Síða 1 af 1
Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 07:25
af vesley
Nú ætla ég að fjárfesta í heyrnartólum til að hafa í vinnunni.
Er nauðsynlegt að þau séu noise cancelling þar sem mikill hávaði er og að þau séu þráðlaus/bluetooth.
Er budgetið nokkuð ótakmarkað og hef ég verið heitur fyrir tveimur týpum.
https://www.netverslun.is/Hljod-og-mynd ... 089.actionhttps://www.netverslun.is/Hljod-og-mynd ... 656.actionHef ég prófað að nota Bose og eru þau ótrúlega þæginleg, en hinsvegar hef ég heyrt að hljómgæðin séu ekki þau bestu þó þau séu nú þrátt fyrir það alls ekki léleg.
Einhver ykkar sem á Sony eða Bose og vill gefa sýna skoðun á þessu? Aðrar týpur koma til greina.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 09:11
af ColdIce
Var í nákvæmlega sömu pælingum.
Finnst Sony betri en Bose muuuun þægilegri á hausnum. Ég tók Bose.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 09:26
af dori
Ég myndi örugglega fá mér Bose eða Sennheiser (Momentum wireless) eftir því hvað þú fílar betur.
Fékk
Plantronics frá vinnunni og þau eru ekki sérstaklega flott og svo er smá suð í þeim (veit ekki hvernig samanburðurinn við önnur heyrnartól er samt) þannig að ég myndi ekki kaupa mér þau.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 09:37
af depill
Búinn að vera í sömu pælingum
Sennheiser momentum wireless er með bestu hljóðgæðin af þessum
Sony er með betri hljóðgæði en Bose ( Bose sound eins og það er talað )
Enn Bose heyrnatólin eru rugl þæginleg og noise cancellationið er mikið betra en í hinum tækunum. Mæli með kíkja í Elko í lindum og bara prófa.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 09:41
af Sultukrukka
Getur líka skoðað Sennheiser PXC 550. Ég keypti svona um daginn og er mjög sáttur við þetta stöff.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 10:22
af vesley
depill skrifaði:Búinn að vera í sömu pælingum
Sennheiser momentum wireless er með bestu hljóðgæðin af þessum
Sony er með betri hljóðgæði en Bose ( Bose sound eins og það er talað )
Enn Bose heyrnatólin eru rugl þæginleg og noise cancellationið er mikið betra en í hinum tækunum. Mæli með kíkja í Elko í lindum og bara prófa.
Já ætla að kíkja í Elko á mrg og prófa þau öll. Er hinsvegar farinn að hallast að Bose einmitt útaf þægindum og að ég hef heyrt um yfirburðina í noise cancellation. Vinn oft í gríðarlega miklum hávaða, verið að bora og brjóta í kringum mann marga klukkutíma á dag.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 10:33
af gotit23
er með bæði Sony og bose,
https://www.netverslun.is/Hljod-og-mynd ... 131.actionhttps://www.netverslun.is/Hljod-og-mynd ... 655.actionog finnst mér hljómgæðin vera aðeins betra í bose einnig finnst mér þau liggja betra á eyranum.
ég held í þessu er það svoltið þannig eins og í öllu öðru ,"you get what you pay for"
sony eru á 30.000 og bose á 50.000"
get samt mælt með bæði
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 10:51
af rapport
Eru momentum 2.0 ekki lengur viable í svona umræðu?
https://elko.is/sennheiser-momentum-2-0 ... laus-svortÞetta er líklega eitt það skemmtilegasta sem ég hef keypt í langan tíma, ótrúlega skemmtileg + fólk gapir alltaf þegar það sér mig tala í símann án þess að hafa míkrófón.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 11:11
af worghal
Var að fá mér qc35 í gær. Ótrúlega þægileg og hljóðið er ekkert slor. Er farinn að hallast að því að fólk dissi bose bara af því að það er bose. En ekki taka mitt orð fram yfir hina. Ekkert kemur í staðinn fyrir prufu
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 11:22
af vesley
rapport skrifaði:Eru momentum 2.0 ekki lengur viable í svona umræðu?
https://elko.is/sennheiser-momentum-2-0 ... laus-svortÞetta er líklega eitt það skemmtilegasta sem ég hef keypt í langan tíma, ótrúlega skemmtileg + fólk gapir alltaf þegar það sér mig tala í símann án þess að hafa míkrófón.
Er mestur hræddur varðandi Momentum að vera orðinn ansi þreyttur á höfðinu eftir 10klst þar sem enginn púði er ofan á þeim.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 11:57
af I-JohnMatrix-I
Var sjálfur í þessum pælingum og endaði á Sony MDR-1000x, þónokkur munur á hljóðinu í þeim vs qc-35. Sony-inn er mjög þæginlegur á höfðinu en nær þó ekki bose-inum í þægindum. Það sem seldi mig fyrir rest eru allir auka fídusarnir í Sony tólunum og auðvitað munurinn í hljómgæðum. Annars er líklega best fyrir þig að prófa þau bæði og taka ákvörðun út frá því.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 12:19
af Viktor
Ég hef sjaldan séð jafn lítið eftir peningunum og í Bose QC35 sem ég keypti fyrir flug í Fríhöfninni á eitthvað um 40k.
Nota þetta mjög mikið fyrir símann og fartölvuna, en þau eru hreint yndi.
Eina sem pirrar mig er þegar það er vindur úti og það koma miklir skruðningar útaf noise cancellation. Frekar súrt að það sé ekki svona anti-wind-dúskur á hljóðnemunum fyrir noise cancellation.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 12:59
af elight82
Sallarólegur skrifaði:Eina sem pirrar mig er þegar það er vindur úti og það koma miklir skruðningar útaf noise cancellation. Frekar súrt að það sé ekki svona anti-wind-dúskur á hljóðnemunum fyrir noise cancellation.
Splæsa í svona?
https://www.amazon.com/Micover-Stickover-Mini-Universal-Windscreen-Laptops/dp/B006IWYH4Y
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 13:06
af Viktor
Haha, það er spurning.
Það er hægt að redda þessu með því að setja smá límband yfir hljóðnemana.
Hef svo verið að lesa mig til, en engin noise cancelling headphones eru gerð til að nota utandyra.
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 14:52
af Jon1
ég var í sömu pælingum og endaði á sony , sé ekki neitt eftir þeirri ákvörðun. Fleiri features á að vera betra sound og betra NC. bose eru að mínu mati aðeins þægilegri á hausnum ekki að sony séu óþægileg og þau geta tengst fleiri hlutum
Re: Val á noise cancelling Bluetooth heyrnartólum.
Sent: Mið 06. Sep 2017 16:41
af rapport
vesley skrifaði:rapport skrifaði:Eru momentum 2.0 ekki lengur viable í svona umræðu?
https://elko.is/sennheiser-momentum-2-0 ... laus-svortÞetta er líklega eitt það skemmtilegasta sem ég hef keypt í langan tíma, ótrúlega skemmtileg + fólk gapir alltaf þegar það sér mig tala í símann án þess að hafa míkrófón.
Er mestur hræddur varðandi Momentum að vera orðinn ansi þreyttur á höfðinu eftir 10klst þar sem enginn púði er ofan á þeim.
Ég er ekki með þau 10 klst. samfleitt en hef tekið þau allan vinnudaginn með hléum.
Af því að ég er með gleraugu þá þoli ég ekki þegar heyrnatól klemma eyrað á mér á gleraugnaspöngina.
Momentum gera það ekki heldur fara utanum eyrað á mér og eru bara nógu þröng utanum eyrun til að ég finn aldrei fyrir þessu "on top of my head".
Kannski aðalega að manni verði heitt/sveitt á eyrunum þegar maður er með þau svona lengi.