Síða 1 af 1
Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Fös 13. Mar 2020 12:56
af gutti
hvað er vera taka fyrir að fest og í loft fyrir 2 hátarlafestingar. Ég get gert sjálfur en betra gera vell upp á sé ekki borað í rafmagnleiðslur er í blokk hátún búinn fá leyfi fara að setja upp svona festingar
https://www.amazon.com/gp/product/B01HZ ... UTF8&psc=1 svo líta hátarla svon út dolby atoms
https://ht.is/product/100w-vegghatalarar. er öryki þannig sjá hvað mundi kosta fyrir mig á eftir kaupa rétt skrúfur og rær keypti ekki rétt í gær.
6994553
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Fös 13. Mar 2020 13:08
af Njall_L
Er loftið steypt eða klætt með panel eða einhverju slíku?
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Fös 13. Mar 2020 13:18
af Emarki
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Fös 13. Mar 2020 13:20
af gutti
það er steypta
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Mán 30. Mar 2020 00:33
af gutti
Upp
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Mán 30. Mar 2020 12:42
af einarhr
Ég sé að hátalarinn er um 3 kg og festingin býður uppá 4 til 8 skrúfur í hvern stand. Ég held að það sé nóg að nota 4 stk af 5x25mm múrtöppum ásamt skrúfum fyrir þanning tappa. Þú ættir að fá allar upplýsingar í td Bykó. ´
https://byko.is/bygginga-og-grofvorur/f ... tID=195554Endilega leiðréttið mig ef þið haldið að þetta sé ekki nógu sterkar skrúfur.
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Mán 30. Mar 2020 15:07
af gutti
Búinn að kaupa skrúfur og í festingar keypti hjá húsasmiðju
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Mán 30. Mar 2020 18:29
af Snorrlax
Persónulega myndi ég alltaf fara í múrbolta eða steypuskrúfur ef ég væri að festa í loft. Ættir ekki að þurfa að hafa áhyggjur af raflögnum nágranana þar sem þær væru sjaldnast ef einhverntímann lagðar í gólfið hjá þeim, og ef svo væri er gólfið líklegast nógu þykkt til að ef þú borar ekki mikið lengra en tappinn þarftu ekki hafa áhyggjur af því.
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Þri 31. Mar 2020 03:08
af Manager1
Hver hátalari er 3kg, þú getur notað eina skrúfu og þarft aldrei að hafa áhyggjur af því að þetta detti í hausinn á þér, til að tvítryggja skaltu nota tvær.
Þú þarft ekki múrbolta fyrir 3kg hátalara.
Eins og Snorrlax benti á þá er platan sennilega það þykk að ef þú borar bara 5cm inn þá ferðu ekki í lagnir hjá nágrannanum, platan ætti að vera a.m.k. 15cm.
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Þri 31. Mar 2020 07:50
af Snorrlax
Manager1 skrifaði:Hver hátalari er 3kg, þú getur notað eina skrúfu og þarft aldrei að hafa áhyggjur af því að þetta detti í hausinn á þér, til að tvítryggja skaltu nota tvær.
Þú þarft ekki múrbolta fyrir 3kg hátalara.
Eins og Snorrlax benti á þá er platan sennilega það þykk að ef þú borar bara 5cm inn þá ferðu ekki í lagnir hjá nágrannanum, platan ætti að vera a.m.k. 15cm.
Sennilega satt hjá þér að múrboltar eru overkill
Mér líður bara alltaf betur ef ég er að festa eitthvað í loftið sem getur dottið að fara vel overkill heldur en of lítið, gefur mér "peace of mind". Sérstaklega á jarðskjálftaíslandi.
Re: Setja upp hátarlafestingar í loft !!
Sent: Þri 31. Mar 2020 15:04
af Tbot
Að setja í loft 3 kg, þá vildi ég frekar fara í 6 til 7mm múrtappa og skrúfur samkvæmt því. Ef það er hik þá er að fjölda skrúfum úr 4 í 6.
Vilt ekki að þetta losni ef það kemur skjálfti.
Múrboltar eru eiginlega overkill og einng það er ekki hægt að fjarlægja þá svo glatt.
Þetta er leiguíbúð sem gutti er í.
Re: Setja upp hátarlar í loft !! KLIPSCH ATMOS
Sent: Sun 03. Maí 2020 17:20
af gutti
smá upp er fá mér nýja atoms á morgun eða þriðjudag ? og einhvern get hjá hjálpa mer nafnið á hátarlar er KLIPSCH ATMOS borgað fyrir verkið
þarf helst vera mæli tæki upp á sé ekki borað í leiðslu !! setja miðja stofunna eða rétt við sofann !