Aðeins flóknara en að forwarda porti.
Það sem þú vilt gera er að binda VLAN á ákveðin port á routernun, svo IPTV traffíkin fari á ákveðin port og hefðbundna internetið traffíkin á hin portin. Vandamálið er að þessar stillingar eru mismunandi eftir þjónustuaðilanum og þeir eru ekki beint að auglýsa þær. Það er ágætlega flókið að leiðbeina einhverjum hvernig á að gera þetta og ólíklegt það gangi upp nema viðkomandi hafi góða tækniþekkingu, og eðlilega vilja þeir frekar þú sért með tæki frá þeim.
Veit ekki hversu tæknikunnaður þú ert en fyrir löngu síðan fór ein síða nokkuð vel ofaní þetta og gætu upplýsingar leynst þar sem duga til, í það minnsta færðu betri skilning á málinu.
https://www.lappari.com/2015/09/viltu-skipta-ut-routernum-fra-simanum/Ef ekki þá er spursmál hvort einhver hjálpsamur aðili sé með eins tæki sem er búið að stilla geti sent þér stillingarnar sínar, þá þyrftirðu gera lágmarksbreytingar á þessum upplýsingum svo þetta virki.