Síða 1 af 2
Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 26. Júl 2019 01:11
af RassiPrump
Konan vill endilega vera með myndlykilinn til þess að fá sjónvarp símans, en ég vill helst losna við að borga næstum 3þ á mánuði fyrir að vera með myndlykil frá símanum, hver er besta lausnin til að ná íslensku stöðvunum án þess að vera að borga leigugjald á myndlykli?
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 26. Júl 2019 04:29
af kornelius
Vera með loftnet og annar góður kostur er:
https://sjonvarp.stod2.is/live
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 26. Júl 2019 05:49
af depill
RassiPrump skrifaði:Konan vill endilega vera með myndlykilinn til þess að fá sjónvarp símans, en ég vill helst losna við að borga næstum 3þ á mánuði fyrir að vera með myndlykil frá símanum, hver er besta lausnin til að ná íslensku stöðvunum án þess að vera að borga leigugjald á myndlykli?
Ef hún vill Sjónvarp Símans Premium að þá er eini möugleikinn myndlykill frá Símanum.
Ef þú vilt ná Íslensku rásunum án áskriftarstöðva er NovaTV örugglega ágætur option
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 26. Júl 2019 10:16
af rapport
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 26. Júl 2019 11:44
af olihar
Ég horfi á RÚV með Apple TV
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 26. Júl 2019 14:17
af RassiPrump
depill skrifaði:RassiPrump skrifaði:Konan vill endilega vera með myndlykilinn til þess að fá sjónvarp símans, en ég vill helst losna við að borga næstum 3þ á mánuði fyrir að vera með myndlykil frá símanum, hver er besta lausnin til að ná íslensku stöðvunum án þess að vera að borga leigugjald á myndlykli?
Ef hún vill Sjónvarp Símans Premium að þá er eini möugleikinn myndlykill frá Símanum.
Ef þú vilt ná Íslensku rásunum án áskriftarstöðva er NovaTV örugglega ágætur option
Nei er ekki með premium, hún "verður" bara að vera með sjónvarp símans.... spurning um að kaupa bara appletv og nota öppin sem þar standa til boða?
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 26. Júl 2019 17:41
af russi
AppleTV lausnin er príma fyrir þetta.
Svo er alltaf spurning að nota bara gamla góða loftnetið, ef sjónvarpið þitt er með DVB-T2 móttakara þá ertu golden þar
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 26. Júl 2019 18:09
af RassiPrump
Það grátlegasta er að ef ég hefði bara fengið mér apple tv strax þá væri ég búinn að borga það upp 3svar sinnum fyrir leigugjaldið...
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Lau 27. Júl 2019 03:22
af einarn
Chromecast. Sagði upp myndlyklinum hjá vodafone og nota bara chromecast þegar ég vil horfa á RÚV.
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Lau 27. Júl 2019 08:39
af Viktor
einarn skrifaði:Chromecast. Sagði upp myndlyklinum hjá vodafone og nota bara chromecast þegar ég vil horfa á RÚV.
Get alveg lofað þér því að kærasta sem verður að vera með sjónvarp símans er ekki að fara að nenna að standa í veseninu sem fylgir Chromecast.
Apple TV og Android TV eru einu raunhæfu valkostirnir.
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Lau 27. Júl 2019 14:20
af Moldvarpan
Afhverju ekki að íhuga UHF loftnet á 5k og nota móttakaran í sjónvarpinu?
Er ekki bæði RÚV og Sjónvarp Símans sent út á UHF?
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Lau 27. Júl 2019 15:04
af depill
Ef þú ert bara að sækjast eftir sjónvarpstöðinni Sjónvarp Símans án Premium, þá geturðu tekið bara NovaTV, þeir eru með sjónvarp símans og leyfa að spóla til baka um 2 tíma ( bara Síminn er með tímaflakk á rásinni vegna licensing mála eftir því sem mér skylst ).
Ef þú ert með áskriftarsjónvarp þá er örugglega best fyrir þig að vera með Sjónvarp Símans og ef þú ert að horfa á enska boltann er ágætt value í því sem Síminn er að bjóða uppá.
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Lau 27. Júl 2019 16:18
af urban
depill skrifaði:Ef þú ert bara að sækjast eftir sjónvarpstöðinni Sjónvarp Símans án Premium, þá geturðu tekið bara NovaTV, þeir eru með sjónvarp símans og leyfa að spóla til baka um 2 tíma ( bara Síminn er með tímaflakk á rásinni vegna licensing mála eftir því sem mér skylst ).
Ef þú ert með áskriftarsjónvarp þá er örugglega best fyrir þig að vera með Sjónvarp Símans og ef þú ert að horfa á enska boltann er ágætt value í því sem Síminn er að bjóða uppá.
NovaTV bjóða uppá enska boltann líka hjá sér.
Ég ætla einmitt að taka hann í gegnum þá.
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Lau 27. Júl 2019 17:23
af RassiPrump
Mér finnst líklegast að ég fari í appletv, þar sem að ég hef sennilega aðgang að UHF...þakka fyrir svörin!
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Sun 28. Júl 2019 18:27
af jonfr1900
Moldvarpan skrifaði:Afhverju ekki að íhuga UHF loftnet á 5k og nota móttakaran í sjónvarpinu?
Er ekki bæði RÚV og Sjónvarp Símans sent út á UHF?
Á UHF er sent út Rúv, Rúv 2, Stöð 2, Stöð 3, erlendar stöðvar, Sjónvarp Símans (SD) og aðrar íslenskar stöðvar. Það er ekki endilega opið fyrir allar stöðvar sem eru sendar út á UHF.
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Mán 29. Júl 2019 10:52
af Dagur
Talandi um loftnetið. Ég er að nota það en stöðvarnar detta alltaf út (fyrir utan RÚV og Stöð 2). Ég get semsagt horft á Stöð 3 og Sjónvarp Símans en næst þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá þarf ég að skanna stöðvarnar upp á nýtt.
Er einhver annar að lenda í þessu?
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Mán 29. Júl 2019 12:46
af russi
Dagur skrifaði:Talandi um loftnetið. Ég er að nota það en stöðvarnar detta alltaf út (fyrir utan RÚV og Stöð 2). Ég get semsagt horft á Stöð 3 og Sjónvarp Símans en næst þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá þarf ég að skanna stöðvarnar upp á nýtt.
Er einhver annar að lenda í þessu?
Með RÚV, eru RUV SD rásin að halda sér? Dettur RÚV HD líka út eða er hún að halda sér?
Man ekki með stöð3, en Sjónvarp Símans og RÚV HD eru á sömu DVB-T2 channel, en RÚV SD rásirinar eru DVB-T channel. Bara það fyrsta sem mér dettur í hug að spyrja úti fyrir utan Sjnonvarps týpu
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Mán 29. Júl 2019 14:26
af Dagur
russi skrifaði:Dagur skrifaði:Talandi um loftnetið. Ég er að nota það en stöðvarnar detta alltaf út (fyrir utan RÚV og Stöð 2). Ég get semsagt horft á Stöð 3 og Sjónvarp Símans en næst þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá þarf ég að skanna stöðvarnar upp á nýtt.
Er einhver annar að lenda í þessu?
Með RÚV, eru RUV SD rásin að halda sér? Dettur RÚV HD líka út eða er hún að halda sér?
Man ekki með stöð3, en Sjónvarp Símans og RÚV HD eru á sömu DVB-T2 channel, en RÚV SD rásirinar eru DVB-T channel. Bara það fyrsta sem mér dettur í hug að spyrja úti fyrir utan Sjnonvarps týpu
RÚV HD dettur líka út
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Mán 29. Júl 2019 14:43
af Viktor
Dagur skrifaði:Talandi um loftnetið. Ég er að nota það en stöðvarnar detta alltaf út (fyrir utan RÚV og Stöð 2). Ég get semsagt horft á Stöð 3 og Sjónvarp Símans en næst þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá þarf ég að skanna stöðvarnar upp á nýtt.
Er einhver annar að lenda í þessu?
Hljómar eins og bilað sjónvarp
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Mán 29. Júl 2019 14:53
af russi
Ertu kannski með Philips tæki, svona 2-4 ára gamalt?
Hef séð það gerast á þeim að stundum virkar DVB-T2 og svo ekki. Líkt og DVB-T2 sé disabeld, en það er ekkert option sem enablar eða disablar það.
En það sem er að gerast hjá þér er bundið við DVB-T2 channelin, sem er Ch26 ef þú ert í bænum og á flestum stöðum á landinu
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Mán 29. Júl 2019 20:09
af sigurdur
Getið þið bent á ódýr loftnet sem væru heppileg í þetta?
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Þri 30. Júl 2019 12:15
af Dagur
Sallarólegur skrifaði:Dagur skrifaði:Talandi um loftnetið. Ég er að nota það en stöðvarnar detta alltaf út (fyrir utan RÚV og Stöð 2). Ég get semsagt horft á Stöð 3 og Sjónvarp Símans en næst þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá þarf ég að skanna stöðvarnar upp á nýtt.
Er einhver annar að lenda í þessu?
Hljómar eins og bilað sjónvarp
Mögulega. Ég var líka að spá hvort uppsetningin sé eitthvað skrýtin í blokkinni minni. Ég þarf að spyrja nágrannana.
russi skrifaði:Ertu kannski með Philips tæki, svona 2-4 ára gamalt?
Hef séð það gerast á þeim að stundum virkar DVB-T2 og svo ekki. Líkt og DVB-T2 sé disabeld, en það er ekkert option sem enablar eða disablar það.
En það sem er að gerast hjá þér er bundið við DVB-T2 channelin, sem er Ch26 ef þú ert í bænum og á flestum stöðum á landinu
Þetta er Sony tæki með Android TV. 2017 týpa held ég.
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fim 01. Ágú 2019 21:24
af jonfr1900
Dagur skrifaði:Talandi um loftnetið. Ég er að nota það en stöðvarnar detta alltaf út (fyrir utan RÚV og Stöð 2). Ég get semsagt horft á Stöð 3 og Sjónvarp Símans en næst þegar ég kveiki á sjónvarpinu þá þarf ég að skanna stöðvarnar upp á nýtt.
Er einhver annar að lenda í þessu?
Landið í sjónvarpinu verður að vera Denmark eða Iceland ef það er í boði. Annars hefur þetta aldrei gerst hjá mér.
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Fös 02. Ágú 2019 22:29
af JReykdal
5.1 hljóð í boði hjá RÚV á loftneti
Re: Sjónvarp símans og Rúv án myndlykils
Sent: Mán 23. Sep 2019 08:18
af GullMoli
Tengt þessu; nú er ég með Apple TV og öll þessi íslensku öpp, RÚV, Nova TV, Stöð 2.
Er engin leið að nálgast texta í þessum öppum?
Finnst alveg grautfúlt að RÚV appið bjóði ekki einu sinni upp á texta. Fólk yfir 50-60 ára getur ekki skipt út myndlyklinum ef það vantar texta fídusinn.