Síða 1 af 1

Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Fös 17. Júl 2015 11:08
af tobbibraga
Mig vantar 500GB SSD á góðu verði má vera stærri en ekki minni, endilega sendið mér einkaskilaboð ef þið eruð með svona handa mér.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Fös 17. Júl 2015 11:52
af bteddi
why?
Mæli með að þú kaupir þér 1 SSD 120 + 2TB HDD.
ef þú er mjög lélugur að flokka stýrikerfið frá storage .. fáðu þér 2TB hybrid svokölluðu SSHD
þarft ekki meira en 120 SSD
Ef þú ert að hugsa þér SSD flakkara... þá er það annað mál.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Fös 17. Júl 2015 12:03
af Dúlli
120 er ekkert, 250Gb rétt sleppur. 500Gb er góð stærð, ef maður spilar tölvuleiki, leikir í fara næstum í 100Gb leikur, til dæmis gta 60Gb og fullt af odrun leikjum.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Fös 17. Júl 2015 12:13
af benderinn333
eg er með 180gb ssd guð hvað ég myndi óska að hann væri 500+ :)

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Fös 17. Júl 2015 13:05
af Jonssi89

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Fös 17. Júl 2015 14:55
af tobbibraga
Ég ætla að setja þennan disk í fartölvu til að hressa aðeins uppá hraðan á henni

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 08:45
af tobbibraga
Er enginn með SSD handa mér :)

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 20:07
af Hannesinn
Dúlli skrifaði:120 er ekkert, 250Gb rétt sleppur. 500Gb er góð stærð, ef maður spilar tölvuleiki, leikir í fara næstum í 100Gb leikur, til dæmis gta 60Gb og fullt af odrun leikjum.

Hvaða bull er þetta? 120GB fyrir stýrikerfi er drullunóg og leikirnir á stærri mekanískan disk, og það mun stærri en 500GB. 500GB diskur fyrir leikjasafnið hrekkur alveg jafnskammt og 120GB diskurinn, held að steam, origin og uplay möppurnar mínar slagi hátt upp í 1,5TB. Þessar sekúndur sem leikurinn er hraðari í gang eru engan veginn þess virði að kaupa SSD fyrir, nema maður hafi nákvæmlega ekkert betra við aurinn að gera.

Ontopic... þá gætirðu athugað þetta. -> viewtopic.php?f=11&t=66171

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 20:21
af Dúlli
Hannesinn skrifaði:
Dúlli skrifaði:120 er ekkert, 250Gb rétt sleppur. 500Gb er góð stærð, ef maður spilar tölvuleiki, leikir í fara næstum í 100Gb leikur, til dæmis gta 60Gb og fullt af odrun leikjum.

Hvaða bull er þetta? 120GB fyrir stýrikerfi er drullunóg og leikirnir á stærri mekanískan disk, og það mun stærri en 500GB. 500GB diskur fyrir leikjasafnið hrekkur alveg jafnskammt og 120GB diskurinn, held að steam, origin og uplay möppurnar mínar slagi hátt upp í 1,5TB. Þessar sekúndur sem leikurinn er hraðari í gang eru engan veginn þess virði að kaupa SSD fyrir, nema maður hafi nákvæmlega ekkert betra við aurinn að gera.

Ontopic... þá gætirðu athugað þetta. -> viewtopic.php?f=11&t=66171


Það er búið að senda honum þennan link, comment nr 3.

Annars finnst mér 120Gb vera allt allt of lítið, 250Gb sleppur, þetta á ekki bara við um leiki, til dæmis ef maður er að vinna í photoshop, autocad og svo forritum er þetta oft life saver.

Windows 8.1 í dag með öllum updates er hátt í 50-60Gb minnir mig og þá áttu bara eithver 50Gb eftir.

En back on topic, hann vill 500Gb og þá kaupir hann 500Gb.

Og ef hann kaupir þennan evo er ódýrara fyrir hann að fara í Computer.is og kaupa þennan http://www.computer.is/is/product/hardu ... ng-evo-850 tveggja ára ábyrgð og kostar 10,- krónum minna :happy

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 21:51
af pepsico
Dúlli skrifaði:Windows 8.1 í dag með öllum updates er hátt í 50-60Gb minnir mig og þá áttu bara eithver 50Gb eftir.


Nú er ég ekki með 8.1 uppsett hjá mér á neinni vél en ég veit að þetta getur ekki mögulega staðist.
Windows 8.1 væri að hámarki 30GB með öllum updates og líklegar 22-24GB eftir því hvort þetta er 32bit eða 64bit.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 22:05
af Dúlli
Veit ekki hvernig þetta telur en seinast þegar ég gerði frest install var þetta nálægt 30-40Gb og það er ár síðan og haugur af updates búið að bætast ofan á þetta.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 22:15
af pepsico
Dúlli skrifaði:Veit ekki hvernig þetta telur en seinast þegar ég gerði frest install var þetta nálægt 30-40Gb og það er ár síðan og haugur af updates búið að bætast ofan á þetta.


Ferskt install af Windows er ekki 30-40GB.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 22:16
af Dúlli
Þetta var það hjá mér, En ef þú vilt þræta um þetta máttu senda mér skilaboð. Ætla hér ekki að stela þræðinum.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 22:57
af pepsico
Dúlli skrifaði:Þetta var það hjá mér, En ef þú vilt þræta um þetta máttu senda mér skilaboð. Ætla hér ekki að stela þræðinum.


Mér finnst það mikilvægur punktur í umræðu um hversu stóran disk maður þarf hversu mikið pláss stýrikerfið mun taka.

Ferskt Windows install hjá þér var ekki 30-40GB neitt frekar en að Einar frændi minn gerði milljón armbeygjur.

Þú ert líka rosalega viss í þinni sök miðað við mann sem færði sig strax úr 50-60GB "minnir þig" yfir í 30-40GB um eitthvað sem gerðist fyrir ári. Ojæja.
Ég bið eigendur annarra söluþráða afsökunar að vera að bumpa þennan en ég bara vil ekki að rangfærslur standi óleiðréttar.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Sun 19. Júl 2015 23:02
af Dúlli
Ertu að grínast, ég sagði, að ég gerði frest install fyrir 1 einu og þá var stýrikerfið eins og það væri 30-40Gb, núna einu ári síðar líður manni eins og það sé orðið 50-60Gb eftir allar uppfærslur sem microsoft hefur verið að dæla í mann.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Mán 20. Júl 2015 08:37
af Tiger
Ef þráðeiganda langar í 500GB eða stærri disk í fartölvuna sína þá bara langar hann það.

Hvort sem það henntar ykkar tölvum eða áherslum skiptir bara engu máli.... ON TOPIC.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Mán 20. Júl 2015 09:55
af tobbibraga
Ég er með fartölvu og í henni er víst bara pláss fyrir 1 disk og ég er með nú þegar 300gb en langar í aðeins meira pláss og hraða, en það er alveg óþarfi að vera að þræta og einhver leiðindi :) öll dýrinn í skóginum eiga að vera vinir ;)

En annað hafiði vaktarar prufað svona græju? ég nota CD drifið ALDREI þannig að það má fara ef svona myndi virka
http://www.ebay.com/itm/2nd-Second-HDD- ... 43ae107ca5 þá gæti ég líka verið með lítinn SSD og fengið mér stærri HDD í staðinn sem geymslu :)

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Mán 20. Júl 2015 09:57
af Dúlli
tobbibraga skrifaði:Ég er með fartölvu og í henni er víst bara pláss fyrir 1 disk og ég er með nú þegar 300gb en langar í aðeins meira pláss og hraða, en það er alveg óþarfi að vera að þræta og einhver leiðindi :) öll dýrinn í skóginum eiga að vera vinir ;)

En annað hafiði vaktarar prufað svona græju? ég nota CD drifið ALDREI þannig að það má fara ef svona myndi virka
http://www.ebay.com/itm/2nd-Second-HDD- ... 43ae107ca5 þá gæti ég líka verið með lítinn SSD og fengið mér stærri HDD í staðinn sem geymslu :)


Mikið rétt :happy

Þessi græja er tær snild, hvernig tölvu ertu með ? seinast þegar ég skoðaði þetta var tölvutek með mikið úrval.

Bætt Við :

https://tolvutek.is/vara/owc-fartolvu-h ... drifs-holf bara reyndar ef þú vilt borga handlegg og fá þetta strax. ](*,)

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Mán 20. Júl 2015 09:59
af tobbibraga
Ég er með HP Elitebook 8560p

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Mán 20. Júl 2015 10:03
af Dúlli
Hér er eitt stk á http://www.start.is/index.php?route=pro ... search=2.5 3.990

Mig minnir að þetta á allt að vera standar size á þessu öllu.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Mán 20. Júl 2015 10:28
af tobbibraga
Takk fyrir þetta... ætla að fara og kíkja á þetta :)

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Mán 20. Júl 2015 10:31
af Dúlli
Örruglega sniðugt að taka tölvunna bara með þér í start og sjá hvernig þetta passar.

Re: Óska eftir 500GB eða stærri SSD

Sent: Mán 20. Júl 2015 11:03
af tobbibraga
já ætla að gera það :) það borgar sig að vera viss um að þetta passi :)