Síða 1 af 1

Hvar er hægt að kaupa USB female í Headphone jack male

Sent: Fös 03. Jan 2014 18:58
af Beistzz
Var að spá fyrir USB heyrnartól svo ég get notað þau í venjuleg headphone jack

Re: Hvar er hægt að kaupa USB female í Headphone jack male

Sent: Fös 03. Jan 2014 19:49
af Tesy
Mynd

Meinaru svona? Getur kíkt í Íhlutir og checkað hvort að þeir séu með svona.
Annars er ekkert mál að finna einn inná ebay.
EDIT: Var að lesa reviews inná Amazon og þar segja fólk að þetta virki ekki ef þú ætlar að tengja þetta við MP3 spilara/síma/tölvur eða eh þannig tæki.

Re: Hvar er hægt að kaupa USB female í Headphone jack male

Sent: Fös 03. Jan 2014 19:50
af Viktor
Eru USB headphones ekki digital? Hefði haldið að þau notuðu ekki sama merki og jack, annars hef ég ekki kynnt mér það. Mini jack er allavega analog merki.

Re: Hvar er hægt að kaupa USB female í Headphone jack male

Sent: Fös 03. Jan 2014 21:26
af Saber
Þetta litla "breytistykki" þyrfti þá að taka við analog hljóði, breyta því í digital, koma því pakkaform fyrir "hljóðkortsdriver" og síðast en ekki síst að vera með stuðning við þessi tilteknu USB heyrnatól sem þú ert með.

Það sem fólk áttar sig ekki á með þessi USB "heyrnatól" er að þetta er í raun "head-mounted" USB hljóðkort með áföstum hátölurum.

Re: Hvar er hægt að kaupa USB female í Headphone jack male

Sent: Fös 03. Jan 2014 21:49
af upg8
Heyrnatólin eru analog og því hægt að tengja framhjá áfasta hljóðkortinu... Ef þú ert ekki laginn með lóðbolta þá gætir þú tengt það og fórnað hljóðkortinu, annars gætir þú kannski tengt þetta öðruvísi ef þú ert með mad skillz :)