Síða 1 af 1
Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Lau 30. Apr 2011 18:46
af DoofuZ
Langar alveg geðveikt að eignast rc bílinn sem kom með nýjasta Call of Duty leiknum og líka night vision kíkinn sem fylgdi síðasta leik. Hvar get ég keypt þetta, helst ódýrt, annarstaðar en á eBay? Er hægt að kaupa þetta einhverstaðar hér? Eru/voru prestige útgáfur þessara leikja seldar hér? Langar samt ekki mikið að kaupa allann pakkann þar sem ég þarf ekki leikina, eru prestige útgáfurnar líka ekki allt nema PC annars?
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 14:26
af DoofuZ
*bömp*
Er ekki bara best fyrir mig að versla þetta beint af eBay? Ef þetta er til hér á Íslandi þá þyrfti ég að öllum líkindum að kaupa allann pakkann rándýrt og ef einhver á þetta til sölu notað þá myndi það örugglega líka kosta sitt ekki satt?
Ætla að panta þetta bara á eBay ef ég fæ engin svör í dag, enda hræódýrt miðað við allann pakkann glænýjann
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 14:53
af capteinninn
Ég myndi halda að það væri einfaldast að panta frá Ebay
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 17:32
af zedro
hannesstef skrifaði:Ég myndi halda að það væri einfaldast að panta frá Ebay
Jebb ef þetta er eitthvað sem var bara gefið út með leiknum þá er langbest að kaupa þetta í gegnum Ebay
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 18:03
af Output
Ekki vissi ég að það er hægt að kaupa rafmagnsbíl með sprengiefni á
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 18:07
af Glazier
Output skrifaði:Ekki vissi ég að það er hægt að kaupa rafmagnsbíl með sprengiefni á
Meira svona.. bensínbíll með sprengiefni á
En færð náttla ekki sprengiefni með bílnum
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 18:18
af Benzmann
rafmagnsbílinn fæst í "Game Stöðinni" í kringlunni sá ég fyrir stuttu, kostar eitthvað um 20þús minnir mig, og leikurinn fylgir með...
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 21:29
af DoofuZ
USS! Einmitt það sem mig grunaði miðað við verð á þessu úti, 20þús. er svoldið mikið þegar ég get keypt bara bílinn alveg ónotaðann og innpakkaðann á rétt undir 4þús. og gleraugun í sama ástandi á þúsund kall þarna á eBay
Þá er það komið á hreint, takk fyrir góð svör
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 21:43
af Frost
Ætla ekkert að reyna að vera leiðinlegur en samkvæmt flestum video-um sem ég hef séð á netinu þá er þetta ekkert voða vandað
Re: Hvar get ég keypt COD rc bílinn og kíkinn?
Sent: Sun 01. Maí 2011 23:46
af DoofuZ
Það skiptir mig ekkert það miklu máli, langar bara rosa mikið í þetta. Hef mjög lengi langað mikið í svona night vision kíki en alvöru svoleiðis græjur eru yfirleitt dýrar svo það er gaman að byrja á einhverju ódýru eins og þessu
Svo er svipað mál með bílinn, langaði geðveikt í einhvern svona fjarstýrðann bíl sem væri hægt að setja litla videovél á en það er líka svoldið dýrt dæmi svo það er gaman að byrja á einhverju svona tilbúnu dóti
Sé ekki betur en að ég sé í mesta lagi að fara að borga um 15þús. fyrir þetta með sendingakostnaðinum og öllu sem hljómar frekar vel miðað við fullt verð á þessu með leikjunum (sem ég þarf ekkert hvort sem er) Og miðað við hvað leikirnir einir og sér kosta hér þá er þetta góður díll (um 20þús. saman í Elko t.d.)