvu að hún sé létt og með góða rafhlöðuendingu, auk þess sem þú færð þér auðvitað ekki tölvu sem er ekki með SSD disk :)
Sjálfur myndi ég alveg skoða tölvur niður í 13,3". Í háskólanum flakkaði ég á milli 4 tölva, 14", 12", 2x 13,3", 14" fannst mér full stór og hlunkaleg, 12" var of lítið, 13,3" var mátulegt.

Góð upplausn í skjá er stór kostur, þ.e. svo það sé temmilega þægilegt að vinna með tvö skjöl hlið við hlið á skjánum.

Að því sögðu, þá myndi ég skoða eftirfarandi tölvur:
Tölvutækni - 134.900kr. - Lenovo IdeaPad i5, 8GB, 256GB SSD, 1,2kg og 8klst rafhlaða
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=3222
Ef hún bilar, þá heyrirðu bara í Dr. Gunna.

Computer.is - 126.900kr. - Asus Zenbook Core M, 8GB, 512GB SSD, 1,3kg og 12klst rafhlaða
https://www.computer.is/is/product/fart ... -256ssd-si
ATH. gæti verið með US lyklaborði... sem væri dealbreaker fyrir mér
EF hún er með US, þá myndi ég skoða næsta bæ við hjá Att:
https://www.att.is/product/zenbook-ux31 ... d-skja-ssd

Sjálfur tæki ég Lenovo framyfir Asus, þar sem ég geri ráð fyrir að Lenovo færi í ábyrgðarviðgerð hjá Nýherja ef eitthvað kemur upp á, sem eru með alveg fyrirtaks verkstæði, Asus viðgerð tæki nokkuð örugglega lengri tíma (einhverjar vikur).


Svo ef þú átt nóg af pening, þá geturðu skoðað þessa, svona af því bara:
https://www.computer.is/is/product/fart ... b-512-w10p

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Þri 15. Ágú 2017 22:15
af Glazier
Ég ætla ekki að fullyrða hvað sé best en mig langaði í solid fartölvu, netta og öfluga og endaði eftir miklar pælingar á að fá mér Dell XPS 13 með i7, 16gb ram og 500gb SSD.
Finnst hún algjör snilld, mjög sterkbyggð, þunn og eins lítil umgjörð og hægt er í kringum 13" skjá, ég tók hana með dýrari skjánum afþví ég vildi upplausnina fyrir myndvinnslu en ég nota snertiskjáinn aldrei, batterýið endist og endist, á víst að vera enn betra með 1080p skjánum :)

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Þri 15. Ágú 2017 22:40
af peer2peer
Lenovo Thinkpad, Macbook Pro eða Dell XPS.

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Þri 15. Ágú 2017 23:42
af Baldurmar
Ég er búinn með frumgreina námið og 3 ár í tölvunarfræði. Keypti mér Lenovo S400 á 90 þúsund árið 2013 og hef notað hana síðan í gegnum allt námið, setti í hana SSD og meira minni aðeins seinna. Hef ööörsjaldan fundið fyrir því að það væri gott að hafa öflugri tölvu, en næstum aldrei.
2 áfangar í tölvunarfræðinni sem að notuðu .NET (Visual Studio) helst þar sem að maður hefði viljað hafa stærri skjá/öflugri CPU.


P.S ég er með sæmilega öfluga turn tölvu heima, en það er samt aðallega skjárinn þar sem að mér fannst vera hjálpa mér með það. Notaði t.d fartölvuna stundum með 24" skjá sem var mjög þægilegt.

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Mið 16. Ágú 2017 00:15
af Skuggasveinn
Ég get mælt með Surface Book, algerlega brilliant með háskólanáminu!

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Mið 16. Ágú 2017 09:19
af Viktor

Re: Besta fartölvan fyrir háskólanám ?

Sent: Fim 17. Ágú 2017 13:19
af codec
Ég myndi taka Dell XPS sem er með æðislegum skjá eða eitthvað svipað frá Lenovo