Síða 1 af 1

Playstation 4

Sent: Mán 25. Nóv 2019 21:44
af isr
Guttinn minn og ég ætlum að skipta úr Playstation 3 í 4, það eru mismunandi útgáfur á þeim, slim, pro og pro 4k, ég er með 4k Tv, ætti maður að fara í 4k vélina, eða eru kannski ekki allir leikir í þeim gæðum, eða fara bara ódýrustu.?

Re: Playstation 4

Sent: Mán 25. Nóv 2019 21:56
af kiddi
Hlauptu strax á morgun og kauptu PS4 Pro í Elko - þeir voru að lækka hana niður fyrir öll velsæmismörk og hún er á 44.995 kr.

Það eru einstaka leikir í 4K en þetta snýst líka bara um "gúddífílinginn" að vita að maður sé með bestu útgáfuna.

Ég keypti PS4 Pro fyrir 2 vikum á 54.995 og hélt ég hefði verið að gera svaka díl :O

Re: Playstation 4

Sent: Þri 26. Nóv 2019 01:50
af ChopTheDoggie
Ég mæli alltaf að fá besta vélina, sérstaklega núna þar sem hún er á 45þ úti búð :)

Re: Playstation 4

Sent: Þri 26. Nóv 2019 09:05
af jack-1127
ps4 slim er á 29.994 í tölvutek

Re: Playstation 4

Sent: Þri 26. Nóv 2019 12:09
af ChopTheDoggie
kiddi skrifaði:Það eru einstaka leikir í 4K en þetta snýst líka bara um "gúddífílinginn" að vita að maður sé með bestu útgáfuna


Reyndar samt ekki á sama tíma, sumir leikir bjóða uppí PS4 Pro Enhanced, s.s. 4K og/eða 60fps.

Tildæmis í Monster Hunter þá er leikurinn á 30fps í OG & Slim en 60fps í Pro og í miklu fleiri leikjum eins og No Man's Sky, Dark Souls 3, Gran Turismo Sport ofl.