Síða 1 af 1

Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Lau 08. Mar 2025 22:28
af netkaffi
Þetta er ekki snjallsjónvarp en þó HDMI tengi á því. Er ekki hægt að fá kapal í snjallsíma sem breytir í HDMI svo að hún geti horft á RÚV þannig (RÚV appið)? Er eitthvað vit í því?

P.S. hvar fæst svoleiðis kapall

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Lau 08. Mar 2025 22:30
af arons4
Er ekki chromecast bara einfaldast? Breytir hdmi porti í android sjónvarp svoleiðis.

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Lau 08. Mar 2025 23:10
af rapport
mii stick

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Sun 09. Mar 2025 11:09
af olihar
Gamalt og ódýrt Apple TV.

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Sun 09. Mar 2025 12:07
af HringduEgill
Myndi persónulega fara beint í Apple TV. Mamma er með 8 ára gamla græju og svínvirkar enn fyrir hana. Kostar vissulega meira en Mii stick en finnst það bara engan veginn sambærilegt. Miklu snarpara og mín reynsla að öppin virka betur. Minni hausverkur fyrir hana og þar af leiðandi minni hausverkur fyrir þig!

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Sun 09. Mar 2025 12:31
af Hjaltiatla
Bang for the buck , panta Xiaomi TV Box S (2nd Gen) margmiðlunarspilara af Aliexpress og færð hann hingað undir 10.000 kr.
Annars geturu keypt hann hérlendis aðeins dýrari.
Dýrara tæki sem er efluast algjört overkill fyrir þetta væri Nvidia Shield. Hef átt minn frá 2016 ef ég man rétt og hann fær ennþá uppfærslur.

https://androidpctv.com/xiaomi-tv-box-s-2nd-gen-review/



Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Sun 09. Mar 2025 12:54
af cocacola123
https://mibudin.is/vara/mi-tv-stick/

Fæst í ármúla strax í dag. Held að það gerist ekki auðveldari lausn.
Kannski ódýrari lausnir til en má reikna með að það fylgi flækjustig sem mæður ráða ekki við.
Edit:
Eftir smá meira googl fann ég þetta https://vodafone.is/vorur/nanar-um-voru ... 2be2e21792.
Hugsa að auka 4 þúsund krónur sé vel þess virði til að taka Google fram yfir Xiaomi.

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Sun 09. Mar 2025 15:28
af netkaffi

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Sun 09. Mar 2025 15:35
af kizi86
cocacola123 skrifaði:https://mibudin.is/vara/mi-tv-stick/

Fæst í ármúla strax í dag. Held að það gerist ekki auðveldari lausn.
Kannski ódýrari lausnir til en má reikna með að það fylgi flækjustig sem mæður ráða ekki við.
Edit:
Eftir smá meira googl fann ég þetta https://vodafone.is/vorur/nanar-um-voru ... 2be2e21792.
Hugsa að auka 4 þúsund krónur sé vel þess virði til að taka Google fram yfir Xiaomi.

https://mibudin.is/vara/xiaomi-tv-box-s ... arspilari/
tæki þennan fram yfir chromecast allan daginn.

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Mán 10. Mar 2025 08:12
af Alfa
Gangi þér svo vel að kenna gömlu hvaða fjarstýringu á að nota hverju sinni :) Það er stærsti höfurverkurinn þegar það kemur að "eldra" fólki öll þessi tæki og fl fjarstýringar. Því miður er þetta eina leiðin í dag samt.

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Mán 10. Mar 2025 14:09
af netkaffi
Já tæknin er núþegar til staðar fyrir raddstýringu. Gæti þó tekist seint eða aldrei að fá það á íslensku inn á allt sem þarf að koma til greina (svo margir aðilar).
Hún talar reyndar ensku

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Mán 10. Mar 2025 14:31
af russi
Alfa skrifaði:Gangi þér svo vel að kenna gömlu hvaða fjarstýringu á að nota hverju sinni :) Það er stærsti höfurverkurinn þegar það kemur að "eldra" fólki öll þessi tæki og fl fjarstýringar. Því miður er þetta eina leiðin í dag samt.


Hefuru kynnt þér HDMI-CEC?

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Mán 10. Mar 2025 14:33
af Alfa
russi skrifaði:
Alfa skrifaði:Gangi þér svo vel að kenna gömlu hvaða fjarstýringu á að nota hverju sinni :) Það er stærsti höfurverkurinn þegar það kemur að "eldra" fólki öll þessi tæki og fl fjarstýringar. Því miður er þetta eina leiðin í dag samt.


Hefuru kynnt þér HDMI-CEC?


Jájá, þetta er ekki vandamál hjá mér er að vísa í aðra.

Re: Mömmu vantar leið til að horfa á RÚV stundum, á sjónvarpinu

Sent: Mán 10. Mar 2025 14:58
af netkaffi
russi skrifaði:Hefuru kynnt þér HDMI-CEC?
Þeir vilja eitthvað meina á Reddit að þetta sé unreliable https://www.reddit.com/r/hometheater/co ... nreliable/