Síða 1 af 1
Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 17:40
af arnar7
Daginn
Er einhver hérna sem á góðann bakpoka sem er rúmgóður, með sér hólfi eða góðum festingum fyrir fartölvu (15,4") og með gott pláss fyrir bækur og með góðum böndum sem fara vel með bak og svona...
Ef þú átt svona sem þú getur selt máttu senda mér skilaboð eða póst á
dedd10@gmail.comTakk,
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 18:28
af Glazier
Ef þú finnur enga notaða þá mæli ég með að þú fáir þér þessa:
http://ok.is/Vorur/Tolvur/Fartolvur/HP- ... fault.aspxHún kostar 10.900 kr. og er þess virði.
Ég keypti mér svona tösku í noregi á 1.000 kr. minna og sé sko ekki eftir því, á sama tíma keypti ég mér fartölvu með 17" skjá og var með aðra með mér sem var 15,4" og helling af drasli með henni og það er hólf í töskunni sem er akkurat fyrir 15,4" tölvu og svo annað hólf sem er akkurat fyrir 17" tölvu og þegar ég var búinn að setja þessar tvær tölvur í töskuna þá átti ég eftir að setja fullt af drasli þarna ofaní, t.d. handfarangur, power snúrur fyrir báðar tölvurnar, 2 flakkara, geisladiska hulstur, peysu og eitthvað smá í viðbót og það komst allt þarna ofaní
Og þegar þetta allt var komið í átti ég eftir að burðast með þessa tösku heilann dag sem var ekki svo erfitt því hún var þægileg
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 18:30
af arnar7
Já vá, þessi lítur vel út
Það er bara þessi helv... kreppa og spurning hvort 10þ sé betur varið, en hvur veit...
Á einhver svona tösku eða einhvernvegin öðruvísi
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 21:03
af Glazier
arnar7 skrifaði:Já vá, þessi lítur vel út
Það er bara þessi helv... kreppa og spurning hvort 10þ sé betur varið, en hvur veit...
Á einhver svona tösku eða einhvernvegin öðruvísi
Bara til að segja þér það þá er hún einhvernvegin svona:
Hólf númer eitt (það stærsta): ofaní því er spes hólf fyrir 17" fartölvu (getur sett minni en þá er hún ekki jafn "stöðug" í töskunni) og getur sett helling af bókum í þetta stóra hólf líka (eða snúrur eða hvað þú villt)
Hólf númer tvö (aðeins minna) þar er kjörið hólf fyrir 15,4" fartölvu og nóg pláss
Hólf númer þrjú: Dæmigert hólf til að geyma pennaveskið í og eitthvað meira með (ekki bækur samt)
Og svo fullt af öðrum "auka" hólfum fyrir lykla, klink eða bara name it
Svo fylgir með töskunni mús (með ljósum sem skipta um liti) og pennaveski.
Mæli með að þú farir og skoðir hana, kom mér á óvart hvað ég kom miklu í töskuna miðað við stærðina á henni.
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 21:19
af arnar7
Já ok, lítur vel út...
Veistu hvort hún sé seld einhverstaðar á Akureyri?
Bý nefnilega þar
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 21:34
af Glazier
hmm, held ekki.. ef það er einhver verslun á ak. sem selur HP vörur að einhverju viti þá gætiru kíkt þangað en ég bara þekki ekki hvaða búðir eru þarna :/
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 21:46
af arnar7
Ég er ekki viss, gæti verið ljósgjafinn...
En annars er ég enn að leita af tösku, á einhver?
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 22:45
af arnar7
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 22:51
af Glazier
Mæli bara með að þú skoðir allar þessar töskur áður en þú ákveður.
Því það getur vel verið að sú ódýrasta af þessum sem þú bentir á henti þér mun betur en sú dýrasta
Bentir þarna á einhverja sem er fyrir 17" fartölvur en þá er sér hólf fyrir fartölvuna og það er fyrir 17" og ef þú ert með minni tölvu en það þá getur hún farið á hreyfingu í þessu hólfi, maður vill helst hafa tölvuna eins stöðuga og hægt er.
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 22:52
af Glazier
annars keypti ég fyrir ári síðan tösku hjá minnir mig eymundsson sem er nokkuð góð (eða mamma keypti hana) í henni er hólf fyrir fartölvuna og efst uppi á hólfinu er svona fransur rennilás þannig ef þú ert t.d. að drífa þig og ert að skokka þá getur það verið gott.
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Lau 03. Okt 2009 22:53
af arnar7
Já, ætla að skoða þetta nánar hérna á Akureyri,
En já, reyndar er það satt, gæti hreyfst meira í 17" tösku en aftur á móti eru þær stærri kannski og þ.a.l meira pláss fyrir bækur og svona...
Endilega benda mér á fl. eða ef þið eruð að selja...
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Sun 04. Okt 2009 00:37
af arnar7
Er að spá í að tékka á þessari á morgun eða eh
http://ejs.is/Pages/1004/itemno/TSB152USmyndir af henni hérna...
http://www.amazon.com/gp/product/images ... B0028MF4LIEh sem á svona eða einhvernvegin sem er notuð og er til sölu hehe?
Ef þú átt svona, hvernig er hún?
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Sun 04. Okt 2009 00:51
af Einarr
mæli ekki með að kaupa notaða tösku nema þú grandskoðir hvern einasta saum
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Sun 04. Okt 2009 01:05
af arnar7
Já, það er reyndar satt!
Var lítið búinn að spá í þvi hehe...
Spurning um að kaupa bara þessa sem ég setti inn síðast, með ábyrgð og svona
Einhver sem á þannig ?
Ef svo er, hvernig er hún að skila sér?
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Sun 04. Okt 2009 02:05
af Glazier
Þessi sem þú sendir link á, lítur ágætlega út en er spes hólf fyrir fartölvuna eða er bara pláss fyrir hana þarna í einhverju hólfi ?
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Sun 04. Okt 2009 10:11
af arnar7
Þetta stendur amk á síðunni hjá EJS.
- Hólf 1, sérhólf fyrir fartölvuna og bækur
- Hólf 2, nett pláss fyrir þunnar möppur
- Hólf 3, pláss fyrir penna og aukahluti
ÉG ætla að fara og tékka á henni á næstunni
Re: Fartölvu/skóla taska óskast (bakpoki)
Sent: Sun 04. Okt 2009 23:20
af arnar7
Ætlaði að tékka hvort einhver ætti svona?
http://ejs.is/Pages/1004/itemno/TSB152USEf svo er, hvernig er hún? gott pláss og svona?