Síða 1 af 1

Vantar kælingu fyrir 3x5.25 stæði "sjá myndir"

Sent: Mið 22. Des 2010 02:09
af Gets
Ég á nú ekki von á því að neinn sem á svona sé að fara að losa sig við þetta, but you'll never know. Læt myndirnar tala sínu máli.

Ég er með CoolerMaster kassa sem er vel kældur en ætla að kæla hann enn frekar vegna smá breytinga og ætla að setja aukakælingu framan á kassan sem fyllir útí 3 geisladrifsstæði.
Ég læt þessa auglýsingu malla hér fram yfir jól og þá annað hvort panta þetta sjálfur eða bið einhverja tölvuverslun að taka þetta í næstu sendingu.

Ef einhver á svona og er til í að selja þá er mér sléttsama um útlit og ástand, skipti bara um viftu ef hún er ónýt, en ef ég panta þá fengi ég mér nr.1 þessa http://www.frozencpu.com/products/7657/ ... s610#blank
Og nr.2 þessa http://www.scythe-usa.com/product/acc/0 ... etail.html

Ef að einhver sem les þetta og er að vinna í tölvuverslun og er til í að redda því að þetta verði pantað með næstu sendingu þá er ég kaupandi, ég er búinn að skoða allar vefsíður tölvuverslana sem eru á vaktin.is og meira til og finn þetta ekki hérna á klakanum.
Ég er ekki stressaðari en svo að ég þarf þetta ekki fyrr en eftir mánuð ef þannig stendur á pöntunum hjá tölvuverslunum, en ég vill fá þetta og mun að sjálfsögðu borga inná pöntunina.

:santa

Re: Vantar kælingu fyrir 3x5.25 stæði "sjá myndir"

Sent: Mið 22. Des 2010 02:18
af emmi

Re: Vantar kælingu fyrir 3x5.25 stæði "sjá myndir"

Sent: Mið 22. Des 2010 02:23
af Gets
emmi skrifaði:http://tl.is/vara/18573

Takk kærlega fyrir þetta, ekki að undra að ég fyndi þetta ekki undir kælingar þar sem þetta er undir skápar og skúffur hjá Tölvulistanum.

Anyways þá er það bara Tölvulistinn á morgun :happy

Re: Vantar kælingu fyrir 3x5.25 stæði "sjá myndir"

Sent: Mið 22. Des 2010 15:44
af littli-Jake
hey þetta er mökk sniðugt.

Re: Vantar kælingu fyrir 3x5.25 stæði "sjá myndir"

Sent: Mið 22. Des 2010 22:05
af zdndz
hefur einhver reynslu af þessu, er þetta að standa undir sínu og kæla vel ?

Re: Vantar kælingu fyrir 3x5.25 stæði "sjá myndir"

Sent: Mið 22. Des 2010 22:11
af urban
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... fec25d2943

ég var með svona í gömlum coolermaster stacker sem að ég átti
skoðaði hita á hddum með kveikt á viftu og slökt á henni

það munaði ca 5 - 8°c sem að mér fannst bara alveg hellingur