Síða 1 af 1

ÓE - Ódýrum Sjónvarpsflakkara

Sent: Fös 19. Mar 2010 00:37
af Mr.Hafberg
Ég er að leita mér að ódýrum sjónvarpsflakkara, stærðin á harða diskinum skiptir ekki öllu máli, bara að hann sé í lagi.

Endilega senda mér PM ef þú átt eitthvað spennandi handa mér.

Re: ÓE - Ódýrum Sjónvarpsflakkara

Sent: Fös 19. Mar 2010 08:07
af Padrone
Hvað kallar þú ódýrt?

Re: ÓE - Ódýrum Sjónvarpsflakkara

Sent: Fös 19. Mar 2010 18:42
af Mr.Hafberg
fer eftir hvort hann spilar HD efni og framvegis, en ég er að reyna leita mér að eitthverju undir 15 þúsund kallinn.
hvað ertu með? :D

Re: ÓE - Ódýrum Sjónvarpsflakkara

Sent: Sun 21. Mar 2010 23:01
af Mr.Hafberg
á enginn góðan sjónvarpsflakkara sem hann væri til í að selja?

Re: ÓE - Ódýrum Sjónvarpsflakkara

Sent: Þri 23. Mar 2010 17:01
af Benz
Ég á ágætann "ferðaflakkara" frá König (m. 250GB 2,5" IDE diski) sem ég er að hugsa um að selja en hann því að ég er að hugsa um að fá mér stærra box sem ég get tengt beint við routerinn hjá mér.

Flakkarinn var keyptur hjá Tæknibæ og kostaði nýr um rétt um 30.000,- á sínum tíma en ég er ekki með það alveg á hreinu hvað maður fær fyrir svona grip í dag (er ca. 1 árs gamall og ákaflega lítið notaður :oops: ).

Lítur svona út: Mynd
og hér er mynd af tækinu með fjarstýringu sem segir e.t.v. betur til um hvað þetta er lítið: Mynd

Nýr gerð af sambærilegum spilara frá König kostar m. 250GB diski um kr. 27.000,- skv. Computer.is:
http://www.computer.is/vorur/7177/