Síða 1 af 1

[ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Lau 17. Okt 2015 17:24
af décembre
Góðan daginn.

Ég á turn sem er kominn þó nokkuð til ára sinna en hann virkar ágætlega fyrir utan ónýtt skjákort. Turninn hafði ég hugsað mér að nota í Battlefront II og GTA5, Ég er tilbúin að borga 15-20þúsund kr. en ég skoða svosem allt sem gæti passað vel í tölvuna. Það er mikill plús ef að skjákortið er hljóðlátt.
Meðfylgjandi eru upplýsingar um tölvuna einsog hún er í dag

Kassi: CoolerMaster Elite 430 (keyptur í Att.is)
Aflgjafi: SL-700 (Þetta er það nýjasta í tölvuni, held að þetta ráði við flest skjákort, keyptur fyrir 3 árum.)
Móðurborð: Gigabyte P35-DS3 (775 socket)
Örgjörvi: Intel Core 2 Quad Q6600 2,4Ghz - Aldrei verið OC'aður.
Örgjörvakæling: OCZ Vanquisher
Vinnsluminni: 6GB DDR2 800 (400mhz / 5-5-5-18)


Mbk, Décembre

Edit: Uppfærði kröfurnar. GTAV er kröfuharðari en ég hélt og GTX750 er því ekki nóg.

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Lau 17. Okt 2015 17:43
af darkppl
PCI-E er staðall sem öll skjákort í dag nota allanvegana seinustu 11 ár.
og til að spila td Star Wars battlefront þarftu minstakosti þessi kort til að geta keyrt leikinn.
Graphics card (NVIDIA): nVidia GeForce GTX 660 2GB
Graphics card (AMD): AMD Radeon HD 7850 2GB

og gangi þér vel að finna kort ^^

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Lau 17. Okt 2015 17:52
af décembre
darkppl skrifaði:PCI-E er staðall sem öll skjákort í dag nota allanvegana seinustu 11 ár.
og til að spila td Star Wars battlefront þarftu minstakosti þessi kort til að geta keyrt leikinn.
Graphics card (NVIDIA): nVidia GeForce GTX 660 2GB
Graphics card (AMD): AMD Radeon HD 7850 2GB


Jæja öll tæknikennsla er velþeginn. Ágætt er að geta notast við þessi viðmið. Þó mun ég að endingu bera öll hugsanleg kaup upp við áðurnefndan tækknivæddari vin minn. Hann ætti frekar að standa í þessu heldur en ég, en hann ber fyrir sig leti einsog honum einum er vant.

darkppl skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=66803&p=608286&hilit=670#p608286
gætir prófað að tala við hann.
og gangi þér vel að finna kort ^^


Fjandinn, þráður þessi ber yfirskriftina "SELT" og því fátt sem ég get aðhafst þar.

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Lau 17. Okt 2015 18:02
af darkppl
já afsakið þetta þessvegna tók ég það út sá það ekki mín mistök.

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Lau 17. Okt 2015 18:24
af Sennapy
Blessaður, ég er með eitt Sparkle Geforce GTX 470 skjákort að rykfalla hér uppí hillu :) Hér eru specs um það: http://www.geforce.com/hardware/desktop-gpus/geforce-gtx-470/specifications
Mynd

Þetta kort hefur dugað mér fínt í Dota 2, en mun líklega ekki ráða vel við nýja Battlefront. Það hefur PCI express tengi og kassinn þinn rúmar það. Athugaðu samt hvort að aflgjafinn þinn hafi ekki örugglega tvö 6-pinna PCIe tengi. Ég er ekki að ímynda neina stóra upphæð fyrir það, kannski 3þús?

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Lau 17. Okt 2015 23:55
af Galaxy
Er með AMD Radeon HD 7770. PM ef þú hefur áhuga

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Þri 20. Okt 2015 14:01
af décembre
Öllum hefur verið svarað sem sýnt hafa áhuga en ekki hefur neitt fundist.

Leitin heldur áfram. Skjákortið þarf að ráða við battlefront II, það er skilyrði.

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn (helst GeForce 750Ti)

Sent: Mið 21. Okt 2015 09:08
af Alfa
Það eru allavega 3stk 670 gtx kort hérna á vaktinni til sölu, fyrir svona blower útgáfu finnst mér eðlilegt verð 15-18 þús persónulega og þú ert að fá 760 - 960 gtx performance nánast. Sem eru helmingi dýrari.


viewtopic.php?f=11&t=66894

viewtopic.php?f=11&t=67231

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn (helst GeForce 750Ti)

Sent: Fös 23. Okt 2015 15:25
af décembre
Leitin heldur áfram. Styttist í Battlefront!

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn (helst GeForce 750Ti)

Sent: Fös 23. Okt 2015 16:44
af methylman
Er með MSI 750TI tilboð ?

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Fös 23. Okt 2015 18:36
af décembre
Allir hafa fengið svör eins fljótt og unnt er. Uppfærði þráðinn, GTA5 í high settings kallar á betra kort en ég hélt.

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Lau 24. Okt 2015 13:31
af Alfa
Ehhh þú nefnir 15-20 þús, þú færð ekki öflugra kort en 670-760 gtx fyrir þann pening. Allavega ekki sem er í boði nú þegar hér.

Ágætis grein um efnið

http://www.eurogamer.net/articles/digit ... attlefront

Re: [ÓE]Skjákorti í miðaldra turn

Sent: Mán 26. Okt 2015 23:01
af kjartank
Er með GTX 760 sem ég læt fara á 20þ ef þú hefur áhuga :)