Síða 1 af 1

Komið; OE skjákorti sem uppfærslu á GeForce7600GS

Sent: Lau 19. Sep 2015 13:17
af semper
Tölva stráksa er ekki með allt það nýjasta.

DDR2 minni 6 GB 2x2 og 2x1
Q6600 @ 2,4 örri
Aflgjafinn er 350W það þyrfti væntanlega að uppfæra hann lika

Skv Windows experience monitor þá er skjákortið það allra slakasta í setuppinu. Held það sé hægt að fá miklu betra kort (þó það sé frekar gamalt og fyrir lítinn pening). Er einhver með eldra/ódýrt kort á lausu, þó mun betra en 7600GS?

Hann er staddur á Reyðarfirði ef einhver er í grennd

Re: Komið; OE skjákorti sem uppfærslu á GeForce7600GS

Sent: Fös 25. Sep 2015 19:02
af bteddi
100% Mæli með að þú uppfærir allt.
Þú ert að eyða meira með að uppfæra svona gamlan búnað.
Samsung galaxy S4 er öflugri en þessi tölva.

Svo er alltaf spurningin hvað ertu að nota vélina í?
Vafrari, torrent, horfa nokkrar myndir, word, excel, tölvupóstur?

mynd og hljóðvinnsla?
Server?
Tölvuleikir?

Re: Komið; OE skjákorti sem uppfærslu á GeForce7600GS

Sent: Fim 08. Okt 2015 11:36
af aronjakob
Er með notaðan 560ti sem hefur reynst mér mjög vel. Getur spilað td skyrim í botni 1080p 60fps ef engin mod eru. Leikir eins og league of legends er svokölluð kökuganga.
Þetta kort er eiginlega eins og 750ti í afkastagetu sem selst á 25k.
Er reyndar í bænum, en þú getur fengið hann á 15 kýr.
Kv Aron

Re: Komið; OE skjákorti sem uppfærslu á GeForce7600GS

Sent: Fim 08. Okt 2015 12:03
af aronjakob
Vildi bæta við að 7600gs er virkilega gamalt kort, og kortið mitt er 26x hraðara TUTTUGU OG SEX SINNUM, samhvæmt passmark.com
Vildi líka bæta við að örgörvin þinn er ekki lélegri en galaxy s4, teddi klárlega að tala með rassinum
kv Aron