Síða 1 af 1

1 hdmi port- 2 skjáir?

Sent: Fös 08. Des 2017 21:15
af SIKk
Góðann daginn félagar :megasmile Ég er í smá pælingum..

Ég er með fartölvu sem mig langar að geta lokað og haft tvo tölvuskjái tengda við og nota þá annan þeirra sem aðalskjáinn og hinn sem extension, er einhver leið til að gera þetta með einu hdmi porti?

Smá googl skilaði mér að ég gæti notað Matrox DualHead2Go Digital SE til að "blekkja" tölvuna til að halda að tveir 1920x1080 skjáir séu einn 3840x1080 skjár, en ég vildi vita hvort það væri til svona eða svipuð græja sem ég get keypt hérna á Íslandi?

Er kannski einhver betri lausn en þessi græja? Allt input og hugmyndir mjög vel þegnar :happy

Re: 1 hdmi port- 2 skjáir?

Sent: Fös 08. Des 2017 21:16
af Klemmi
Fer eftir því hvað þú ert að fara að gera með þessa skjái, en utanáliggjandi USB 3.0 skjákort gæti líka verið ódýrari kostur ef þú þarft ekki mikið power í það sem er að keyra á honum.

Án þess að hafa skoðað það neitt, þá er spurning hvort svona græja dugi? Gefið að þú sért með USB3 á tölvunni.
https://www.computer.is/is/product/skja ... a-ib-ac507

Re: 1 hdmi port- 2 skjáir?

Sent: Fös 08. Des 2017 21:55
af SIKk
Klemmi skrifaði:Fer eftir því hvað þú ert að fara að gera með þessa skjái, en utanáliggjandi USB 3.0 skjákort gæti líka verið ódýrari kostur ef þú þarft ekki mikið power í það sem er að keyra á honum.

Án þess að hafa skoðað það neitt, þá er spurning hvort svona græja dugi? Gefið að þú sért með USB3 á tölvunni.
https://www.computer.is/is/product/skja ... a-ib-ac507

Vá takk kærlega fyrir! Ég er ekki að fara að gera neitt heavy þannig að ég held að þetta sé bara alveg fullkomin lausn! :sleezyjoe :happy

Re: 1 hdmi port- 2 skjáir?

Sent: Fös 08. Des 2017 22:07
af jonfr1900
Þú þarft að fá þér HDMI splitter. Ég veit ekki hvort að þetta er selt á Íslandi.

https://www.amazon.co.uk/Neoteck-Splitt ... ns+at+once

Re: 1 hdmi port- 2 skjáir?

Sent: Fös 08. Des 2017 22:35
af hagur
jonfr1900 skrifaði:Þú þarft að fá þér HDMI splitter. Ég veit ekki hvort að þetta er selt á Íslandi.

https://www.amazon.co.uk/Neoteck-Splitt ... ns+at+once


Ef þú vilt duplicate-a sömu skjámynd á báða skjáina, sem er ekki það sem OP er að leitast eftir ....

Re: 1 hdmi port- 2 skjáir?

Sent: Lau 09. Des 2017 10:58
af jonfr1900
Þetta er ekki HDMI switch. Þetta sýnir sömu myndina á mörgum skjám samkvæmt framleiðanda.

Re: 1 hdmi port- 2 skjáir?

Sent: Lau 09. Des 2017 20:39
af hagur
jonfr1900 skrifaði:Þetta er ekki HDMI switch. Þetta sýnir sömu myndina á mörgum skjám samkvæmt framleiðanda.


Einmitt það sem ég sagði ... og það er ekki það sem þráðarhöfundur vill. Semsagt, hdmi splitter gerir ekkert fyrir hann :-)