Síða 1 af 1

Floppy diskar 3,5" 1,44

Sent: Fim 08. Jan 2026 12:51
af brjann
Mig vantar nýja/ónotaða floppy diska ef einhver á þá á landinu helst Reykjavík/Suðurnes - ég læt senda eftir þeim.

Ég er að aðstoða flugvirka sem eru að vinna í að koma flugvél í loftið frá Keflavíkurflugvelli. Hann þarf nýja floppy diska til að hlaða gögnum inn í dataloader hjá þeim á gamalli Boeng vél. Ég náði að skaffa þeim 20 diska, 8 virkuðu úr öðru boxinu en aðeins 1 í hinu. Þeim vantar því fleiri diska. Þurfa 13 í lagi plús nokkra vara.

Það má ná í mig í síma 8969669

Re: Floppy diskar 3,5" 1,44

Sent: Fim 08. Jan 2026 14:36
af kusi
Það gæti verið að ég eigi eitthvað. Skal kíkja á það á eftir.

Re: Floppy diskar 3,5" 1,44

Sent: Fim 08. Jan 2026 22:24
af Televisionary
Þú verður að senda okkur mynd af vélinni og þessu setupi.

Þetta er áhugaverðasti þráðurinn hérna lengi. Ég sendi manninn á þig með diskana.