Síða 1 af 1

4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 16:46
af GuðjónR
Smá heilabrot, er með MediaCenter tölvu og nota KODI spilarann mest.
Ef ég horfi á 4K myndir og nota nVidia kortið þá eru litirnir í ruglinu, allt mjög svart og hvítt
Hinsvegar ef ég nota Intel® HD Graphics 630 sem er innbyggt í 7700K örgjörvarn þá eru litirnir og birtan fín nema sá skjáhraðall er á mörkunum að ráða við 4K, þ.e. hökktir stundum smá. Þetta á ekki við um 1080 myndir.
Veit einhver hvert vandamálið er?

Re: 4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 17:00
af SolidFeather
Er þetta HDR rip?

Re: 4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 17:12
af kornelius
Hvaða stilling er í kodi undir settings > system > display > resolution?

K.

Re: 4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 17:14
af Predator
Spurning hvaða codec þetta er?

Re: 4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 17:35
af GuðjónR
Það skiptir ekki máli hvaða spilara ég nota og virðist ekki skipta hvaða 4K source ég nota.
Ýmist eru litirnir "washed out" eða eins og sést hér að ofan, nánast svart hvítt.
Svo sem ekkert vandamál að nota 1080 fæla eða innbyggða GPU, bara skrítið að þetta sé svona.

Re: 4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 17:45
af kornelius
Búinn að prufa að disable'a Internal Graphics í BIOS?

K.

Re: 4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 17:59
af steinar993
nvidia stillingar?
YCbCr422
12 BPC
fara í RGB og FULL

Re: 4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 19:44
af Molfo
Mig minnir að ég hafi lent í einhverju svipuðu og að ég hafi fundið eitthvað á google um að skoða stillingar undir System - Player - Videos og þar undir Processing.
Ég held að ég hafi fiktað í Render method.. það er stillt á Pixel shaders hjá mér...

En þetta er talsvert síðan og mig gæti verið að misminna. :)

Re: 4K myndir virka ekki með 1050ti kortinu

Sent: Þri 10. Nóv 2020 20:26
af wicket
kornelius skrifaði:Hvaða stilling er í kodi undir settings > system > display > resolution?

K.


Could be wrong en minnir að það sé eingöngu fyrir GUI-ið. Myndefni í spilun er stillt á öðrum stað.