Komið þið sælir hér!
Er glænýr hérna, svo ég vona að ég sé að gera allt rétt með því hvar ég staðset þennan þráð og hvernig hann er uppsettur
En þá beint að kjarna málsins, máli málanna!
Mig vantar "turntölvu" á verðbilinu 50.000 kr. - 80.000 kr. Er eingöngu að leita eftir einhverri þokkalegri vél til þess að keyra NAS á. Svo ef einhver hérna er með vél sem hann er að selja/er tilbúinn að selja á þessu verði - þá má sá hinn sami endilega senda á mig skilaboð eða svara hérna í þræðinum (og kannski taka fram í grófum dráttum hver vélbúnaðurinn er).
Ætla að prófa þessa leið núna, hef rekið mig á það oftar en einu sinni að kaupa vél upp á hátt í 300.000 kr. sem ég síðan nota bara til þess að skoða tölvupóstinn og fletta mbl.is
Svo, endilega hafið samband sem fyrst, því fyrr því betra, ef þið eruð að losa ykkur við vélina og hún fellur innan þessa verðramma.
Takktakk!
[ÓE] Turni á 50-80þús. Hef einnig í skiptum LG G2 snjallsíma

Síðast breytt af gulliv á Mán 27. Jan 2014 10:58, breytt samtals 1 sinni.
Re: [ÓE] => Óska eftir "turntölvu" á verðbilinu 50-80 þúsund
Var að átta mig á því að ég er einnig með LG G2 snjallsíma, stærri gerðina - eða með 32 GB minni sem ég væri vel til í að nota í einhvers konar skiptum. Alveg sama þá hvort að um væri að ræða dýrari vél + 50.000-80.000 kr., eða þá einfaldlega skipti sem koma út nokkurnveginn á sléttu.
Síminn er ekki nema um mánaðar gamall og ég leyfi mér að segja að hann sé sama og _EKKERT_ notaður. Ég hljóp bara til í einhverju stundarbrjálæði seinnipartinn í desember og varð að kaupa mér þennan síma, eingöngu vegna þess að þetta átti að vera "sími ársins" og með betri símum sem eru á markaðnum í dag. Ég er hins vegar búinn að reka mig á það að ég get á engan hátt vanist því að nota svona snjallsíma með öllum þessum öppum, fítusum o.s.frv., svo að eftir örfáa daga var ég búinn að skipta aftur yfir í gamla 15 þúsund króna Nokia símann minn
Þetta kom bara allt í einu upp í kollinn á mér að taka þetta fram ef einhver skyldi hafa áhuga á einhvers konar skiptum, hvort sem þau fela í sér að ég borgi á milli eða ekki. Þetta er víst algjör topp sími, en mér tókst því miður ekki að temja mér það að nota hann. Hann er keyptur í Elko og kostaði rétt tæplega 100.000 kr - og nóta myndi að sjálfsögðu fylgja.
Bestu kveðjur, og vona ég að þið hafið það sem allra best á þessum 'yndislega' mánudegi