Síða 1 af 1

MI box S og NordVPN

Sent: Mið 08. Júl 2020 16:50
af XYZ

Er með NordVPN og er að hugsa um að fá mér MI TV box. Meðal annars ætla ég að nota það ef ég er erlendis og vil horfa á RÚV, einnig erlendar myndir. Einnig horfum við aðeins á erlenda þætti í danska sjónvarpinu og notum þá danska tekstann. Að gera þetta beint í Android spjaldtölvu gengur vel. Hef heyrt að þetta gangi ekki með MI TV boxinu þó það sé með NordVPN. Sjónvarpsefni sem sé með land-takmörkun sé lokað.
Er einhver hér sem þekkir þetta eða nennir að gá að hvort þetta sé reyndin.
kv.
XYZ

Re: MI box S og NordVPN

Sent: Mið 08. Júl 2020 17:27
af Dóri S.
Ég hef verið að nota þetta. Þú þarft að setja upp NordVpn í dns stillingarnar á Mi Box til að það virki. svo er hægt að hafa Nord vpn bara stillt á ísland þegar þú ert að horfa á innlent efni, en veiturnar beita ýmsum aðferðum til að vinna á þessu, svo það er ekki víst að þetta virki alltaf.

Re: MI box S og NordVPN

Sent: Mið 08. Júl 2020 17:54
af XYZ
Takk fyrir upplýsingarnar Dóri S.