[ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
[ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Er einhver tilbúinn að styrkja Pírata um einn eða tvo widescreen skjái? 22 tommu eða stærri. Má vera gamall og með einhverjum biluðum pixlum en helst í 1080p upplausn (má vera minna) og litir þurfa að vera í lagi. Ég get sótt á höfuðborgarsvæðinu.
Skjárinn yrði notaður sem hluti af vinnustöð til að streyma fundum og öðrum viðburðum live á Youtube.
Allur stuðningur er vel þeginn.
Skjárinn yrði notaður sem hluti af vinnustöð til að streyma fundum og öðrum viðburðum live á Youtube.
Allur stuðningur er vel þeginn.
Síðast breytt af Framed á Þri 22. Mar 2016 02:23, breytt samtals 1 sinni.
-
- FanBoy
- Póstar: 700
- Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
- Reputation: 121
- Staða: Ótengdur
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Þessi aðili þ.e.a.s. Píratar fengu "*15.479.059 kr." sem framlag úr ríkissjóði árið 2015 og ekki til fyrir tveimur tölvuskjám?
*heimild heimasíða fjármálaráðuneytisins: https://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/20157
*heimild heimasíða fjármálaráðuneytisins: https://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/20157
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1798
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Reputation: 387
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Televisionary skrifaði:Þessi aðili þ.e.a.s. Píratar fengu "*15.479.059 kr." sem framlag úr ríkissjóði árið 2015 og ekki til fyrir tveimur tölvuskjám?
*heimild heimasíða fjármálaráðuneytisins: https://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/20157
Þú heldur semsagt að 1.289.921kr á mánuði dugi til reksturs á stjórnmálaflokki á landsvísu?
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero
CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming
RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit
PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
-
- FanBoy
- Póstar: 700
- Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
- Reputation: 121
- Staða: Ótengdur
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Hreint ekki, Mér leiðist bara þegar það er verið að betla hluti af fólki sem er nú þegar búið að láta fé af hendi. 286 milljónir til stjórnmálaflokka er töluverð upphæð.
ZiRiuS skrifaði:Televisionary skrifaði:Þessi aðili þ.e.a.s. Píratar fengu "*15.479.059 kr." sem framlag úr ríkissjóði árið 2015 og ekki til fyrir tveimur tölvuskjám?
*heimild heimasíða fjármálaráðuneytisins: https://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/20157
Þú heldur semsagt að 1.289.921kr á mánuði dugi til reksturs á stjórnmálaflokki á landsvísu?
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Televisionary skrifaði:Hreint ekki, Mér leiðist bara þegar það er verið að betla hluti af fólki sem er nú þegar búið að láta fé af hendi. 286 milljónir til stjórnmálaflokka er töluverð upphæð.
Ég myndi akkúrat halda að einstaklingur sem hugsaði á þennan veg kynni að meta að farið væri eins sparlega með það fé sem ríkissjóður greiðir stjórnmálaflokkum í fjárframlög.
ZiRiuS skrifaði:Televisionary skrifaði:Þessi aðili þ.e.a.s. Píratar fengu "*15.479.059 kr." sem framlag úr ríkissjóði árið 2015 og ekki til fyrir tveimur tölvuskjám?
*heimild heimasíða fjármálaráðuneytisins: https://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/20157
Þú heldur semsagt að 1.289.921kr á mánuði dugi til reksturs á stjórnmálaflokki á landsvísu?
Ég hef ekki óskað formlega eftir fjárframlagi frá framkvæmdaráði til að fjárfesta í skjám. Ég taldi rétt að kanna þennan möguleika fyrst.
Það eru margir sem eiga gamla skjái sem þeir eru hættir að nota. Þar sem við þurfum ekki nýja skjái fyrir þetta verkefni heldur aðallega stærri en við erum með núna ákvað ég að athuga hvort einhverjir stuðningsmenn eða konur Pírata hérna vildu styðja okkar starf á þennan hátt.
Ef svo er ekki þá munum við líkast til bara halda okkur við skjáina sem við höfum en eru heldur litlir fyrir þetta. Skjáir sem við n.b. fengum gefins. Þeir skjáir myndu nýtast betur í annað verk þar sem smæðin á þeim kemur ekki að sök en eru sem stendur fastir í streymisverkinu.
Varðandi reksturinn sjálfan þá verður að segjast að 15,5 milljónir duga skammt í rekstur svona flokks. Sérstaklega þegar núna þegar við erum farin að nálgast kosningabaráttu. Það eru stórir kostnaðarliðir sem bíða. Allt innra starf flokksins er t.d. keyrt á sjálfboðavinnu sem stendur til þess að við höfum efni á starfskrafti þegar nær dregur kosningum. Allt okkar bókhald er líka opið hverjum sem vill skoða það.
Við metum mikið allan stuðning sem við fáum í hvaða formi sem er. Þar með talið í formi gamallra skjáa.
-
- FanBoy
- Póstar: 700
- Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
- Reputation: 121
- Staða: Ótengdur
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Ekki mikið gagn í að benda á slóð sem skilar 404 villu.
Vildi bara benda þér á það.
Vildi bara benda þér á það.
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Það á sér eðlilega skýringu. Síðan var tekin niður eftir að við fengum ábendingu í morgun um að þar væri að finna upplýsingar sem gengu heldur langt varðandi opið bókhald. Mér þykir líklegt að þar hafi verið á ferð athugull vaktari. Hvort svo sé eður ei þá fékk hann þakkir fyrir.
Síðan kemur aftur upp þegar búið er að lagfæra þetta.
Síðan kemur aftur upp þegar búið er að lagfæra þetta.
-
- FanBoy
- Póstar: 700
- Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
- Reputation: 121
- Staða: Ótengdur
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Ég tilkynnti þetta vildi fá að sjá í hvað 15.479.059 kr fara í.
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Televisionary skrifaði:Ég tilkynnti þetta vildi fá að sjá í hvað 15.479.059 kr fara í.
ég líka !
Gaman að sjá hvernig sjálfboðaliðar eyða þessum styrk !
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Framed skrifaði:Það á sér eðlilega skýringu. Síðan var tekin niður eftir að við fengum ábendingu í morgun um að þar væri að finna upplýsingar sem gengu heldur langt varðandi opið bókhald. Mér þykir líklegt að þar hafi verið á ferð athugull vaktari. Hvort svo sé eður ei þá fékk hann þakkir fyrir.
Síðan kemur aftur upp þegar búið er að lagfæra þetta.
Nú.... á ekki allt að vera opið og aðgengilegt öllum ?
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
brain skrifaði:Framed skrifaði:Það á sér eðlilega skýringu. Síðan var tekin niður eftir að við fengum ábendingu í morgun um að þar væri að finna upplýsingar sem gengu heldur langt varðandi opið bókhald. Mér þykir líklegt að þar hafi verið á ferð athugull vaktari. Hvort svo sé eður ei þá fékk hann þakkir fyrir.
Síðan kemur aftur upp þegar búið er að lagfæra þetta.
Nú.... á ekki allt að vera opið og aðgengilegt öllum ?
Það eru takmörk á öllu. Jú, það á allt að vera eins opið og aðgengilegt og hægt er upp að því marki að það sé ekki mögulega skaðlegt einhverjum. Það voru upplýsingar þarna sem var ekki eðlilegt að væru aðgengilegar öllum (mögulega skaðlegar) og því var síðan tekin niður á meðan væri verið að lagfæra þá yfirsjón.
En aftur on topic. Enginn sem á skjá sem ekki er í notkun lengur sem við getum losað viðkomandi við?
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Með hliðsjón af nýliðnum/yfirstandandi atburðum þá hefur þörfin fyrir skjá aukist enn meira.
-
- FanBoy
- Póstar: 700
- Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
- Reputation: 121
- Staða: Ótengdur
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Áttu þá við þann atburð að ákveðið hefur verið að falla frá því að ráða framkvæmdastjóra fyrir flokkinn sökum þess að ekki er til fé til að greiða honum laun? Þrátt fyrir að stöðugildið hafi verið auglýst fyrir ekki svo löngu síðan.
Framed skrifaði:Með hliðsjón af nýliðnum/yfirstandandi atburðum þá hefur þörfin fyrir skjá aukist enn meira.
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Ég tel nú um c.a 250.000kr í vínbúðum á árinu 2014. Góð forgangsröðun, það ÞARF enginn áfengi. Hefði verið fínn peningur í skjái
-
- Vaktari
- Póstar: 2011
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Reputation: 276
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Helgi350 skrifaði:Ég tel nú um c.a 250.000kr í vínbúðum á árinu 2014. Góð forgangsröðun, það ÞARF enginn áfengi. Hefði verið fínn peningur í skjái
Pítratar eru allavega með þetta uppi á borðinu, sendu endilega fyrirspurn á 4Flokkinn og athugaðu hvað þau eyddu í áfengi 2014.
Btw, hér er verið að auglýsa eftir skjá í Óskast Tölvuvörur, ef þú sérð þig knúin til að ræða þessi mál væri þá ekki sniðugt bara að búa til þráð í Koníakstofan varðandi Pírata eða bara fara á Pírataspjallið á Facebook og tjá þig.
| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Og langar nú ekki einu sinni að vita upphæðina á veitingum, sá alveg slatta, getið þið ekki farið í bónus og gert ykkar eigin mat eins og venjulegt fólk?
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
einarhr skrifaði:Helgi350 skrifaði:Ég tel nú um c.a 250.000kr í vínbúðum á árinu 2014. Góð forgangsröðun, það ÞARF enginn áfengi. Hefði verið fínn peningur í skjái
Pítratar eru allavega með þetta uppi á borðinu, sendu endilega fyrirspurn á 4Flokkinn og athugaðu hvað þau eyddu í áfengi 2014.
Btw, hér er verið að auglýsa eftir skjá í Óskast Tölvuvörur, ef þú sérð þig knúin til að ræða þessi mál væri þá ekki sniðugt bara að búa til þráð í Koníakstofan varðandi Pírata eða bara fara á Pírataspjallið á Facebook og tjá þig.
Ég veit það alveg að þeir eyða mun meira, enn þeir eiga að vera betri það er enginn að fara segja mér það að áfengi er MUST, ég styð pírata 100%.
Enn þeir ættu að spá í þessum hlutum, í staðinn t.d fyrir að outsourcea veitingar þá er bónus góður kostur.
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Jæja, eigum við ekki bara að láta þennan þráð í friði, hér er verið að óska eftir búnaði en ekki pólitískum umræðum.
Ég ætla þó ekki að gefa neinar viðvaranir enda voru spurningarnar í sjálfu sér ekkert óeðlilegar, en Koníakstofan var einmitt stofnuð fyrir svona umræður, ef menn vilja halda henni áfram þá er tilvalið að stofna þráð þar.

youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Re: [ÓE] widescreen skjá í styrk fyrir Pírata (gefins)
Ég skal glaður ræða pólitíkina og annað slíkt sem tengist Pírötum í öðrum þráð/um í viðeigandi flokk á þessu spjallborði.
En eins og bent hefur verið á þá er ég hér að óska eftir tölvubúnaði en ekki umræðum um innra starf flokksins (ef frá er talið af hverju ég er að óska eftir búnaði hér).
En eins og bent hefur verið á þá er ég hér að óska eftir tölvubúnaði en ekki umræðum um innra starf flokksins (ef frá er talið af hverju ég er að óska eftir búnaði hér).