Síða 1 af 2
Tölvuhátalarar/studiomonitors - búinn að kaupa
Sent: Fös 04. Mar 2022 16:11
af Lexxinn
Ég er að reyna að finna tölvuhátalara - helst 2.0
Þarf ekkert bluetooth eða neitt fancy
Væri til í að sleppa með undir 30þ
Búinn að skoða hjá Origo, Ormsson, att, tolvutek, TL, kísildal og Elko en finnst ég ekkert finna neitt með ágæta hljóm á viðráðanlegu verði.
Allar ábendingar eru vel þegnar.
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Fös 04. Mar 2022 16:49
af brain
Tók svona í Jan
https://www.amazon.com/gp/product/B00BX ... =UTF8&th=1kom á 3 dögum með DHL og uppá um 19.700.kr
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Fös 04. Mar 2022 16:50
af halipuz1
Bose 2.1 hátalararnir eru geggjaðir, fást í Origo.
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Fös 04. Mar 2022 17:49
af Lexxinn
halipuz1 skrifaði:Bose 2.1 hátalararnir eru geggjaðir, fást í Origo.
Áttu við þessa? Ef svo er eru þeir örlítið upp úr budgeti, get teygt þetta eitthvað yfir 30þ en þykir 60þ fullmikið.
https://verslun.origo.is/Hljodbunadur/H ... 149.actionEinnig er ég helst á höttunum eftir 2.0, þakka annars svörin.
Færi annars að öllum líkindum í
þetta sett ef ég væri að skoða 2.1
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Fös 04. Mar 2022 18:08
af halipuz1
Lexxinn skrifaði:halipuz1 skrifaði:Bose 2.1 hátalararnir eru geggjaðir, fást í Origo.
Áttu við þessa? Ef svo er eru þeir örlítið upp úr budgeti, get teygt þetta eitthvað yfir 30þ en þykir 60þ fullmikið.
https://verslun.origo.is/Hljodbunadur/H ... 149.actionEinnig er ég helst á höttunum eftir 2.0, þakka annars svörin.
Færi annars að öllum líkindum í
þetta sett ef ég væri að skoða 2.1
Hmm minnti ég hefði séð þá ódýrari, ég eitthvað að klikka.
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Lau 05. Mar 2022 10:05
af gutti
Mæli með þessa er geggjað sound
https://www.hljodfaerahusid.is/is/vefve ... itorar-par tók vísu sensi að kaupa á síðunna áður en fara á staðinn að hlusta en vá soundið er geggjað miða hversu litlir þeir eru
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Lau 05. Mar 2022 10:57
af Moldvarpan
Afhverju 2.0 frekar en 2.1?
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Lau 05. Mar 2022 11:43
af upg8
Panta 2.0 magnara að utan, fá gamla stereo hátalara á bland eða góða hyrðinum
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Lau 05. Mar 2022 13:36
af Lexxinn
Takk gutti, kíki á þessa við tækifæri
Moldvarpan skrifaði:Afhverju 2.0 frekar en 2.1?
Takmarkað pláss plús mér finnst þægilegra án box
upg8 skrifaði:Panta 2.0 magnara að utan, fá gamla stereo hátalara á bland eða góða hyrðinum
Eins og ég segi í svari að ofan er ég að eltast við 2.0 útaf takmörkuðu plássi og þetta eigi að sitja á skrifborði - að öðru leyti nenni ég ekki svona stússi. Er eiginlega að leita að plug'n'play lausn.
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Lau 05. Mar 2022 18:17
af asgeirbjarnason
Held að það sé góð hugmynd að leita að „active studio monitors“ frekar en tölvuhátölurum úr tölvubúð, venjulega betri kaup í þeim. Þessir sem gutti mælti með eru einmitt studio monitors, ég er með
þessa frá hljóðfærahúsinu og finnst þeir mjög góðir,
útgáfan án bluetooth er síðan á tilboði akkurat núna.
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Lau 05. Mar 2022 18:50
af Lexxinn
asgeirbjarnason skrifaði:Held að það sé góð hugmynd að leita að „active studio monitors“ frekar en tölvuhátölurum úr tölvubúð, venjulega betri kaup í þeim. Þessir sem gutti mælti með eru einmitt studio monitors, ég er með
þessa frá hljóðfærahúsinu og finnst þeir mjög góðir,
útgáfan án bluetooth er síðan á tilboði akkurat núna.
Kíkti við fyrr í dag og skoðaði báðar týpurnar. Lítur allt út fyrir að vera núna val á milli BX3, Eris E3,5(BT?) eða BX4. Var búinn að skoða studio hátalara hjá eitthverri annarri hljóðfærabúð á netinu en fannst allt svo dýrt þar sem það var um og yfir 25þ á stykkið en ekki parið.
Var einnig búinn að spotta Mackie CR3-X hjá Tónastöðinni.
Eru eitthverjir hér með vit á þessu sem geta gert upp á milli BX3, BX4, E3,5 eða CR3-X?
Mackie CR3-X:
https://www.tonastodin.is/hljod/hatalar ... monitorar/M-Audio BX3:
https://www.hljodfaerahusid.is/is/vefve ... itorar-parM-Audio BX4:
https://www.hljodfaerahusid.is/is/vefve ... itorar-parPresonus E3,5:
https://www.hljodfaerahusid.is/is/vefve ... 35-mon-par
Re: Tölvuhátalarar - leitin
Sent: Þri 08. Mar 2022 14:39
af Lexxinn
bump á þessa spurningu áður en ég fer og klára kaupin í vikunni
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 15:48
af gutti
M-Audio BX3!! mæli með þessu hiklaust
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 16:24
af oliuntitled
Get mælt með mAudio, er sjálfur að nota stóra slíka fyrir plötusnúðun.
Varðandi valið hjá hljóðfærahúsinu að þá mæli ég með því að þú kíkir til þeirra og fáir að hlusta í þeim.
Allir 4 sem þú linkaðir munu vera góðir, ég er hrifinn af bassanum í mAudio þó og mæli með þeim ef þú er hrifinn af bassa
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 17:09
af appel
Alltaf hægt að finna eitthvað notað. Það er takmarkaður markaður fyrir svona græjur hér, en ég veit að hægt er að finna ódýra studio monitor á facebook grúppu :
https://www.facebook.com/groups/studiohljomÉg myndi alltaf prófa notað fyrst frekar en að kaupa nýtt (svo lengi sem það er í fullkomnu ástandi).
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 19:47
af Lexxinn
gutti skrifaði:M-Audio BX3!! mæli með þessu hiklaust
Var of spenntur, henti mér í búðina og hoppaði á BX4 þar sem það var ekki nema 4þ í mun - skv starfsmanni væri það nobrainer.
Hlakka til að prófa, fékk að heyra soundið í búðinni og hljómuðu mjöög vel - set þá upp við tækifæri.
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 22:04
af Quemar
Lexxinn skrifaði:gutti skrifaði:M-Audio BX3!! mæli með þessu hiklaust
Var of spenntur, henti mér í búðina og hoppaði á BX4 þar sem það var ekki nema 4þ í mun - skv starfsmanni væri það nobrainer.
Hlakka til að prófa, fékk að heyra soundið í búðinni og hljómuðu mjöög vel - set þá upp við tækifæri.
Vona að þú verðir kátur með þá, átti sjálfur BX5 í dáldinn tíma og kunni ágætlega við þá. Hefði viljað sjá þig fara í þessa:
https://www.hljodfaerahusid.is/is/vefverslun/studio-hatalarar/presonus-eris-e5-monitorar-parEn ég geri mér grein fyrir að það væri að stretcha budgetið verulega!
Ertu að tengja þá beint við output úr tölvunni eða ertu með external DAC?
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 22:27
af Lexxinn
Quemar skrifaði:Lexxinn skrifaði:gutti skrifaði:M-Audio BX3!! mæli með þessu hiklaust
Var of spenntur, henti mér í búðina og hoppaði á BX4 þar sem það var ekki nema 4þ í mun - skv starfsmanni væri það nobrainer.
Hlakka til að prófa, fékk að heyra soundið í búðinni og hljómuðu mjöög vel - set þá upp við tækifæri.
Vona að þú verðir kátur með þá, átti sjálfur BX5 í dáldinn tíma og kunni ágætlega við þá. Hefði viljað sjá þig fara í þessa:
https://www.hljodfaerahusid.is/is/vefverslun/studio-hatalarar/presonus-eris-e5-monitorar-parEn ég geri mér grein fyrir að það væri að stretcha budgetið verulega!
Ertu að tengja þá beint við output úr tölvunni eða ertu með external DAC?
Sá svona Eris E5 notaða til sölu í hópnum sem appel benti á eftir að ég hafði klárað kaupin - fínt að fá bara nýja samt.
Eins og staðan er þá já beint í output, spurning um að ná sér í magnara?
kannski þenna?
viewtopic.php?f=67&t=90610
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 22:36
af appel
Lexxinn skrifaði:Quemar skrifaði:Lexxinn skrifaði:gutti skrifaði:M-Audio BX3!! mæli með þessu hiklaust
Var of spenntur, henti mér í búðina og hoppaði á BX4 þar sem það var ekki nema 4þ í mun - skv starfsmanni væri það nobrainer.
Hlakka til að prófa, fékk að heyra soundið í búðinni og hljómuðu mjöög vel - set þá upp við tækifæri.
Vona að þú verðir kátur með þá, átti sjálfur BX5 í dáldinn tíma og kunni ágætlega við þá. Hefði viljað sjá þig fara í þessa:
https://www.hljodfaerahusid.is/is/vefverslun/studio-hatalarar/presonus-eris-e5-monitorar-parEn ég geri mér grein fyrir að það væri að stretcha budgetið verulega!
Ertu að tengja þá beint við output úr tölvunni eða ertu með external DAC?
Sá svona Eris E5 notaða til sölu í hópnum sem appel benti á eftir að ég hafði klárað kaupin - fínt að fá bara nýja samt.
Eins og staðan er þá já beint í output, spurning um að ná sér í magnara?
kannski þenna?
viewtopic.php?f=67&t=90610
Það er hægt að gera mjög góð kaup á svona hlutum, jafnvel borga 50% minna en nývirði.
Alltaf gaman að unpacka nýjum hlutum, en fer ekki vel með budduna
Persónulega er ég mjög savvvy að kaupa hluti á bland, vaktinni, hér og þar notaða, spara rosalega. Keypti leðursófa frá IKEA á bland á 100 þús, sem kostar 300 þús nýr, alveg einsog nýr. Keypti móðurborð+ram+cpu á vaktinni á peanuts fyrir um 4 árum síðan, er enn að nota það, og windows 10 fylgdi frítt með! Ef ég hefði keypt þetta allt nýtt sem ég hef keypt notað þá væri ég líklega í svona einni milljón í mínus.
Kosturinn líka við að kaupa notað er að hægt er að endurselja á eiginlega sama verði, stundum einstaka sinnum kemstu upp með hærra verð.
Ég væri ferengi í star trek
https://www.youtube.com/watch?v=BxHhCh9zA3Ihttps://memory-alpha.fandom.com/wiki/Gr ... _Continuum
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 22:58
af oliuntitled
Þú ættir ekki að þurfa magnara við þessa hátalara, þeir eru með innbyggðum magnara og powerið er hressandi í þeim.
Gott usb hljóðkort samt er eitthvað sem þú ættir að skoða
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 23:11
af Lexxinn
appel skrifaði:Það er hægt að gera mjög góð kaup á svona hlutum, jafnvel borga 50% minna en nývirði.
Alltaf gaman að unpacka nýjum hlutum, en fer ekki vel með budduna
Persónulega er ég mjög savvvy að kaupa hluti á bland, vaktinni, hér og þar notaða, spara rosalega. Keypti leðursófa frá IKEA á bland á 100 þús, sem kostar 300 þús nýr, alveg einsog nýr. Keypti móðurborð+ram+cpu á vaktinni á peanuts fyrir um 4 árum síðan, er enn að nota það, og windows 10 fylgdi frítt með! Ef ég hefði keypt þetta allt nýtt sem ég hef keypt notað þá væri ég líklega í svona einni milljón í mínus.
Er 100% á sama stalli þar en þegar hluturinn kostar mig innan við 25þ og ég er að skoða eitthvað sem mig langar að eiga til lengri tíma kaupi ég bara nýtt. Hef sjálfur það takmarkaða kunnáttu á hljóðbúnaði að ég veit ekkert hvað skal varast eða hafa í huga þegar kemur að notuðum hlutum svo læt það algjörlega í friði.
oliuntitled skrifaði:Gott usb hljóðkort samt er eitthvað sem þú ættir að skoða
Eitthvað handy bang-for-buck sem þú mundir mæla með?
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 23:36
af oliuntitled
oliuntitled skrifaði:Gott usb hljóðkort samt er eitthvað sem þú ættir að skoða
Eitthvað handy bang-for-buck sem þú mundir mæla með?[/quote]
Focusrite eru með gott track record á bang for the buck í entry level hljóðkortum.
https://www.thomann.de/intl/is/focusrit ... rd_gen.htmEru til í mörgum stærðum eftir því hvað þú vilt mörg input/output.
Hef sjálfur verið að nota Focusrite Scarlett 4i2 þegar við höfum streymt eða tekið upp og þau virka flott með mjög góðu audio signal fyrir peninginn.
https://www.thomann.de/intl/is/usb_audi ... faces.htmlThomann eru með gott úrval af kortum og eru rock solid þegar kemur að því að panta frá, nota þá mikið sjálfur.
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Þri 08. Mar 2022 23:40
af Quemar
Þetta er alveg perfect fyrir þig til að byrja með. Þetta ER hljóðkort (DAC) með heyrnatólamagnara. Þetta er ekki MAGNARI!!!
Meiraðsegja alveg classic chipset sem er hjartað í þessu, ættir að fá flottan hljóm.
USB er líklega ekki nauðsynlegt, góðar líkur að það sé optical út á MOBO hjá þér. En endilega kanna hvaða möguleika þú hefur þar.
SMSL er líka þekkt merki í þessum bransa og hafa gott rep sem bang for the buck vörur.
Lexxinn skrifaði:appel skrifaði:Það er hægt að gera mjög góð kaup á svona hlutum, jafnvel borga 50% minna en nývirði.
Alltaf gaman að unpacka nýjum hlutum, en fer ekki vel með budduna
Persónulega er ég mjög savvvy að kaupa hluti á bland, vaktinni, hér og þar notaða, spara rosalega. Keypti leðursófa frá IKEA á bland á 100 þús, sem kostar 300 þús nýr, alveg einsog nýr. Keypti móðurborð+ram+cpu á vaktinni á peanuts fyrir um 4 árum síðan, er enn að nota það, og windows 10 fylgdi frítt með! Ef ég hefði keypt þetta allt nýtt sem ég hef keypt notað þá væri ég líklega í svona einni milljón í mínus.
Er 100% á sama stalli þar en þegar hluturinn kostar mig innan við 25þ og ég er að skoða eitthvað sem mig langar að eiga til lengri tíma kaupi ég bara nýtt. Hef sjálfur það takmarkaða kunnáttu á hljóðbúnaði að ég veit ekkert hvað skal varast eða hafa í huga þegar kemur að notuðum hlutum svo læt það algjörlega í friði.
oliuntitled skrifaði:Gott usb hljóðkort samt er eitthvað sem þú ættir að skoða
Eitthvað handy bang-for-buck sem þú mundir mæla með?
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Mið 09. Mar 2022 15:37
af Squinchy
Verður ekki svikinn af þessum hátölurum, er sjálfur með BX5a parað með Presonus 22VSL hljóðkorti, alveg einstaklega skemmtilegt setup
Mæli með hljóðkorti sem er ætlað fyrir svona hátalara, smá peningur en hverri krónu virði, gerir allt svo mikið þæginlegra, plús það að þú færð heyrnatóla magnara innbyggðann
https://www.hljodfaerahusid.is/is/vefve ... b-96-25tthMeð þessu stýrir þú volume á bæði hátölurum og heyrnatólum með sér takka, og hefur option til að tengja alvöru mic við kerfið fyrir discord
Re: Tölvuhátalarar/studiomonitors - leitin (val á milli 4?)
Sent: Mið 09. Mar 2022 17:14
af AndriíklAndri