Síða 1 af 1

[ÓE] PS3 Fjarstýringu/m

Sent: Mán 30. Des 2013 12:24
af chaplin
Þar sem menn virðast vera losa sig við Playstation 3 tölvurnar sýnar, langaði mig að ath. hvort e-h vildi selja eina tvær fjarstýringar. Verða að vera í góðu ástandi + góða rafhlöðu.

Sendið PM.

Re: [ÓE] PS3 Fjarstýringu/m

Sent: Mán 30. Des 2013 14:34
af win8w
Ég á eitt stk. slíka fjarstýringu, keypt fyrir innan við mánuði síðan í Elko. Þetta er stýring framleidd af Sony, ekkert eftirhermu-dót. Nóta fylgir að sjálfsögðu.
Ástæða fyrir sölu svona fljótt? Ég keypti mér bæði FIFA 2014 + stýringu þar sem ég kolféll fyrir þessum bölvaða leik á einu kvöldi og rauk út í að kaupa þetta, en því miður endaði það samband illa. Leikurinn bæði lélegur, og ég enn ömurlegri spilari ;-) Ef þú hefur áhuga máttu senda það hvað þú ert tilbúinn að borga í PM.
Bestu kveðjur og gleðilega hátíð!