Langar þig ekki í R9 290 non-X? Á nefninlega tvö svoleiðis sem gætu farið að losna.
Annað er Gigabyte með Windforce kælingu á meðan hitt er ATI Club3D.... eitthvað merki sem ég hef aldrei heyrt um áður.
Í keyrslu er Windforce kortið 10° kaldara en mig grunar að það hafi eitthvað með viftu hraðann að gera,
ég hef bara aldrei athugað með það, letinginn sem ég er. Samkvæmt AMD Radeon Settings þá virðist ekkert vera að Fan Speed, bæði eru í kringum 30%... Ætli önnur kælingin sé ekki bara verri en hin, það er eina útskýringin sem ég hef fyrir þessu, svo mikið verri að það muni heilum tíu gráðum.
Ef þú er eitthvað skeptískur útí það að það vanti X'ið, þá er voðalega lítill, ef einhver oft á tímum, munur á Benchmarks á þessum kortum; R9 290 og R9 290X
Ef þú verður ennþá á annarri felguni, bíðandi eftir korti eftir mánaðarmót, þá er aldrei að vita hvort ég skipti ekki þessum kortum tvem á móti smá pening
Bara svona að láta þig vita af mér, ef þig skyldi langa í tvö, ef svo, endilega vera í bandi eftir mánaðarmót, þegar ég verð búinn að fá mér GTX1080
!