Síða 1 af 1

AST Premium 386

Sent: Mið 18. Jún 2014 18:07
af snati
Sælir félagar,
Ég er að basla við að reyna að fá þessa tölvu til að ræsa sig en fæ þetta: "Error Initializing Hard Drive Controller" HD controllerinn er á EISA korti en ekki á mb eins og á nýrri tölvum. Mig grunar að það sé kortið frekar en diskurinn sem er bilað. Þetta er 20 ára+ gömul tölva sem hefur virkað ágætlega þar til nýverið. Er einhver hér sem á svona antik controller kort?