Emarki skrifaði:Njordur: mig myndi langa að vita hvernig þetta var í gegnum myus.com vs shopusa.is
Hef mjög góða reynslu af myus.com mun betri heldur en shopusa.is. Notaðu lengi vel shopusa.is en gafst upp á veseninu sem er yfirleitt með þeirra ferli.
Búinn að nota myus.com í nær 3 ár.
Ég nota myus.com þannig að ég kaupi áskrift en það er ekki nauðsynlegt. Helsti kosturinn við áskriftina er að getað safnað í sendingu, hvort sem ég er að fá sendingar frá mismunandi aðilum eða yfir eitthvað tímabil, jafnvel ein pöntun frá Amazon getur verið að koma frá 2 eða fleirri aðilum og þar með lenda þær ekki allar á sama tíma jafnvel þó maður velji þann valmöguleikan hjá Amazon. Svo senda þeir til Íslands sem ein sending, jafnvel pakka mörgum minni sendingum saman í einn pakka.
Ég tek jafnvel hluti sem væri hægt að senda beint til íslands af Amazon í gegnum þá því það er yfirleitt lægri sendingar kostnaður hjá þeim.
Þarft Ekki að skrá sendingu hjá myus.com fyrirfram eins og það var allavega hjá shopusa síðast þegar ég notaði þá. Færð bara tilkynningu þegar sending á þitt address lendir hjá þeim og ef þú ert með virka áskrift þá ferðu inná síðuna og setur sendingu til íslands af stað ef þú ert ekki með það stillt sjálfvirkt. Það hefur nokkru sinnum komið sér vel að geta beðið eftir nýju vísa tímabili áður en ég sendi til íslands, getur beðið með að senda áfram til íslands í allt að 30 daga. Ef þú ert ekki með áskrift þá færðu tilkynninguna, svo fer hún sjálfkrafa í ferli að sendast áfram.
Og ef þú ert með áskrift og þig vantar eitthvað frá aðila sem tekur ekki við íslenskum kredit kortum þá geturðu látið þá panta vöruna fyrir þig og þú greiðir verðið á vörunni til þeirra.
Hef þurft að nota Customer support hjá þeim einusinni og það gekk vandræðalaust.
Mæli bara með því að þú skoðir þetta, getur fengið þér 30daga free trial á áskriftar leiðina. Getur reiknað út áætlaðan sendingar kostnað til íslands hér
https://www.myus.com/pricing/calculate-shipping/ miðast nánast alltaf við þyngd sendingar hjá þeim.