Síða 1 af 1
Óska eftir lyklaborði með 5 pinna DIN tengi
Sent: Lau 09. Feb 2013 20:21
af JonH
Var í smá tiltekt og ákvað að gamni að gangsetja gamla PC tölvu sem er búin að vera mörg ár í geymslu. Eina vandamálið er að vegna aldurs tölvunnar (hún er líklegast 15-17 ára gömul) finn ég engin lyklaborð eða breytistykki hjá mér sem tengst geta við tölvuna. Ef einhver hér á gamalt lyklaborð með 5-pin DIN tengi eða 5-pin-to-ps/2 breyti væri ég til í að kaupa það af viðkomandi. Og ef engin hér á svona gamla hluti væri væru allar ábendingar um hvar hægt væri að nálgast svona hluti vel þegnar.
Hér að neðan eru svo mynd af þessu tengi:
Og hér er breytistykki ef einhver skyldi eiga eitthvað álíka:
http://www.amazon.com/5-pin-Female-Keyboard-Cable-Adapter/dp/B003XXD55S
Re: Óska eftir lyklaborði með 5 pinna DIN tengi
Sent: Lau 09. Feb 2013 21:16
af Phanto
Re: Óska eftir lyklaborði með 5 pinna DIN tengi
Sent: Lau 09. Feb 2013 21:20
af ZoRzEr
Annars á ég eitt gamalt DIN tengt lyklaborð ef þú villt. Stórt og fyrirferðamikið með spring switch. Íslenskt layout.
Getur fengið það á slikk.
Re: Óska eftir lyklaborði með 5 pinna DIN tengi
Sent: Lau 09. Feb 2013 21:31
af IL2
Þetta kemur örsjaldan i Góða Hirðin, það sjaldan að ég myndi taka þetta sem ZoRzEr er með.
Re: Óska eftir lyklaborði með 5 pinna DIN tengi
Sent: Sun 10. Feb 2013 11:11
af ZoRzEr
IL2 skrifaði:Þetta kemur örsjaldan i Góða Hirðin, það sjaldan að ég myndi taka þetta sem ZoRzEr er með.
Á meirað segja tvö svona borð. Ef einhver annar vill, let me know.
Re: Óska eftir lyklaborði með 5 pinna DIN tengi
Sent: Sun 10. Feb 2013 17:41
af Gizzly
ZoRzEr skrifaði:IL2 skrifaði:Þetta kemur örsjaldan i Góða Hirðin, það sjaldan að ég myndi taka þetta sem ZoRzEr er með.
Á meirað segja tvö svona borð. Ef einhver annar vill, let me know.
Með spring switch, ekki ertu þá að tala um gömlu mechanical buckling spring switchana sem voru í IBM borðunum hérna áður fyrr? Ef það er málið, þá væri ég virkilega mikið til í eitt stykki! :p
Re: Óska eftir lyklaborði með 5 pinna DIN tengi
Sent: Sun 10. Feb 2013 18:01
af ZoRzEr
Annað er svona :
Þetta er með einhverskonar spring swissum, ef ég man rétt. Nappaði þessum borðum úr vinnunni fyrir einhverjum mánuðum.
Og hitt :
Hitt er eitthvað eldra. Ekki venjulegt layout á t.d. CTRL, ALT tökkum og fleiru. Almennt stærra og fyrirferðameira. Það er með hvítum swissum.
Sjá hér með swissana:
http://img259.imageshack.us/img259/7356/img0739wb.jpghttp://img830.imageshack.us/img830/2195/img0740jn.jpg
Re: Óska eftir lyklaborði með 5 pinna DIN tengi
Sent: Mán 11. Feb 2013 04:46
af Gizzly
Ah, þetta eru ekki svoleiðis. Takk samt fyrir svarið ^^